Fréttablaðið - 15.02.2008, Síða 22
15. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
Ískalt íslenskt vatn
- hvenær sem er
GE kæliskáparnir eru öflugir,
endingargóðir og glæsilega innréttaðir
Verð frá:
Kr. 209.790 stgr.
AFSLÁTTUR
30%
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 418x
5.489 -0,83% Velta: 5.489 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 7,85 +0,38% ... Bakkavör
45,25 -1,42% ... Eimskipafélagið 30,40 -0,82% ... Exista 12,10 -2,02%
... FL Group 9,82 -3,73% ... Glitnir 17,90 -0,56% ... Icelandair 26,35
-0,75% ... Kaupþing 731,00 -0,41% ... Landsbankinn 28,65 -0,35%
... Marel 94,50 -2,98% ... SPRON 5,74 -2,38% ... Straumur-Burðarás
12,39 -2,06% ... Teymi 5,19 +0,39% ... Össur 90,50 -0,11%
MESTA HÆKKUN
ATL. PETROLEUM +0,98%
EIK BANKI +0,46%
TEYMI +0,39%
MESTA LÆKKUN
365 -10,30%
FL GROUP -3,73%
MAREL -2,98%
Stýrivextir Seðlabankans
verða óbreyttir um sinn. Fjár-
málaskilyrði og verðbólgu-
horfur hafa versnað að mati
bankans. Ekki er útilokað að
vöxtum verði breytt í mars.
„Það er ekki markmið bankans að
ná fram harðri lendingu. Það er
hins vegar svo að við teljum okkur
skylt að reyna að leitast við að
draga úr þeirri miklu spennu sem
verið hefur og ekki sér fyrir end-
ann á ennþá til þess að ná því
marki sem okkur er sett, að verð-
bólga sé hér innan marka,“ sagði
Davíð Oddsson Seðlabankastjóri
við kynningu stýrivaxta í gær.
Seðlabankinn tilkynnti í gær að
vextir bankans yrðu óbreyttir um
sinn, 13,75 prósent.
Í hagspá bankans er gert ráð
fyrir harðri lendingu í hagkerfinu,
en í síðustu Peningamálum er gert
ráð fyrir skarpri lækkun stýri-
vaxta á öðrum og þriðja fjórðungi
ársins.
Arnór Sighvatsson, aðalhag-
fræðingur Seðlabankans, sagði
rétt að í spám bankans væri gert
ráð fyrir samdrætti fram undan.
„Ég held hins vegar að Seðlabank-
inn hafi ekki mikið val um það
hvort þessu gríðarlega mikla
ofþrýstiskeiði, sem nú er hugsan-
lega að ljúka, ljúki með samdrætti.
Peningastefna hefur ekki mikil
langtímaáhrif á hagvöxt. Seðla-
bankinn getur haft áhrif á tíma-
setningu samdráttar. En mjög
óvíst er að slakari peningastefna
en Seðlabankinn hefur fylgt hefði
leitt til meiri eða minni samdrátt-
ar að lokum.“
Davíð Oddsson sagði í rökstuðn-
ingi fyrir vaxtaákvörðuninni að
hagvísar bankans bentu til þess að
eftirspurn, sérstaklega einka-
neysla, hefði vaxið hratt allt til
loka síðasta árs. Þá væri enn
spenna á vinnumarkaði og kjara-
viðræðum ekki lokið. Gengi
krónunnar hefði undanfarið verið
lægra en gert var ráð fyrir í spá
bankans í nóvember. Til skamms
tíma væru verðbólguhorfur verri
en við síðustu stýrivaxtaákvörðun
í desember og útgáfu Peninga-
mála í nóvember.
Hins vegar hefðu fjármálaskil-
yrði, bæði innanlands og utan,
versnað. Við það hefði dregist úr
framboði á lánsfé og lánakjör
hefðu versnað; bæði fyrir heimili
og fyrirtæki. Þá hefði hlutabréfa-
verð lækkað verulega, sem yki
enn fjármagnskostnað og veikti
efnahagsreikning heimila og
fyrirtækja.
Þessi þróun ynni með stefnu
Seðlabankans um aðhald og drægi
úr verðbólguþrýstingi og vexti
eftirspurnar. Þá hefði lækkandi
fasteignaverð bein áhrif á verð-
bólguna. „Óvíst er hve hratt þetta
gerist en ólík legt er þó að meiri
samdráttur í efnahagslífinu en
Seðlabankinn spáði í nóvember
leiði til hraðari hjöðnunar verð-
bólgu framan af spátíma bilinu.
Gengi krónunnar gæti veikst um
leið og dregur úr framboði erlends
fjármagns. Það gæti ýtt undir
verðbólguvæntingar, valdið launa-
skriði og þannig tafið hjöðnun
verðbólgunnar.“
Davíð Oddsson sagði ekki
útilokað að aukavaxtaákvörðunar-
dagur yrði í mars. Ekkert hefði
hins vegar verið ákveðið um það.
Litið yrði til ákvarðana annarra
seðlabanka við næstu vaxta-
ákvörðun. ingimar@frettabladid.is
DAVÍÐ ODDSSON Markmið Seðlabank-
ans er ekki hörð lending en bankinn
telur sér skylt að draga úr spennu.
Horfurnar versna enn
„Auðvitað hafa menn rætt þetta óformlega sín á milli,
en málið er á borði fjármálaráðherra. Hann fer með
úrskurðarvaldið,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra.
Kaupþing, sem hefur sótt um
leyfi til reikningshalds í evrum,
kærði fyrir rúmum mánuði
ákvörðun ársreikningaskrár um
málið til fjármálaráðherra.
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri
bankans, býst við niðurstöðu á
næstu dögum.
Ingibjörg Sólrún segir að málið
sé ekki einfalt, en bankarnir sitji
við sama borð og aðrir. „Þeir hafa
ákveðinn lögformlegan rétt. Þetta er bara spurning
um hvort þeir uppfylla lagaskilyrði eða ekki.“
Umsögn Seðlabankans um umsókn Kaupþings var
neikvæð. Davíð Oddsson Seðlabankastjóri fullyrti í
gær að umsögn bankans hefði ekki haft nein áhrif á
ákvörðun ársreikningaskrár. - ikh
Stjórnin ræðir umsókn
INGIBJÖRG SÓLRÚN
GÍSLADÓTTIR
Capa Invest hefur keypt fimmt-
ungshlut í IMG Holding, eignar-
haldsfélagi Capacent samstæð-
unnar. Út voru gefnir nýir hlutir í
félaginu.
Capa Invest er nýstofnað fjár-
festingarfélag í meirihlutaeigu
fjárfestingarfélags Róberts Wess-
mans, Salt Investments og Draupn-
is, sem er í eigu Jóns Diðriks
Jónssonar. Kaupverðið er sagt
trúnaðarmál.
Með kaupunum verður Capa
Invest kjölfestufjárfestir í Capa-
cent-samstæðunni og stærsti
einstaki hluthafinn. „Meirihluti
félagsins er þó enn sem fyrr í
dreifðri eign stjórnenda og starfs-
manna, en af þeim fer Skúli Gunn-
steinsson forstjóri samstæðunnar
með stærsta hlutann,“ segir í til-
kynningu. Jón Diðrik er sagður
hafa hug á að bjóða sig fram til
stjórnarformennsku á næsta aðal-
fundi IMG Holding.
Haft er eftir Skúla að alltaf hafi
staðið til að fá fagfjárfesta í hlut-
hafahópinn, til að styrkja félagið
til áframhaldandi vaxtar, fyrst og
fremst á erlendri grundu. Glitnir
veitti félaginu ráðgjöf við hluta-
fjárútboðið.
Innan Capacent-samstæðunnar
starfa nú um 340 manns, þar af um
120 hjá Capacent á Íslandi og um
220 hjá Capacent í Danmörku, eftir
síðustu kaup félagsins á Institut
for Karriereudvikling (IKU), en
samningur um þau viðskipti var
undirritaður í síðustu viku. - óká
Eiga fimmtung í Capacent
EFTIR KAUPIN Árni Harðarson frá Salt
Investments, Jóhann G. Jóhannsson frá
Glitni, Skúli Gunnsteinsson frá Capac-
ent, Hrannar Hólm frá Capacent og Jón
Diðrik Jónsson frá Draupni.
„Ef ég man rétt var lækkun fasteigna-
verðs svona um það bil sex prósent,
í okkar síðustu spá. Hins vegar hefur
húsnæðismarkaðurinn verið sterkari en
í okkar spám, svo þetta gerist seinna,“
sagði Arnór Sighvatsson, aðalhagfræð-
ingur Seðlabankans, við kynningu á
stýrivaxtaákvörðun bankans í gær.
Tölurnar eru til í bankanum, en hafa
ekki verið birtar. Arnór segir vandasamt
að spá fyrir um þróun húsnæðisverðs
og líkön bankans geri ráð fyrir mjög
mikilli lækkun. „En við trúum þeim
ekki alveg,“ sagði hann, enn sem
komið er hafi húsnæðismarkaðurinn
verið sterkur.
„Við sjáum að lán bankanna til
húsnæðiskaupa hafa í rauninni að
verulegu leyti stöðvast,“ sagði Davíð
Oddsson Seðlabankastjóri. Líklegt
væri að verðlag fasteigna lækkaði á
komandi tíð.
SEX PRÓSENTA LÆKKUN HÚSNÆÐISVERÐS Í SÍÐUSTU SPÁ