Fréttablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 2
2 15. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR Ferskt sushi alla föstudaga KJARAMÁL Aðilar vinnumarkaðar- ins urðu fyrir þungum vonbrigð- um með þá ákvörðun Seðlabank- ans að halda stýrivöxtum óbreyttum. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, SA, sagði að ekki væri hægt að búa við þetta ástand lengur. „Þetta hefur gengið langt úr hófi fram allt of lengi,“ sagði hann. Forseti Alþýðusambands Íslands, ASÍ, vonaðist eftir lækk- un þó að hún yrði kannski ekki stór í þetta skiptið. „Peningastefna Seðlabankans hefur komið sér mjög illa fyrir atvinnulífið án þess að hafa haft neitt að segja gegn verðbólgunni,“ segir Vilhjálmur. „Hún hefur vald- ið kostnaði fyrir atvinnulífið en ekki skilað neinum árangri. Í kjarasamningum reynum við að brjótast út úr þessum verðbólgu- vítahring með því að forgangsraða og ná utan um lægstu launin og þá sem hafa setið eftir. Sú byrði lend- ir harkalega á sömu fyrirtækjum og hafa orðið fyrir miklum búsifj- um vegna peningastefnunnar. Þess vegna er okkur mikið í mun að komast út úr þessari sjálf- heldu,“ segir hann og hvetur til þess að samkomulag milli ríkisins og Seðlabankans verði endurskoð- að eða lögum um Seðlabankann breytt. „Ef Seðlabankinn hlustar ekki og sér ekki og heldur stefnu sinni óbreyttri sama hvað gerist þá verður að grípa í taumana.“ Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir að ákvörðun Seðlabank- ans komi kjarasamningum ekki úr skorðum en kunni að hafa áhrif á ástandið fram undan. „Við teljum okkur vera að ganga frá kjara- samningum sem eru þess eðlis að þeir eiga að tryggja stöðugleika og lækkandi verðbólgu. Það er markmiðið. Það mun reyna gríðar- lega mikið á stjórnvöld og Seðla- bankann í framhaldinu. Við ráðum ekki við þetta ein. Í því samhengi skiptir þetta auðvitað máli.“ - ghs Framkvæmdastjóri SA varð fyrir djúpum vonbrigðum með stýrivextina: Grípa verður í taumana VILHJÁLMUR EGILSSON Fram- kvæmdastjóri SA. GRÉTAR ÞORSTEINSSON Forseti ASÍ. ÍSRAEL, AP Mariam Amash týndi nafnskírteininu sínu fyrir stuttu. Þegar hún kom á bæjarskrifstof- urnar í þorpinu sínu í Ísrael til að sækja um nýtt skírteini kom í ljós að hún var skráð fædd árið 1888. Sjálf staðfestir hún það. Reynist það rétt, þá er Amash elsta manneskja heims, 120 ára gömul. Hún á tíu syni og eina dóttur, sem er að nálgast nírætt. Barnabörnin eru 120 og barna- barnabörnin 250. Hún er við góða heilsu og fer í göngutúr á hverjum degi. - gb Háöldruð kona í Ísrael: Segist sjálf vera 120 ára gömul MEÐ NÝJA SKÍRTEINIÐ Mariam Amash man vel eftir því þegar Tyrkir réðu lögum og lofum í Palestínu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Hæstiréttur ómerkti í gær sýknudóm héraðsdóms í máli manns sem ákærður var fyrir að hafa nauðgað konu á salerni á Hótel Sögu í maí síðastliðnum. Málinu hefur verið vísað heim í hérað til aðalmeðferðar. Í ályktun héraðsdóms segir meðal annars að það að maðurinn hafi ýtt konunni inn í salernisklefa, læst klefanum innan frá, dregið niður um hana, ýtt henni niður á salernið og síðan niður á gólf, geti ekki talist ofbeldi í skilningi fyrstu málsgreinar 194. greinar almennra hegningarlaga og nægi það eitt til að sýkna manninn. Þessu er Hæstiréttur ósammála. - jse Hæstiréttur: Nauðgunarmál heim í hérað STJÓRNMÁL Samfylkingin reynist með mest fylgi í skoðanakönnun sem Talnakönnun gerði fyrir vefsvæðið Heimur.is. Sögðust 38,8 prósent styðja flokkinn, sem er 12 prósentum meira en flokkurinn fékk í síðustu alþingiskosningum árið 2007. Sjálfstæðisflokkurinn fær tæp 34 prósent í könnuninni sem er þremur prósentum minna en í kosningunum. Vinstri grænir fá 11,9 prósent í könnuninni, Framsóknarflokkur 8,5 prósent og Frjálslyndir 6,7 prósent. Hringt var í um 690 manns á dögunum 5. til 7. febrúar og tóku 440 afstöðu. Síðasta dag könnunar- innar var REI-skýrslan birt. - jse Skoðanakönnun: Samfylkingin með mesta fylgið SAMGÖNGUR „Við erum að skoða þetta mál,“ segir Amund Utne, yfirmaður samkeppnis- og ríkisstyrkjadeildar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Könnun ESA snýr að því hvort þátttaka ríkisins í nýjum sæstreng milli Íslands og Danmerkur, Danice, standist samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES). Danice-strengurinn er meginforsenda þess að hér verði reist netþjónabú. Byrja á að leggja hann í sumar og á hann að vera tilbúinn að ári. Amund Utne segir að athugasemd hafi borist frá íslenska ríkinu um að kanna málið. Það hefur Fréttablaðið fengið staðfest í samgönguráðuneytinu. Utne bætir því við að teljist ríkið vera venju legur fjárfestir, sé ekki tilefni til athugasemda. ESA fékk erindið í hendur í janúar, eftir því sem Utne segir. Stofnunin hefur tvo mánuði til að ýmist ljúka málinu eða kalla eftir frekari gögnum. Samgönguráðuneytið taldi hins vegar í október að enginn vafi væri á því að þátttaka ríkisins í Danice stæðist samning- inn um EES. Úr samgönguráðuneytinu fást þær upplýsingar að nýleg þátttaka orkufyr- irtækja í Danice kalli á aðkomu ESA. Óvíst er hvenær athuguninni lýkur. Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur og Hitaveita Suðurnesja eiga nú sameiginlega ráðandi hlut í Farice. Gengið var frá samningum um það fyrir jól. Lagningu annars sæstrengs hingað frá Írlandi, sem til stóð að yrði tilbúinn í haust, hefur verið frestað. Að sögn forstjóra Hibernia Atlantic þykir það lítt spennandi tilhugsun að standa í samkeppni við þessa aðila og ríkið eins og er. - ikh Samgönguráðuneytið skiptir um skoðun á því hvort sæstrengur standist EES-samninginn: ESA skoðar þátt íslenska ríkisins í Danice BORGARMÁL Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, telur ólíklegt að einhver borgar- fulltrúa flokksins hafi lekið REI- skýrslunni til fjölmiðla til að koma höggi á Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson. „Mér þykir það afar ótrúlegt, ég trúi því ekki upp á neinn að vera með ásetning í þá veru,“ segir hún. „Ég tel að þegar svona leki verður sé það miklu frekar vegna spennu sem fylgir því að geta átt frumkvæði í umræðunni.“ Hún segir enn fremur líklegra að einhver úr minnihlutanum hafi lekið henni. REI skýrslan lak til fjölmiðla degi áður en hún var kynnt borgarráði og var ítarlega fjallað um hana og þátt Vilhjálms í REI- málinu í Kastljósi sama dag. - jse Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir: Minnihlutinn lak skýrslunni ÞORBJÖRG HELGA VIGFÚS- DÓTTIR Gísli, var gaurinn á skallan- um? „Það má segja að það hafi verið jafnt á komið með okkur, þótt það hafi að vísu verið hvort sitt tilbrigðið við sama stef.“ Gísli Einarsson sjónvarpsmaður lenti í því fyrir utan skemmtistaðinn Broadway um helgina að ókunnur maður taldi fullvíst að Gísli væri Dr. Gunni. AMUND UTNE Yfir- maður ríkisstyrkja- nefndar ESA segist vera að athuga hvort þátttaka ríkisins í nýjum sæstreng milli Íslands og Danmerkur standist EES-samn- inginn. SJÁVARÚTVEGUR Samráðshópur um loðnurannsóknir kom saman í gær til að ræða slæmt ástand stofnsins. Var niðurstaðan sú að fá útgerðar- menn til að halda ekki til loðnu- veiða fyrr en frekari rannsóknir hefðu verið gerðar á stofninum en í dag verður svo ákveðið hvort farið verði fram á formlega veiðistöðv- un þar til þeim hefur verið lokið. „Við erum að leggja drög að því að gera lokatilraun til að fara yfir svæðið og ná mælingum en það virðist óvenjulítið um loðnu og það er spurning hvort grundvöllurinn sem lá fyrir þegar ákvörðun um bráðabirgðakvótann var tekin sé hreinlega brostinn,“ segir Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrann- sóknarstofnunar. „Við teljum mjög mikilvægt að á meðan á þeim rann- sóknum stendur haldi menn að sér höndum við veiðar en annars er ekki loku fyrir það skotið að við förum fram á veiðistöðvun.“ Hann segir að í dag muni menn úr samráðshópnum tala sig saman og ræða við útgerðarmenn og aðra sem í hlut eiga en að því loknu verði tekin ákvörðun um það hvort farið verði fram á veiðistöðvun. Jón Eyfjörð, skipsstjóri á Sig- hvati Bjarnasyni, segir hins vegar ekkert að óttast í þessum efnum því nóg sé af loðnu. „Við vorum að fá um 600 tonn í tveimur köstum og þetta er stór og fín loðna,“ sagði hann í gær þegar hann var á heims- tími af veiðum austur af landinu. „Þarna vorum örugglega um 30 norsk loðnuskip sem einnig voru að fá nóg og þetta er á mjög stóru svæði. Ég sá hins vegar ekkert rannsóknarskip, þeir fara ein- hvernveginn alltaf á mis við loðn- una. Ég ætti eiginlega að bjóða þeim með mér í næsta túr svo þeir fái nú einhvern tíman að sjá hana.“ Jóhann segir að nýlega hafi verið rannsóknarskip verið á ferð austur af landinu. „Og þótt það veiðist eitthvað þarna nú þá efast ég um að það sé svo mikið að það breyti einhverju, annars kemur þetta allt í ljós þegar við erum búnir að fara vel yfir þetta en á meðan við erum í þessari óvissu er mikilvægt að fara varlega.“ Kvótinn sem úthlutaður hafði verið er 205 þúsund tonn og þar af koma 122 þúsund tonn í hlut íslenskra skipa. jse@frettabladid.is Loðnuvertíð blásin af Útlit er fyrir að loðnuvertíðin verði blásin af. Samráðshópur um loðnurann- sóknir kom saman í gær og ályktaði að útgerðarmenn yrðu að halda að sér höndum uns frekari rannsóknir lægju fyrir. Skipstjóri segir nóg af loðnu. LOÐNUVEIÐAR Á SIGHVATI BJARNASYNI VE Þótt Sighvatur Bjarnason hafi komið að landi með 600 tonn af vænni loðnu og um 30 norsk loðnuskip dæli henni upp fyrir austan land er allt útlit fyrir að loðnuvertíðin verði ekki meiri í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.