Fréttablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 15. febrúar 2008 13
Fimm innflytjendur munu út árið
veita lesendum Fréttablaðsins
innsýn í líf sitt. Fjórir þeirra segja
okkur nú hvað bar hæst í vikunni.
VIKA 2
DAGBÓK NÝRRA
ÍSLENDINGA
SJÁVARÚTVEGUR „FisHmark er bestunarkerfi
sem snýst um að stinga upp á hvert eigi að fara
til veiða og hvernig eigi að haga veiðum og
vinnslu,“ segir Sveinn Margeirsson, deildar-
stjóri hjá Matís.
Gögnum er safnað í rafræna afladagbók við
veiðarnar. „Þetta er í raun skráning, hvar
fiskurinn er veiddur, hversu lengi er verið að
toga og annað slíkt.“ Fiskurinn fær svo sitt
einkenni sem helst inn í fiskvinnsluna. „Með
því er hægt að rekja hvaðan fiskurinn kom sem
er í vinnslunni á hverjum tíma.“
Segir Sveinn að með FisHmark séu gögn úr
vinnslunni, til dæmis nýting og fleira, tengd við
gögnin í afladagbókinni. Úr samanlögðum
gögnunum séu unnar skýrslur og fleira.
„Þannig að menn geta séð hvar á miðunum og
hvenær er besta nýtingin.“
Verkefnið er afrakstur sex til sjö ára vinnu.
Að því hafa einnig komið hugbúnaðarfyrirtæki
auk hóps sjávarútvegsfyrirtækja. Sveinn segir
að um frumgerð sé að ræða en stefnan sé tekin
á fullgerðan hugbúnað á næsta ári. Ísland er
helsta markaðssvæðið til að byrja með en
einnig er horft til erlendra markaða.
„Aðferðafræðin og hugbúnaðurinn sjálfur er
varan, þó að gögnin séu að sjálfsögðu eign
fyrirtækjanna sjálfra.“ Þá segir Sveinn
samstarf þeirra sem að verkefninu komu hafa
verið gjöfult. „Það er þessi þekkingariðnaður
sem sjávarútvegs fyrirtækin eru að stuðla að og
eru hluti af.“
- ovd
Matís kynnir nýjan íslenskan hugbúnað sem á að auka hagkvæmni í fiskveiðum og fiskvinnslu:
Stuðlað að bættri afkomu fiskveiða
KYNNT FYRIR SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA Sveinn
Margeirsson með Einari K. Guðfinnssyni á kynningu á
FisHmark í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Reykjavík er
fyrsta borgin
sem ég bý í
þar sem engar
almennings-
samgöngur eru
á helgarnótt-
um,“ segir Char-
lotte Ó. Ferrier.
Henni kom það
mjög á óvart, „sér í lagi þar sem
Íslendingar segjast vera framarlega
í umhverfismálum“. Þá þykir henni
viðhorf Íslendinga til strætisvagna
sérstakt. „Mér finnst frábært að
námsmenn fái frítt í strætó og
velti fyrir mér hvort slíkt myndi
ekki leysa umferðarvandann í
Reykjavík. Svarið er svo sannarlega
ekki að gera fleiri götur. Það var
reynt í Bretlandi og stuttu síðar var
umferðin alveg jafn slæm.“
Charlotte Ólöf Ferrier:
Sérstök viðhorf
til strætisvagna
Hvert gleðiefnið
rekur annað hjá
Junphen þessa
dagana. „Nú er
önnur vinkona
mín að koma
frá Akureyri en
hún á afmæli
um helgina,“
segir hún full til-
hlökkunar. „Við ætlum að bregða
okkur í Keiluhöllina og svo förum
við kannski í miðbæinn á eftir. Ég
fer oft í keilu en í Taílandi er það
afar dýrt en hér getur maður alveg
leyft sér það öðru hvoru. Ég fer
líka í sund nánast daglega en þá
kemur taílensk vinkona mín venju-
lega með mér,“ segir hún.
Junphen Sriyoha:
MEIRI GLEÐI
AÐ NORÐAN
Filipe hefur
fengið að kenna
á íslenska
veðurfarinu
undanfarið. „Ég
var að vinna á
rannsóknarstofu
Matís á Akureyri
í síðustu viku
en þegar ég
ætlaði að fljúga til Ísafjarðar varð
ég veðurtepptur í nokkra daga í
Reykjavík. Þar gafst mér reyndar
færi á að prófa snjóbretti sem ég
hafði keypt fyrir norðan en það
gekk ekki nógu vel, enda vorum
við ekki í nægilega góðri brekku.
Ég kann vel við Akureyri, þar er
mikið af ungu fólki og fjöri. En þó
er bærinn helst til stór fyrir mig svo
mér fannst ósköp gott að komast
loks heim til Ísó eftir allt volkið.“
Filipe Moreira de Figueiredo:
GOTT AÐ KOMAST
HEIM TIL ÍSÓ
„Ég hef verið
svolítið úti á
þekju í allri
þessari stjórn-
málaumræðu,“
segir Rachid
Benguella.
„Konan mín
segir mér hvað
er í gangi, til
dæmis frá breytingum í borgar-
stjórninni. Nú eru tveir flokkar við
stjórn í Reykjavík, ég veit það þó,“
segir Rachid og hlær. Þrátt fyrir
leiðindaveður hefur hann oft farið
austur á Sólheima þar sem konan
hans býr og vinnur. „Það er erfið-
ast að fara yfir Hellisheiðina en ég
búinn að læra að aka á íslenskum
vegum. Passa mig til dæmis að
bremsa ekki harkalega í hálkunni.“
Rachid Benguella:
HEFUR VANIST
ÍSLENSKU VEÐRI
SIMPLY CLEVER
HEKLA · Laugavegi 172-174 · Sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranes · Ísafjörður · Reyðarfjörður · Reykjanesbær · Selfoss
ALVÖRU KRAFTUR
ENGIN EYÐSLA
Verð kr. 2.630.000
Skoda Octavia 1,9 TDI®
Skoda Octavia 1,9 TDI® - 4,9 lítrar á hundraðið
Nýja TDI® vélin í Skoda Octavia er ein vandaðasta dísilvél sem völ er á.
Hún skilar miklu og jöfnu afli en eyðir þó aðeins 4,9 lítrum á hundraðið
í blönduðum akstri. Veldu vandaðan verðlaunabíl í fullri stærð með pláss
fyrir alla fjölskylduna, rúmgott farangursrými og frábæra aksturseiginleika
- og eigðu nóg afgangs til að ferðast um landið, sumar jafnt sem vetur.
Ríkulegur staðalbúnaður Octavia
ESP stöðugleikakerfi og spólvörn
Aksturstölva
Tengi fyrir iPod
Sex hátalarar
Hanskahólf með kælibúnaði
Sex loftpúðar
Hraðastillir (cruise control)
Þokuljós í framstuðara
Hiti í sætum
Hiti í speglum
ISOFIX barnabílstólafestingar
Hæðarstillanleg sæti