Fréttablaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 66
54 7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
HANDBOLTI Í gær varð endanlega
ljóst að ekkert yrði af því að Sví-
inn Magnus Andersson tæki við
íslenska landsliðinu. Félag hans,
FCK, var ekki hrifið af því að hann
tæki við íslenska landsliðinu sam-
hliða þjálfun FCK og sérstaklega
þar sem Ísland gæti verið á Ólymp-
íuleikum næsta sumar en leikarn-
ir koma beint ofan í undirbúning
félagsliða Evrópu fyrir komandi
tímabil.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins mun HSÍ næst beina sjón-
um sínum að Degi Sigurðssyni þó
svo að nokkrir erlendir þjálfarar
séu búnir að hafa samband og sýna
starfinu áhuga.
Dagur hefur helst íslenskra
þjálfara verið nefndur í starfið
ásamt þeim Aroni Kristjánssyni
og Geir Sveinssyni. Þeir Aron og
Geir sögðust ekkert hafa heyrt í
HSÍ en Dagur játti því að hafa átt
spjall við forráðamenn sambands-
ins fyrir um tíu dögum.
Það mun væntanlega koma í ljós
á næstu dögum hvort Dagur og
HSÍ nái saman en Dagur hefur
ákveðnar hugmyndir um hvernig
skal sinna starfinu. Svo hefur
hann reyndar sagt að hann sé ekki
í leit að starfi enda nýtekinn við
spennandi starfi sem fram-
kvæmdastjóri Vals.
Það leyndi sér ekki að Magnus
Andersson var nokkuð svekktur
með að hlutirnir höfðu ekki gengið
upp er Fréttablaðið náði tali af
honum í gær.
„Það er alveg ljóst að ég verð
ekki næsti landsliðsþjálfari
Íslands. Ég get staðfest það núna,“
sagði Andersson en hann hefur
ekkert viljað tjá sig um viðræður
sínar síðustu daga en fékkst þó til
þess að segja nokkur orð í gær.
„Ég er samningsbundinn FCK
og get ekki tjáð mig mikið um
þessar viðræður. Ég get samt ekki
neitað því að mér fannst starfið
mjög spennandi og hafði mikinn
áhuga á því. Ég hefði ekki getað
sinnt landsliðsþjálfarastarfinu af
fullum krafti sökum skuldbind-
inga minna við FCK og ég held að
það sé betra fyrir HSÍ að fá ein-
hvern sem getur sinnt starfinu
100 prósent. Við sjáum samt hvað
gerist í framtíðinni en tíminn
hentar mér ekki því miður núna,“
sagði Andersson og vildi ekki loka
hurðinni á þann möguleika að
þjálfa landsliðið síðar. henry@fretta-
Andersson út – Dagur inn
Það er endanlega útséð með að Svíinn Magnus Andersson taki við íslenska
handboltalandsliðinu. Það staðfestir Andersson. HSÍ mun nú beina sjónum sín-
um að Degi Sigurðssyni sem er eini íslenski þjálfarinn sem HSÍ hefur talað við.
DAGUR NÆSTUR Í RÖÐINNI HSÍ mun nú freista þess að ná samningum við Dag Sig-
urðsson eftir að ljóst var að Magnus Andersson gæti ekki tekið við landsliðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR & FCK
Iceland Express-deild kvk:
KR-Grindavík 81-71
Stig KR: Monique Martin 35, Hildur Sigurðardótt-
ir 14, Sigrún Ámundadóttir 12, Helga Einarsdóttir
9, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 8, Guðrún Ósk
Ámundadóttir 3.
Stig Grindavíkur: Tiffany Roberson 24, Petrún-
ella Skúladóttir 10, Ólöf Helga Pálsdóttir 9, Íris
Sverrisdóttir 9, Ingibjörg Jakobsdóttir 8, Joanna
Skiba 5, Lilja Ósk Sigmarsdóttir 4, Jovana Lilja
Stefánsdóttir 2.
Fjölnir-Valur 69-87
Stig Fjölnis: Slavica Dimovska 23 (9 frák.,
8 stoðs.), Birna Eiríksdóttir 19, Gréta María
Grétarsdóttir 10 (10 frák., 4 stolnir), Efemía Sig-
urbjörnsdótir 8, Hrund Jóhannsdóttir 4, Bryndís
Gunnlaugsdóttir 3, Aðalheiður Óladóttir 2.
Stig Vals: Molly Petermen 27 (11 frák., 6 stoðs.),
Tinna Björk Sigmundsdóttir 24 (hitti úr 6 af 8
3ja stiga, 6 stolnir), Lovísa Guðmundsdóttir 15 ,
Þórunn Bjarnadóttir 10 , Berglind Ingvarsdóttir 7,
Hafdís Helgadóttir 2, Eva Dís Ólafsdóttir 2.
Hamar-Keflavík 65-76
Stig Hamars: La K. Barkus 34, Jóhanna
Sveinsdóttir 8, Hafrún Hálfdánardóttir 7, Fanney
Guðmundsdóttir 6, Írís Ásgeirsdóttir 3.
Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 18,
Susanne Bierner 15, TaKesha Watson 13, Margrét
Sturludóttir 11, Ingibjörg Vilbergsdóttir 7, Rann-
veig Randversdóttir 7, Pálína Gunnlaugsdóttir 5.
Vináttulandsleikir:
England-Sviss 2-1
Jenas, Wright-Phillips - Derdiyok.
Tyrkland-Svíþjóð 0-0
Króatía-Holland 0-3
- Heitinga, Huntelaar, Hesselink.
Pólland-Tékkland 2-0
Lobodzinski, Lewandowksi.
Austurríki-Þýskaland 0-3
- Hitzsperger, Klose, Gomez.
Írland-Brasilía 0-1
- Robinho.
Ítalía-Portúgal 3-1
Toni, Pirlo, Quagliarella - Quaresma.
Wales-Noregur 3-0
Fletcher, Koumas 2.
Spánn-Frakkland 1-0
Capdevila.
ÚRSLIT
KÖRFUBOLTI KR-konur unnu
öruggan tíu stiga sigur á Grinda-
vík, 81-71, í DHL-Höllinni í gær.
Sigurinn færði Keflavík einnig
tveggja stiga forskot á toppnum
eftir 11 stiga sigur liðsins í
Hveragerði, fyrsta útisigurinn í
deildinni í rúmar ellefu vikur.
Monique Martin lék meidd í
þessum leik en lét það þó ekki
hægja meira á sér en að hún
skoraði 35 stig í leiknum en
annars voru margir leikmenn
liðsins að spila vel í gær. Grinda-
víkurstúlkur voru kannski
komnar með hugann við bikarúr-
slitaleikinn því liðið náði aldrei
takti í leiknum í gær.
KR hafðið frumkvæðið allan
tímann, var yfir 24-18 eftir fyrsta
leikhluta, með 12 stiga forskot í
hálfleik, 45-33 og KR-konur náðu
síðan mest 17 stiga froskoti í
lokaleikhlutanum áður en
Grindavíkurliðið náði að laga
stöðuna í lokin. - óój
Iceland Express-deild kvenna:
Öruggur sigur
hjá KR
MÖGNUÐ MONIQUE Monique Martin
lék meidd í gær en skoraði samt 35 stig.
FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
FÓTBOLTI Það var talsverð eftir-
vænting fyrir leik Englendinga og
Sviss á Wembley í gær enda var
Ítalinn Fabio Capello að stýra
enska landsliðinu í fyrsta skipti
síðan hann tók við liðinu af Steve
McClaren.
Leikurinn fer nú seint í
sögubækurnar fyrir leiftr-
andi fótbolta og mikið
skemmtanagildi. Leikur-
inn var daufur og tilþrifa-
lítill. Til að mynda hafði
lítið gerst í fyrri hálfleik
áður en Jermaine Jenas
kom enska liðinu yfir
skömmu fyrir hlé.
Markið skrifast að
stórum hluta á Joe
Cole sem lagði glæsi-
lega upp fyrir Jenas
sem gat ekki annað
en skorað.
Englendingar virtust
hafa öll tök á leiknum
áður en táningurinn
Erden Derdiyk jafnaði
metin eftir um klukku-
tíma leik. Hann sneri
þá vel í teignum og
lagði boltann smekk-
lega fram hjá David James sem
stóð í enska markinu. Jöfnunar-
markið virtist kveikja á enska lið-
inu því aðeins þremur mínútum
síðar lagði fyrirliðinn Steven
Gerrard upp laglegt mark
fyrir Shaun Wright-Phillips
sem var nýkominn inn á sem
varamaður.
Eftir markið datt
leikurinn niður á
nýjan leik. Liðunum
gekk lítið sem ekkert
að skapa sér færi og Eng-
lendingar hrósuðu sigri
sem var frekar fyrirhafn-
arlítill.
Óskabyrjun hjá Capello
en það duldist engum sem á
horfði að hann á mikið verk
fyrir höndum að reisa þetta
enska landslið við en það
hefur lítið getað í háa herrans
tíð. - hbg
Fyrsti leikur Capellos með enska landsliðið:
Capello byrjar með
góðum sigri á Sviss
HARÐUR Fabio Capello lét
nokkrum sinnum vel í sér heyra
á hliðarlínunni en reyndi að vera
sem jákvæðastur í sínum fyrsta
leik. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FYRSTA MARKIÐ Jermaine Jenas skorar hér fyrsta mark Englands undir stjórn Fabios
Capello. Joe Cole átti mestan heiður af markinu en hann lagði það glæsilega upp.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES