Fréttablaðið - 07.02.2008, Qupperneq 70
58 7. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT
2. lítið 6. frá 8. átti heima 9. yfirgaf
11. málmur 12. stoðgrind 14. samfok-
inn fönn 16. utan 17. knæpa 18. að
20. bardagi 21. blóðsuga.
LÓÐRÉTT
1. slitrótt tal 3. í röð 4. gutla 5. tæki
7. pedali 10. segi upp 13. draup 15.
setja 16. erlendis 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lágt, 6. af, 8. bjó, 9. fór,
11. ál, 12. stell, 14. skafl, 16. út, 17.
krá, 18. til, 20. at, 21. igla.
LÓÐRÉTT: 1. tafs, 3. áb, 4. gjálfra, 5.
tól, 7. fótstig, 10. rek, 13. lak, 15. láta,
16. úti, 19. ll.
„Þetta eru ekkert óljósar hótanir.
Álit ráðuneytisins liggur fyrir,“
segir Guðlaugur Þór Þórðarson
heilbrigðisráðherra, aðspurður
hvort tóbakslögin séu ekki einfald-
lega gölluð með tilliti til viðurlaga
þeirra. Og helst virðist sem aðgerð-
ir gegn krám felist í sviptingu vín-
veitingaleyfis.
Meðan allt logaði í Reykjavík,
borgaraleg óhlýðni gesta á krám
sem hafa kveikt sér í sígarettu
þrátt fyrir tóbakslögin, var heil-
brigðisráðherra staddur í Svíþjóð.
Hann er nýlega kominn heim og
þetta mál er meðal annarra á hans
borði. Ekki er að heyra að vertar,
né gestir þeir sem telja tóbakslög-
in hrákasmíð, eigi sér bandamann
í Guðlaugi Þór, Þó hann taki það
fram að hann taki ávallt við góðum
ábendingum. Hann vitnar í álit
ráðuneytisins, sem sé skýrt, en þar
segir að lögin séu fullnægjandi og
veiti eftirlitsstjórnvöldum heim-
ildir til að beita eftirlitsúrræðum.
Hilmar Birgisson, lögmaður
Barsins við Laugaveg 22, hefur
bent á að ákvæði laga 6/2002 um
tóbaksvarnir sem fjallar um viður-
lög á brotum mæli
eingöngu fyrir
um heimild til að
sekta þann sem
reykir en ekki
umráðamann
húsakynna.
Guðlaugur Þór gefur í sjálfu sér
ekki mikið fyrir það og telur ljóst
að eina leiðin til að lögin virki sé að
ábyrgðin sé hjá vertum. Þannig sé
það og ráðherra vísar á heimasíðu
ráðuneytisins þar sem sérfræðing-
ur fari yfir málið. „Ég held að eng-
inn véfengi það sem þar segir.“
Jón Magnússon hyggst leggja
fram, ásamt fleiri þingmönnum,
frumvarp þar sem gert er ráð fyrir
því að lögin verði rýmkuð með til-
liti til þess að krár geti komið upp
reykherbergjum. Meðal þeirra
sem látið hafa uppi stuðning við
slíku er Pétur Blöndal, Sjálfstæð-
isflokki. Guðlaugur sér ekki fyrir
sér að hann muni ljá því frumvarpi
atkvæði sitt. Hefur ekki séð það og
segir reyndar sér sýnast að frum-
varpið sé ekki á leiðinni.
„Ég greiddi atkvæði með tób-
akslögunum á sínum tíma eins og
flestir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins. Hugmyndafræðilega
byggir það á því að reykingar
snerta þriðja aðilann.“
Guðlaugur Þór segist, þó það
snerti ekki þetta mál beinlínis,
hafa fengið mikil viðbrögð við
reykherbergi sem finna má í húsi
Alþingis. „Þó heimilt sé gagnvart
lögum með undanþágum að komið
sé upp reykingaaðstöðu fyrir
starfsfólk finnst mér fáránlegt að
þingið sé með sitt eigið reykher-
bergi. Einhvern veginn finnst mér
að löggjafasamkoman verði að
ganga á undan með góðu for-
dæmi.“
jakob@frettabladid.is
GUÐLAUGUR ÞÓR: VERTAR EIGA EKKI BANDAMANN Í RÁÐHERRA
Ráðherra fordæmir reyk-
herbergi alþingismanna
GUÐLAUG-
UR ÞÓR
ÞÓRÐARSON
Tekur ekki
undir þau
sjónar-
mið að
tóbaks-
lögin séu
hráka-
smíð.
BARINN Umdeilt reykherbergi Barsins
sem vakti upp borgaralega óhlýðni gegn
tóbakslögum.
Í tilkynningu á myspace-
síðu sinni segjast
meðlimir Jakobínarínu
ætla að ganga
menntaveginn nú
þegar sveitin sé að
leggja upp laupana.
Miðað við áralanga
reynslu þeirra úr
tónlistarbransanum
mætti ætla að þeir
hyggi á háskólanám
en því fer fjarri lagi.
Framhaldsskólanám er fram
undan hjá þeim enda voru strákarnir
einungis á grunnskólaaldri þegar
hljómsveitin sló í gegn er hún vann
Músíktilraunir.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Egill „Gillz“ Einarsson, foringi og
einkaþjálfari Mercedes Club, flytjanda
Hóhóhó, we say heyheyhey, er með
böggum hildar. Undanúrslitakvöldið í
Eurovision nálgast og honum
finnst ekki ganga nógu vel
að koma sínum mönnum í
rétt form. Gaz-maðurinn
svonefndi slasaðist á
æfingu en mun líklega
ná að slá bumburnar
en Partý-Hanz, sem
kallast rindill við hlið
hans, hefur ekki náð
að massa sig upp svo Agli líki. En
það var fyrst þegar Gilzenegger greip
Gaz-mann glóðvolgan við að háma í
sig bollur að það fauk í foringjann og
hefur hann nú heraga á sínum mönn-
um. Því hann ætlar til Serbíu í maí.
Sjónvarpsstjörnurnar Egill Helga-
son og Ingvi Hrafn Jónsson verða
stöðugt líkari með árunum. Báðir
dvelja þeir langdvölum á erlendri
grundu og báðir komast að þeirri nið-
urstöðu, Egill á vefsíðu sinni og Ingvi
á ÍNN, að Hillary og Obama muni
sennilega fara saman í framboð,
annað þá sem varaforsetaefni. Þetta
les Ingvi úr líkamstjáningu þeirra og
vitnar í bandaríska sérfræðinga en
Egill telur að þau saman
í Hvíta húsinu myndu
breyta viðhorfum heims-
byggðarinnar
til Bandaríkj-
anna.
„Ég fæ mér AB-mjólk með múslí
og vatnsglas með sólhattardrop-
um og stundum líka hvönn.
Þetta styrkir ónæmiskerfið,
sérstaklega núna þegar kvefið
er mikið í gangi. Svo drekk ég
espresso-kaffi og fæ mér mjólk-
urkex með.“
Lára Stefánsdóttir dansari.
Ljósmyndarinn Rebekka Guðleifs-
dóttir, sem hefur vakið mikla
athygli á vefsíðunni flickr.com,
uppgötvaði nýlega að myndir
hennar væru seldar í leyfisleysi á
síðunni iStockphoto, í eigu Getty
Images. Um ræðir vinsælan
myndabanka, þar sem notendur
setja myndir sínar inn og aðrir
borga fyrir niðurhal og afnot af
þeim. Þar fann Rebekka notanda
sem bauð alls 25 af myndum
Rebekku til sölu. „Þetta eru ekki
háar upphæðir, en svona má bara
ekki viðgangast,“ segir Rebekka,
sem lenti í svipuðum aðstæðum á
síðasta ári, þegar breska fyrir-
tækið Only-Dreemin seldi myndir
hennar í leyfisleysi.
„Ég hafði samband við Mynd-
stef, og setti líka „screenshot“ af
síðunni inn á Flickr-síðuna mína
og varaði aðra Flickr-notendur við
því að þarna gætu verið fleiri
stolnar myndir,“ útskýrir Rebekka.
Hún segir ótækt að fólk haldi því
fram að notendur Flickr geti sjálf-
um sér um kennt, fyrst þeir hafi
birt myndir á netinu. „Staðreynd-
in er einfaldlega sú að þetta er
hreint og klárt lögbrot. Þótt þú
hengir myndir upp til sýnis í gall-
eríi þýðir það ekki að hver sem er
megi taka þær, þó að það sé ger-
legt,“ segir hún.
iStockphoto hafði samband við
Rebekku og harmaði uppákom-
una. Lokað var á umræddan not-
anda og myndirnar teknar niður.
Rebekka vonar að málið verði til
þess að aðstandendur svipaðra
vefsíðna taki harðar á þeim sem
brjóta höfundarrétt svo gróflega.
„Ef það verður viðtekin venja að
horfa fram hjá þessu munu lista-
menn á endanum missa alla von
um að geta lifað af því sem þeir
gera, því öllum finnst sjálfsagt að
stela vinnu þeirra,“ bætir hún við.
- sun
Myndir Rebekku seldar í leyfisleysi
MÁ EKKI VIÐGANGAST Myndir Rebekku
Guðleifsdóttur voru seldar í leyfisleysi á
síðunni iStockphoto. Hún segir slík brot
á höfundarrétti ekki mega viðgangast.
MYND/REBEKKA GUÐLEIFSDÓTTIR
Mörg miðbæjarrottan var harmi slegin
þegar Súfistanum í Máli og menningu við
Laugaveg var lokað. Nú, eftir tæplega
mánaðarlanga lokun, geta kaffiþambarar
tekið gleði sína á ný því kaffihúsið verður
formlega opnað í kvöld klukkan átta. Nú
heitir það Te og kaffi.
„Margir hafa komið við í búðinni og haft
áhyggjur af því að það verði bara boðið upp
á götumál úr pappa,“ segir Kristján Freyr
Halldórsson hjá markaðsdeild Pennans.
„Kaffidrykkirnir verða vitaskuld bornir
fram í postulínsbollum og þeir sem kjósa að
taka bollann með sér út fá götumál. Ég legg
til að fólk tileinki sér þetta heiti á „take-
away“-bollanum, götumál. Tónlistarmaður-
inn KK kenndi mér þetta. Einnig verður
boðið upp á ljúffengar tertur í engu minna
úrvali en var á Súfistanum, heita rétti,
súpur og hollustukökur. Sem sé, allt sem
prýðir alvöru kaffihús. Og svo er staðurinn
gjörbreyttur og miklu flottari en hann var.“
Löng hefð ríkir fyrir menningaruppákom-
um á þessum stað og Kristján segir að það
verði engin breyting þar á. Strax við
opnunina verður metnaðarfull dagskrá að
sögn Kristjáns. „Við fáum góða gesti í
heimsókn og einnig mun hið hæfileikaríka
starfsfólk bókabúðarinnar halda erindi í
tilefni dagsins. Árni Einarsson, fyrrverandi
verslunarstjóri Máls og menningar, fram-
kvæmdastjóri og hóteleigandi, ætlar að
stikla á stóru í sögu þessa fræga húss og
síðast en ekki síst fáum við hljómsveitina
Rússíbana í heimsókn. Þeir hafa ekki spilað
opinberlega lengi en spiluðu oft í bókabúð-
inni forðum. Allir gestir kvöldsins fá svo
fría kaffidrykki og meððí.“
Boðið verður upp á ýmis tilboð í bókabúð-
inni og kaffi fyrir gesti og gangandi þessa
fyrstu opnunarhelgi nýja kaffihússins.
- glh
Nýtt kaffihús hjá Máli og Menningu
IÐNAÐARMENN HAMAST VIÐ AÐ INNRÉTTA NÝJA KAFFI-
HÚSIÐ Kristján Freyr lofar að allt verði tilbúið í kvöld.
EIGENDUR BARSINS Hafa
verið yfirlýsingaglaðir í
skjóli álits lögmanns síns
en njóta ekki stuðnings
ráðherra.
Nr. 6 - 2008
Verð 659 k
r. 7. feb. – 13
. feb.
Gerir
lífið
skem
mtile
gra! Flengjandi
fjör á árshá
tíð:
Sjáið
myndir
nar!
BÆJARSTJÓR
AHJÓNIN
SKILJA!
Magni og Eyrún:
Bara í
Auðmaðurinn
Róbert Wessman
n:
Útför Þórdísar Tin
nu:
BARÁTTUKONA KVÖDD
!
Á KAFI Í
GRÆNMETI!
VISSI EKKI AÐ
HÚN VÆRI ÓLÉTT!
Ótrúlegten satt!
9
7
7
1
0
2
5
9
5
6
0
0
9
Erna Gunnþórs ko
min
5 mánuði á leið:
Helga Vala
og Grímu
r Atlason:
BDSM
Í BISKUPSTUNGUM!Um land allt!
Nýr vefur » Á hvað ert þú að hlusta?
„Sextán
og þú skalt sjá
mig í bíó...“
- 16, Grafík, Höf: Helgi Björnsson