Fréttablaðið - 15.02.2008, Síða 11

Fréttablaðið - 15.02.2008, Síða 11
FÖSTUDAGUR 15. febrúar 2008 11 PAKISTAN, AP Pakistanskar öryggissveitir særðu og hand- sömuðu í byrjun vikunnar háttsettan forystumann skæru- liða talibana sem berjast gegn herafla Bandaríkjanna og Atlantshafsbandalagsins í Afganistan. Er þetta í annað skipti á tveimur vikum sem háttsettur liðsmaður talibana næst innan landamæra Pakistans. Mansoor Dadullah er bróðir múlla Dadullah, æðsta herstjórn- anda talibana, sem var felldur í maí og er hann hæstsetti liðsmað- ur talibana sem hefur verið drepinn frá innrásinni í Afganist- an 2001. Eftir dauða hans hækkaði bróðir hans í tign. - sdg Árangur pakistanskra sveita: Háttsettur tali- bani gómaður SERBÍA, AP Stjórnvöld í Serbíu hafa í undirbúningi aðgerðaáætl- un sem ganga á í gildi um leið og af því verður að þing Kosovo, sem eingöngu er skipað Kosovo- Albönum, lýsi yfir sjálfstæði héraðsins. Talið er líklegt að það gerist jafnvel á næstu dögum. Aðgerðaáætlunin miðar að því að refsa þeim ríkjum sem viðurkenna sjálfstæði Kosovo og einangra héraðið með öllum þeim ráðum sem Serbum eru tiltæk. Í hverju hinar áformuðu aðgerðir felast nánar tiltekið er annars haldið leyndu í bili. Serbíustjórn vonast til að aðgerðirnar verði til að gera sjálfstæðisyfirlýsinguna lagalega ógilda. - aa Sjálfstæði Kosovo: Serbar undirbúa refsiaðgerðir ANDSTAÐA Belgradbúar mótmæla ákvörðun Serbíustjórnar um að hafna samstarfi við ESB. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VESTFIRÐIR „Hættan á ofanflóðum í Kirkjubólshlíð og Súðavíkurhlíð er óásættanleg eins og nýleg dæmi undirstrika svo rækilega,“ segir í bókun bæjarráðs Bolung- arvíkur í vikunni. Tekur bæjarráðið þar heils hugar undir með sveitarstjórn Súðavíkur og skorar á ríkisstjórn Íslands að hefja nú þegar undirbúning að gerð jarðganga á milli Álftafjarðar og Skutuls- fjarðar. Þá minna Bolvíkingar á að umrædd leið sé hluti af vegi sem tengir norðanverða Vestfirði við þjóðveg eitt. - ovd Styðja Súðvíkinga heils hugar: Vilja jarðgöng til Súðavíkur HEILBRIGÐISMÁL Tuttugu skamm- tíma hvíldarrými fyrir aldraða skjólstæðinga heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu og þrjátíu dagvistarrými með áherslu á endurhæfingu eru hluti af sex mánaða tilraunaverkefni heil- brigðisráðuneytisins og Heilsu- verndarstöðvarinnar ehf. Var samningur þessa efnis undirritaður í vikunni. Rétt til vistunar eiga aldraðir sem að mati heimahjúkrunar þurfa tímabundna vistun vegna dægurvillu, til að hvíla umönnun- araðila, vegna skyndilegra veikinda eða ef sá sem annast viðkomandi forfallast skyndilega. - ovd Sex mánaða tilraunaverkefni: Hvíldarrými fyrir aldraða LÍBANON, AP Mikil spenna var í loftinu í Beirút, höfuðborg Líbanons, í gær þegar tvær andstæðar fylkingar söfnuðust þar saman á útifundum. Stuðningsmenn stjórnarinnar, sem aðhyllist nánari tengsl við Vesturlönd, komu saman í miðborginni til að minnast þess að þrjú ár eru liðin frá því Rafik Hariri forsætisráðherra var myrtur. Stuðningsmenn sjíahreyfingarinnar Hisbolla, sem vill nánari tengsl við Sýrland, komu hins vegar saman í suðurhluta borgar- innar í jarðarför Imads Mughniyeh, eins helsta leiðtoga hernaðararms samtakanna, sem var myrtur á þriðjudagskvöld. Hisbolla-samtökin kenna Ísraelum um morðið á Mughniyeh, sem hafði lengi verið í felum og var eftirlýstur víða um heim. Hassan Nasrallah, leiðtogi samtakanna, hét hefndarárásum á ísraelsk skotmörk utan landamæra Líbanons. „Þið hafið drepið Imad utan hins eðlilega vígvallar,“ sagði Nasrallah í ræðu við jarðar- förina, og vísar þar til þess að Hisbolla hafi til þessa aðeins barist við Ísraela innan Líbanons meðfram landamærum Ísraels. Nú sé hins vegar vígvöllurinn orðinn galopinn. Þegar hann hafði lokið ræðu sinni mátti heyra skotið úr byssum í fagnaðarskyni víða í suðurhverfum Beirútborgar. Ísraelsk stjórnvöld brugðust við með því að herða öryggisráðstafanir. - gb Ólga í Líbanon þegar tugir þúsunda héldu út á götur Beirút: Útifundir tveggja andstæðra fylkinga MORÐSINS Á HARIRI MINNST Tugir þúsunda mættu til að minnast þess að þrjú ár eru liðin síðan Rafik Hariri var myrtur. NORDICPHOTOS/AFP Nóatúni 4 • Sími 520 3000 www.sminor.is A T A R N A www.sminor.is.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.