Fréttablaðið - 15.02.2008, Side 10
10 15. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
RÚSSLAND, AP Vladimír Pútín Rúss-
landsforseti segir nægilega mikil
völd fylgja forsætisráðherraemb-
ættinu. Hann hafi aldrei látið
hvarfla að sér að sitja áfram sem
forseti.
Þótt forsetinn ráði meginstefn-
unni hefur forsætisráðherrann
síðasta orðið í efnahagsmálum og
ber ábyrgð á varnarmálum.
„Æðsta framkvæmdavaldið í land-
inu er ríkisstjórnin,“ sagði Pútín á
blaðamannafundi í gær. „Ég ætti
ekki að gráta það heldur fagna því
að fá tækifæri til að starfa og
þjóna landi mínu á öðrum vett-
vangi.“
Þetta var síðasti stóri blaða-
mannafundurinn sem Pútín held-
ur áður en hann lætur af embætti
í maí næstkomandi.
Seint á síðasta ári lýsti Pútín
yfir stuðningi við Dimitrí Med-
vedev aðstoðarforsætisráðherra,
sem öruggt þykir að sigri í for-
setakosningunum í byrjun mars.
Pútín ítrekaði í gær að sér þætti
ekkert erfitt að afhenda Medved-
ev völdin.
„Ég hef aldrei freistast til þess
að sitja í þrjú kjörtímabil, aldrei,“
sagði Pútín. „Frá fyrsta degi
mínum í forsetastarfinu tók ég þá
ákvörðun fyrir sjálfan mig að ég
myndi aldrei brjóta gegn stjórnar-
skránni.“
Pútín sagði af og frá að hann
væri haldinn valdafíkn.
„Sumir eru haldnir fíkn í sígar-
ettur, sumir í eiturlyf og sumir í
peninga. Sagt er að versta fíknin
sé valdafíkn. Ég hef aldrei fundið
til hennar. Ég hef aldrei verið
haldinn neinni fíkn.“
Sömuleiðis vísaði hann til föður-
húsanna sögum um að hann hefði
á átta árum á forsetastóli sankað
að sér stórum fjárhæðum, eins og
sumir Rússar hafa fullyrt á
prenti.
„Þeir hafa togað það út úr nef-
inu á sér og smurt á pappír,“ sagði
Pútín og var ekkert að skafa utan
af hlutunum frekar en venjulega.
Hann viðurkenndi þó fúslega að
hann væri ríkasti maður heims.
„Það er satt,“ sagði forsetinn og
brosti breitt. „Ég er ríkasti maður
í Evrópu og í öllum heiminum. Ég
safna tilfinningum. Ég er ríkur
vegna þess að almenningur í Rúss-
landi hefur tvisvar sinnum treyst
mér fyrir æðsta embætti í svona
frábæru landi. Ég held að það séu
mestu auðæfi mín.“
gudsteinn@frettabladid.is
Pútín segist
fá nóg völd
Vladimír Pútín segist ekki gráta það að verða for-
sætisráðherra í staðinn fyrir forseti. Þvert á móti
fagni hann því að fá að starfa á nýjum vettvangi.
ALLIR HLUSTA Á PÚTÍN Síðasta blaðamannafundi Vladimírs Pútín forseta var sjón-
varpað beint um allt Rússland í gær. NORDICPHOTOS/AFP
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
www.ss.is
Endalausir
möguleikar!
Fáðu þér SS skinku á 20% afslætti
í næstu verslunarferð, leyfðu
hugmyndafluginu að njóta sín ....
brauðterta, samloka, heitur
brauðréttur, salat…
…og nú þú!
20%
afsláttur
DANMÖRK, AP Ungmenni í Kaupmannahöfn hafa kveikt
í bílum og ruslagámum, mest í hverfinu Norðurbrú en
einnig í öðrum hverfum borgarinnar.
Óeirðir hafa brotist út kvöld eftir kvöld nú í vikunni
og versnað dag frá degi.
Sautján manns voru handteknir í fyrrinótt.
Lögreglan hefur ákveðið að auka viðbúnað sinn og
kalla út meiri mannskap.
Lögreglan segir ástæður óeirðanna ekki vera á
hreinu. Sumir sem til þekkja segja ungmennin vera að
mótmæla yfirgangi lögreglunnar, og svo virðist sem
endurbirting Múhameðsteikninganna í dönskum
dagblöðum hafi ýtt undir ólguna.
Steen Munch, talsmaður lögreglunnar, vill þó ekki
staðfesta það: „Við vitum ekki nákvæmlega hvers
vegna. Hugsanlega út af leiðindum. Hugsanlega vegna
þess að lögreglan hefur á síðustu vikum lagt aukna
áherslu á að leita að hnífum. Það geta líka verið aðrar
ástæður.“ Dagblaðið Politiken skýrði í gær frá því að
lögreglan hefði verið sökuð um að beita fólk af
erlendum uppruna harðræði og nota gróft orðbragð
þar sem óspart væri vísað í litarhátt fólks. - gb
Óeirðir hafa verið kvöld eftir kvöld í Kaupmannahöfn:
Kveikt í bílum og gámum
BIFREIÐ Í LJÓSUM LOGUM Lögreglan í Kaupmannahöfn segist
ekki átta sig á ástæðum óeirðanna. NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Samtök fjárfesta hafa
sent fyrirspurn til Fjármálaeftir-
litsins (FME) um það hvort FME
hafi „bannað SPRON að birta
upplýsingar um viðskipti stjórnar-
manna“.
Er með fyrirspurninni vitnað til
sölu stjórnarmanna í SPRON á
stofnfjárbréfum eftir stjórnar-
fund félagsins 17. júlí í fyrra þar
sem verðmat Capacent á félaginu
var til umfjöllunar og ákvarðanir
voru teknar um að stefna að
skráningu félagsins á markað. Um
þetta hefur verið fjallað í Frétta-
blaðinu. Samtök fjárfesta óska
eftir því að FME vísi í lagaákvæði
máli sínu til stuðnings. - mh
Samtök fjárfesta:
Senda spurn-
ingar til FME
GRÆNLAND Lars Emil Johansen,
annar tveggja grænlensku
fulltrúanna á danska þjóðþinginu,
telur rétt að Grænland hætti að
senda fulltrúa sína á þingið í
Kaupmannahöfn.
Frá þessu er skýrt á vefsíðu
grænlenska útvarpsins KNR.
Johansen segir hótanir frá
danska Þjóðarflokknum og
dönsku ríkisstjórninni, þegar
grænlensku þingmennirnir
hugðust greiða atkvæði á móti
stjórninni, þess eðlis að Græn-
lendingar geti ekki setið undir
því.
Julianne Henningsen, hinn
grænlenski fulltrúinn í Kaup-
mannahöfn, er þó ósammála
félaga sínum. Hún vill ekki að
framkoma dönsku þingmannanna
í garð hinna grænlensku verði
látin hafa þau áhrif að Grænlend-
ingar hætti þingsetu. - gb
Grænlenskur þingmaður:
Grænlendingar
hætti þingsetu
BANGSAR MYNDA BIN LADEN Á
alþjóðlegri listsýningu í Madríd á Spáni
má sjá þetta verk eftir Mörtu Neves frá
Brasilíu. Andlit hryðjuverkaforingjans
Osama bin Laden er þarna myndað úr
leikfangaböngsum. NORDICPHOTOS/AFP