Fréttablaðið - 07.02.2008, Qupperneq 58
46 7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
> ÞAÐ KEMUR SÉR VEL …
… að eiga eins og eina krukku af góðu, sterku
sinnepi í eldhúsinu. Það má nota í alls konar
sósur og maríneringar, eða bara eitt
og sér fyrir þá sem þora. Í
verslunum er svo hægt
að fá allt frá gróf-
kornóttu dijon sinn-
epi til sinneps með
estragoni. Um að
gera að prófa sig
áfram.
Rússnesku blini-kökurnar eru
vinsælar um allan heim, og þá
sérstaklega sem fingramatur í
mannfagnaði eða í hlutverki for-
réttar. Þó að hægt sé að kaupa
kökurnar tilbúnar er ekki mikil
fyrirhöfn að búa þær til sjálfur.
Burtséð frá tímanum sem deigið
þarf til að lyfta sér er baksturinn
ekki heldur sérlega tímafrekur.
Þessa uppskrift er að finna á síð-
unni epicurious.com.
Hrærið saman vatn, ger og
sykur í lítilli skál og látið standa í
um 5 mín. þar til blandan freyðir.
Bætið hveiti, bókhveiti og salti
við blönduna. Hrærið mjólk, 3
msk. af smjöri og eggjum saman
við. Breiðið plastfilmu yfir skál-
ina og komið fyrir í ofnskúffu
með um 2,5 cm af heitu vatni.
Látið hefast á hlýjum stað í um
1½ til 2 tíma. Hrærið deigið
aftur.
Hitið pönnu og berið smjör á
hana. Notið um 1 msk. af deigi
fyrir hverja blini. Steikið og snúið
þar til kökurnar eru gullinbrúnar
á báðum hliðum, í um 2 mínútur.
Haldið heitu.
Berið fram með sýrðum rjóma,
reyktum laxi eða kavíar og mögu-
lega fínt söxuðum lauk.
Blini fyrir alla
Tangódansarinn Bryndís
Halldórsdóttir kann vel að
meta góðan mat. Hún gefur
uppskrift að óvenjulegu
salati með granateplum.
„Þetta er virkilega gott salat, og
mjög fallegt á diski,“ segir
Bryndís, sem snaraði fram upp-
skrift að salati með parmaskinku
og granateplafræjum fyrir les-
endur Fréttablaðsins. „Það er
auðveldlega hægt að nota salatið
sem forrétt en ég mæli með því
að bera það fram með góðu, heil-
steiktu nauta rib-eye,“ bendir
Bryndís á.
Kjötið er þá forsteikt á pönnu en
látið klára sig í ofni. Því er þá
pakkað inn í álpappír og látið
jafna sig í um tíu mínútur. „Ég
mæli ekki með því að það sé
meira steikt en medium rare, og
bara kryddað með salti og pipar.
Einhvern tíma hef ég líka nuddað
kjötið með ferskri salvíu, hún
gefur dálítinn villikeim,“ segir
Bryndís, sem kveðst hafa lært að
meta gott kjöt á ferðum sínum til
Suður-Ameríku.
„Við erum svolítið gjörn á að
drekkja þessu í sósu og alls konar
óþörfu meðlæti. Ég mæli frekar
með því að nota smá ólífuolíu og
balsamedik með kjötinu. Það
nýtur sín best eitt og sér, án sósu
og með sem minnstu meðlæti.
Maður þarf ekki annað en gott
kjöt, salat og gott rauðvín,“ segir
Bryndís og hlær við.
Hún hefur í nógu að snúast
þessa dagana, því á laugardaginn
stendur Tangófélagið fyrir tangó-
maraþoni í samvinnu við Vetrar-
hátíð í Reykjavík. Maraþonið
stendur frá 12 á hádegi til sex um
morgun, og fer fram í Iðnó. „Þetta
snýst um það að dansa við þá sem
manni finnst skemmtilegast að
dansa við, eins lengi og mann
lystir. Við munum veita verðlaun
á sunnudeginum fyrir mesta
úthaldið, en dansgleðin er aðalat-
riðið,“ útskýrir Bryndís. Mara-
þonið verður brotið upp með tón-
leikum og kennslu fyrir bæði
byrjendur og lengra komna. „Það
verður opið hús hjá okkur, svo
öllum er velkomið að koma inn og
fylgjast með og taka þátt í kennsl-
unni,“ segir Bryndís. Frekari
upplýsingar er að finna á tango.
is.
Skerið granatepli í sundur og
fjarlægið fræin með skeið. Bland-
ið innihaldi salatsins saman.
Bryndís segir bæði mozzarella-
ost og parmesanost fara vel með
salatinu. Þeytið saman innihaldi
salatdressingar og dreypið yfir
salatið. Berið fram með kjöti og
kartöflum eftir smekk.
sunna@frettabladid.is
Fallegt salat með kjötinu
LEYFIR KJÖTINU AÐ NJÓTA SÍN Tangódansarinn Bryndís Halldórsdóttir lærði að meta
gott kjöt á ferðum sínum í Suður-Ameríku. Hún segir nóg að bera það fram með
góðu salati og rauðvíni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Í dag gengur kínverska nýárið í
garð, og með því hefst ár rottunn-
ar. Tímamótunum fylgja margar
ævafornar matarhefðir, sem fjöl-
margir Asíubúar halda í heiðri á
ári hverju. Margir réttanna hafa
þó annan og meiri tilgang en að
bragðast vel á góðri kvöldstund,
því þeir hafa margir táknræna
merkingu.
Kínverskar núðlur eru vel
þekktar um heim allan. Ekki vita
þó allir að þær standa fyrir lang-
lífi, og gömul hjátrú segir til um
að slæmt sé að skera þær. Þær eru
því snæddar heilar á nýju ári.
Heill kjúklingur er einnig vinsæll
yfir hátíðirnar, þar sem hann
stendur fyrir sameiningu fjöl-
skyldunnar. Vorrúllur, sem eru
ekki heldur alveg óþekktar hér á
landi, merkja hins vegar auðæfi,
þar sem þær þykja líkjast gull-
stöngum að lögun.
Aðrir matréttir eru vinsælir
vegna heita sinna. Kantónska
orðið yfir salatblöð hljómar eins
og orðið fyrir aukna lukku og því
er algengt að bera fram rétti vafna
í salatblöð. Tangerínur og appels-
ínur eru einnig vinsælar, þar sem
orðin eru svipuð þeim yfir gæfu
og auð. Þá er fiskur nánast ómiss-
andi, en heiti hans, „yu“, hljómar
eins og orðin fyrir ósk og alls-
nægtir.
Þeir sem vilja taka þátt í hátíða-
höldunum að einhverju leyti gætu
því gætt sér á einhverjum ofan-
nefndum réttum og horft björtum
augum fram á veginn.
Núðlur á kínversku nýári
LANGLÍFI Heilar núðlur merkja langlífi
samkvæmt kínverskri þjóðtrú. Þær eru
því vinsæll réttur við nýársborðhald í
austri. NORDICPHOTOS/GETTY
Blini
¼ bolli heitt vatn (um 40°C)
1¼ tsk. þurrger
1½ msk. sykur
½ bolli sigtað hveiti
½ bolli sigtað bókhveiti eða heilhveiti
¼ tsk. salt
1 bolli hituð nýmjólk (um 40°C)
¼ bolli smjör, brætt og kælt
2 stór egg, hrærð
Salat með granateplum
Rucola eða blandað salat með
rucola
Parmaskinka
Mozzarella eða parmesanostur
Fræ úr granatepli
Dressing:
1 msk ólífuolía
1 msk fljótandi hunang
1 msk balsamedik
RÚSSNESKT BLINI Blini-kökurnar
eru oftar en ekki bornar fram með
sýrðum rjóma og kavíar.
NORDICPHOTOS/GETTY
Sendu sms BTC RAF
á númerið 1900
og þú gætir unnið!
Vinningar eru DVD m
yndir, varningur
tengdur myndinni og
margt
fleira!
SMS
LEIKUR
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
. Kemur í verslanir 7. febrúar!
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
maturogvin@frettabladid.is
Hvaða matar gætirðu síst verið án?
Ætli það hljóti ekki að vera kaffi ef ég get leyft mér að flokka það
sem mat.
Besta máltíð sem þú hefur fengið:
Það er bara síðasta máltíð sem konan mín eldaði fyrir mig. Hún er
frábær kokkur. Það voru einhverjar ungnautalundir, alveg rosalega
fínar.
Er einhver matur sem þér finnst vondur?
Nei, ég er nú frekar lítið matvandur. Ég sæki nú samt ekki sérstak-
lega í þennan súra þorramat. Í Baðstofunni, sem er frumsýnd um
helgina, þarf ég að djöflast í svona súru dóti. Það tekur á.
Leyndarmál úr eldhússkápnum:
Það er alltaf eitthvert nammi falið einhvers staðar, inn á milli korn-
flekspakka og pastapakkninga – svona svo að maður verði aldrei
uppiskroppa þegar sykurþörfin kemur yfir mann.
Hvað borðar þú til að láta þér líða betur?
Þegar ég er í vinnutörn eins og núna og maður er þreyttur eftir
vikuna fæ ég þörf fyrir stóra, blóðuga steik. Ég hef fundið fyrir því
síðustu helgar, þar tekur maður stórar, góðar máltíðir tvo daga í röð.
Annaðhvort með kjöti eða góðum, feitum fiski.
Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?
Það eru svo mörg börn hér að það er alltaf til mjólk, smjörvi og
ostur. Þetta hefðbundna.
Ef þú yrðir fastur á eyðieyju, hvað tækirðu með
þér?
Þá myndi ég hafa með mér harðfisk, það er
próteinbomba og endist von úr viti. Það heldur
manni gangandi allan daginn.
Hvað er það skrítnasta sem þú hefur borðað?
Einhvern tímann smakkaði ég froskakjöt í salati.
Kjötið var svona eins og hlaup
einhvern veginn. Það var ekk-
ert mjög frekt á bragðið en
mjög skrítið undir tönn.
MATGÆÐINGURINN VALUR FREYR EINARSSON LEIKARI
Salat með froskakjöti skrítnasta máltíðin