Fréttablaðið - 15.02.2008, Page 12
12 15. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
VALENTÍNUSI MÓTMÆLT Ekki eru allir
hrifnir af Valentínusardeginum. Á Ind-
landi mótmæltu strangtrúaðir hindúar
deginum með því að kveikja í líkneski
og Valentínusarkortum. NORDICPHOTOS/AFP
ORKA „Bitruvirkjun er bara í eðlilegum farvegi og það
hefur engin ný ákvörðun verið tekin í Orkuveitunni,“
segir Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri fyrirtækisins.
Núverandi stjórn Orkuveitunnar hafi einungis
fundað einu sinni og þessi virkunaráform á Hellis-
heiði hafi þá ekki borið á góma.
Ásta Þorleifsdóttir, nýr varaformaður stjórnar
Orkuveitunnar, hefur áður lýst sig andvíga byggingu
virkjunarinnar. Hún vill þó bíða niðurstöðu umhverf-
ismats um hana; fyrr sé ekki hægt að taka upplýsta
afstöðu. Hún hafi fundið hjá Orkuveitunni ríkan vilja
til að koma til móts við þær athuga-
semdir sem komu frá almenningi.
Ásta hefur reifað hugmyndir um
að bíða með Bitruvirkjun, en setja
systurvirkjunina, Hverahlíðarvirkj-
un, í forgang. Sú er talin valda minna
umhverfistjóni.
Ólafur Áki Ragnarsson, sveitar-
stjóri í Ölfusi, svaraði þessari
hugmynd í Fréttablaðinu í gær
þannig að hann væri búinn að fá sig
fullsaddan á tíðri stefnubreytingu
hjá Orkuveitu Reykjavíkur.
Gaf hann í skyn að fyrst bíða ætti með eina virkjun
væri best að bíða með allar virkjanaframkvæmdir á
Hellisheiði. Ölfus færi með skipulagsvaldið á svæðinu
og hefði lagt of mikla vinnu í virkjunaráformin til að
taka þátt í svona „leikaraskap“.
Rætt hefur verið um að virkjanirnar sjái álveri í
Helguvík fyrir orku. Stefnubreyting Orkuveitunnar
gæti því haft áhrif á uppbyggingu þar.
Ágúst Hafberg, framkvæmdastjóri viðskiptaþróun-
ar hjá Norðuráli, svarar því hins vegar ekki hvort
fyrirtækið hafi áhyggjur af hugsanlegri stefnubreyt-
ingu.
„Við erum með samning við Orkuveituna og ég sé
enga ástæðu til þess að tjá mig um þetta mál,“ segir
hann. Hjörleifur B. Kvaran segir einfaldlega of
snemmt að kveða upp úr um áhrif þess á Norðurál og
byggingu álvers í Helguvík, yrði fallið frá Bitruvirkj-
un og Hverahlíðarvirkjun.
„Það má nú benda á að við erum líka að stækka
Hellisheiðarvirkjun og fáum 90 MW úr því,“ bendir
hann á. Fyrirtækið sé skuldbundið til að útvega
Norðuráli 100 MW í fyrsta áfanga álversins. Stækkunin
gæti því komið eitthvað til móts við þörf Norðuráls.
klemens@frettabladid.is
Enn óbreytt áform
um Bitruvirkjun
Forstjóri Orkuveitunnar segir að pólitísk stjórn fyrirtækisins hafi ekki tekið
neina nýja ákvörðun um Bitruvirkjun. „Bíðum niðurstöðu umhverfismats,“ seg-
ir Ásta Þorleifsdóttir. Hellisheiðarvirkjun gæti dugað fyrir álverið í Helguvík.
LÖGREGLUMÁL Ölvaður ökumaður
sem kom akandi niður Bústaða-
veg að gatnamótum við Reykja-
nesbraut endaði á bíl sínum í
Elliðaá um klukkan hálf ellefu í
fyrrakvöld.
Hann hafði horfið af vettvangi
þegar lögregla kom á staðinn en
hann fannst þó skömmu síðar í
Vogahverfinu og var handtekinn.
Farið var með hann á slysadeild
en meiðsl hans reyndust minni-
háttar. Bíllinn er hins vegar talinn
gjörónýtur. Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu segir ekki liggja
fyrir hvort hann hafi verið undir
áhrifum ólöglegra vímuefna. - jse
Lögreglan í Reykjavík:
Ölvaður öku-
maður ekur í á
GJÖRÓNÝTUR BÍLL Í ELLIÐAÁM Öku-
maður slapp lítið meiddur eftir óhappið.
SRÍ LANKA, AP Mannfall í röðum
óbreyttra borgara í borgarastríð-
inu á Srí Lanka hefur náð
„hrikalegum hæðum,“ að því er
talsmaður Alþjóða Rauða krossins
lét hafa eftir sér í fyrradag.
Skæruliðar Tamílatígra eru sakað-
ir um að bera ábyrgð á hrinu
blóðugra árása á síðustu vikum.
Stjórnarherinn hefur verið
sakaður um að hafa gerst sekur
um minnst eina árás á borgara á
svæði uppreisnarmanna. - aa
Borgarastríðið á Srí Lanka:
Áhyggjur af
mannfalli
SLÓVENÍA, AP Viðræður ráðamanna
Rússlands og Evrópusambandsins
í Slóveníu um áform Kosovo-
Albana um að lýsa
yfir sjálfstæði
skiluðu engu öðru en
því að staðfesta að
þeir væru á öndverð-
um meiði í málinu.
Rússar styðja
Serba í þeirri stefnu
að halda Kosovo
formlega innan
serbneska ríkisins.
Þrátt fyrir það sagði rússneski
utanríkisráðherrann Sergei
Lavrov að Rússar hefðu ekki í
hyggju að beita ESB-ríkin
refsiaðgerðum ef þau viður-
kenndu sjálfstæði Kosovo. Kjörnir
fulltrúar Kosovo-Albana hafa í
hyggju að lýsa yfir sjálfstæði jafn-
vel nú strax á sunnudag. - aa
Samráð ESB og Rússlands:
Bitist um sjálf-
stæði Kosovo
SERGEI
LAVROV
STRÓKAR VIRKJANANNA Frá Bústaðaveginum séð munu í
góðu veðri bætast við tveir myndarstrókar verði virkjanirnar að
veruleika. Stækkun Hellisheiðarvirkjunar kann að duga fyrsta
áfanga álversins í Helguvík. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÁSTA
ÞORLEIFSDÓTTIR