Fréttablaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 60
7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
Heimsborgarinn og rit-
höfundurinn Sigurður A.
Magnússon hefur sitthvað
að athuga við frásögn fagur-
kerans Ármanns Reynis-
sonar af ferðum sínum um
Indland. Ármann gefur ekki
tommu eftir.
„Ármann Reynisson mun eiga
Íslandsmet í sjálfsauglýsingu og
allt í lagi með það. Hins vegar
blöskra mér rangfærslurnar sem
hann lætur hafa eftir sér,“ segir
Sigurður A. Magnússon rithöfund-
ur. Vinjettuhöfundurinn segist
standa við allt sem hann hefur
sagt um Indlandsferð sína.
Á mánudag birti Fréttablaðið
spjall við Ármann undir fyrir-
sögninni „Leggur Indland að
fótum sér“. Ármann gerir því
skóna að hafa einn Íslendinga
ávarpað Banaras Hindu Univer-
sity í hinni heilögu borg Varanasi.
„Ég ferðaðist vítt og breitt um
Indland í boði indverskra
stjórnvalda í fjóra mánuði
1960-61 og skrifaði um ferða-
lagið bókina Við elda Indlands.
Þar segir að ég hafi haldið tvo
fyrirlestra við háskólann í Var-
anasi, eða Benares, annan um
íslenska þjóðveldið, hinn
um íslenskar fornbókmenntir,“
segir Sigurður.
Ármann segir sitt hvað að
ávarpa háskóla og halda fyrirlest-
ur. „Þar sló ég tvær flugur í einu
höggi. Móttökunefndin þekkti ekk-
ert til þess að nokkur Íslendingur
hefði ávarpað skólann né haldið
fyrirlestur. Verð ég ekki að reiða
mig á þær upplýsingar?“ spyr
Ármann.
Ævintýraleg för Ármanns um
Indland leiddi hann á Landsbóka-
safn Indlands þar sem hann fann
vinjettuútgáfuna I-VII „sem heita
þá einu bækur íslensks rithöfund-
ar í eigu safnsins“. Það segir Sig-
urður af og frá: „Ég kom þar í
Kalkútta, eða Kolkata samkvæmt
Ármanni, árið 1988. Fann bók
mína Northern Sphinx – Iceland
and the Icelanders from Settlem-
ent to Present. Og þar voru einnig
nokkrar bækur eftir Halldór Lax-
ness bæði á ensku og hindí,“ segir
Sigurður. Og bætir því við að
vera megi að komið hafi viðtal
við Ármann í Malayala-
Manorama. „En það
er ekki, fremur en
önnur lókalblöð
á Indlandi
„eitt virtasta
og upplags-
hæsta blað“
landsins, langt í frá. Það eru blöð
gefin út á ensku í Delhi, Bombay
og Kalkútta sem eru „upplags-
hæst“,“ segir Sigurður sem vill
halda staðreyndum til haga.
Ármann spyr hvort hann verði
ekki að taka dr. R. Ramachandran
landsbókavörð, sem þekki ekki til
íslenskra bóka á safninu utan vinj-
ettanna, trúanlegan? „Þekkt er að
bækur gefnar út á 20. öld morkni
niður á 20-40 árum þar sem pappír
bókanna er svo lélegur. Gæti það
verið skýringin?“ spyr Ármann
enn. Segir vinjetturnar hins vegar
á mjög vönduðum pappír sem end-
ist um aldir. Og gefur ekki tommu
eftir: Segir Manorama stofnað
1888, elsta og virtasta blað lands-
ins og talið með þeim upplags-
hæstu. „Verð ég ekki að taka mark
á forstjóra útgáfunnar? Hefur Sig-
urður komið til Kerala? Er
ekki orðið langt um liðið
síðan Sigurður var á
Indlandi?“
jakob@frettabladid.is
„Ég er ótrúlega góð í
íshokkíi. Ég hef spilað
það síðan ég var fimmt-
án en fólk veit ekki að
ég er varnarmaður
í hokkí. Mér finnst
gaman að halda
aftur af fólki, ýta
því niður.“
PARIS HILTON leynir á sér.
„Við kyrjum á hverjum degi.“
COURTNEY LOVE nýtur aðstoðar búdda-
trúarmannsins Orlandos Bloom við að
halda sér frá vímuefnum.
„Það hefur verið erfitt að
umgangast suma vinina
því þeir hafa valið
sér aðra leið. En það
er mjög erfitt, ég er
þannig manneskja að
ég vil treysta öllum.“
LINDSAY LOHAN kveðst feta
nýja braut í lífinu.
folk@frettabladid.is
Forsala miða á umfangsmikla
bítlatónleika í Laugardalshöll 22.
mars er hafin. Á tónleikunum mun
Rokksveit Jóns Ólafssonar ásamt
fjörutíu hljóðfæraleikurum úr Sin-
fóníuhljómsveit Íslands flytja
bítlaplötuna Sgt. Pepper´s Lonely
Hearts Club Band í heild sinni.
Fram koma söngvararnir Björg-
vin Halldórsson, Stefán Hilmars-
son, Daníel Ágúst Haraldsson, Eyj-
ólfur Kristjánsson, Sigurjón Brink
og KK. Mikið verður lagt í umgjörð
tónleikanna. Verður hljóð- og ljósa-
hönnun eins og best gerist á tón-
listarviðburðum erlendis.
Sgt. Pepper’s Lonely Hearts
Club Band, sem kom út 1967, er
áttunda plata Bítlanna en hún
hefur af mörgum verið álitin ein
merkasta og áhrifamesta hljóm-
plata allra tíma. Platan varð gríð-
arlega vinsæl og vakti strax
athygli tónlistarheimsins fyrir
magnaðar lagasmíðar, frumleika
og nýjungar í upptökutækni.
Almenn miðasala á tónleikana
hefst 12. febrúar kl. 10.00 á midi.
is. Miðaverð er 9.000 kr. fyrir sæti
á A-svæði, 8.000 kr. fyrir B-svæði
og kr. 7.000 fyrir C-svæði. Aðeins
er selt í sæti og er miðaframboð
takmarkað.
Styttist í bítlastuð
BÍTLARNIR Forsala á bítlatónleikana í Höllinni er hafin.
Vinjettuhöfundur á Indlandi
sagður vaða í villu og svíma
ÁRMANN Gefur ekki tommu
eftir þrátt fyrir athugasemdir
Sigurðar. Þar mætast
stálin stinn.
SIGURÐUR A. Blöskrar
rangfærslurnar sem
hafðar eru eftir
Ármanni um ævintýra-
lega Indlandsför hans.