Fréttablaðið - 15.02.2008, Side 32

Fréttablaðið - 15.02.2008, Side 32
2 • FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008 É g er á leiðinni af skjánum og ætla að vera hinum megin við myndavélina. Ég mun vera meira í framleiðslunni og sé áfram um ritstjórnina,“ útskýrir Þórunn. Hún hefur verið á skjánum í fjögur ár, og verið rit- stjóri þáttarins síðastliðin þrjú ár, eða frá því að Vala Matt hélt á brott. Þórunn segir breytingarnar koma í kjölfar þeirrar ákvörðunar Skjás eins að færa inn- lenda dagskrárgerð út úr húsi. Framleiðsla Innlits/útlits er því komin í hendur Saga Film. „Það hafa orðið töluverðar breytingar með nýju framleiðslufyrirtæki, sem er ósköp eðli- legt. Þetta er hluti af þeim,“ segir Þórunn, sem segist enn vera að átta sig á breyting- unum. „Maður þarf að aðlagast þessu eins og öðru. Það tekur kannski smá tíma þegar maður hefur verið lengi í sama starfinu,“ segir Þórunn. „Ég hafði falast eftir því að vera meira hinum megin við myndavél- ina, því mér finnst framleiðsluferlið vera mjög spennandi. Ég bjóst reynd- ar ekki við því að fara alveg af skján- um, en nú sé ég bara til hvernig þetta leggst í mig. Vonandi verður þetta allt saman hið besta mál,“ segir hún brosandi. „Það er mjög góður hópur í kringum þáttinn, svo hann verður von- andi bara mjög góður áfram,“ bætir Þórunn við. Þau Arnar Gauti og Nadia Banine, sem hafa séð um dagskrárgerð fyrir Innlit/útlit ásamt Þórunni síðastliðin ár, verða áfram á skján- um, og segir Þórunn að fastir liðir þáttanna muni halda áfram. „Útlit þáttarins breytist eitthvað með nýjum pródúsent, en við verðum áfram með breytingar, innlit og fjöll- um um hönnun og arkitektúr eins og áður. Við fengum öll gott frí en erum á fullu í tökum núna, og fyrsti þáttur- inn fer í loftið á þriðjudaginn,“ segir Þórunn, sem segist hafa notið sín vel á skjánum síðustu ár. „Ég væri alls ekki í þessu ef mér fyndist þetta ekki gaman. Ég hef verið rosalega ánægð, og vonandi á þetta eftir að vera jafn skemmtilegt,“ segir hún. sunna@frettabladid.is Útgáfufélag 365 prentmiðlar Ritstjóri Marta María Jónasdóttir martamaria@365.is Bergþóra Magnúsdóttir bergthora@365.is Forsíðumynd Teitur Jónasson Útlitshönnun Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Guðný Gunnlaugsdóttir gunnyg@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24 105 Reykjavík, sími 512 5000 Helgin 15.-17. febrúar FÖSTUDAGUR þú kemst ekki í gegnum vikuna ... ...nema að hafa já- kvæðnina í farteskinu, lífið verður miklu léttara, þéttara og skemmti- legra. ...nema að hafa morðgátuþema í af- mælinu þínu. Það nennir enginn að vera hann sjálfur í partíum, Hlutverka- leikir eru það eina sem dugar. Ef eitt- hvað gerist þá fær fólk bara lifnaviðpillu og allir verða hressir. ...nema kaupa þér nýja stóra flotta leðurtösku. Helst MIU MIU eða Marc Jacobs. ...nema að fá þér internetið í símann. Það eru bara steinaldarmenn sem þrauka upp á gamla mát- ann. ...nema að skipuleggja sumarfríið og láta þig dreyma um sól og fjar- læga staði. FÖSTUDAGUR: Verðlaunahafar í Vatnsmýrarsamkeppn- inni kynna tillögur sínar og dómnefnd gerir grein fyrir niðurstöðum sínum. Að því búnu verður opnað fyrir um- ræður um framtíðarsýn og skipulag borgar í Vatnsmýr- inni. Þetta fer fram í Hafnarhúsinu. Um kvöldið eru minn- ingartónleikar um Bergþóru Árnadóttur sem hefði orðið sextug hefði hún lifað. Tónleikarnir eru haldnir í Salnum í Kópavogi og hefjast þeir klukkan 20.30. „Helgin er fullbókuð að vanda. Spilaklúbburinn, Kanarífuglarnir, ætlar að spila yfir sig eftir langa pásu. Það er enginn áberandi tapsár þannig að þetta verður örugglega afar ljúft eins og gourmet-hlaðborðið sem verið er að skipuleggja. Á sunnudaginn er síðan síðbúið rjómabollukaffi því afmælisstrákurinn hann pabbi á afmæli og var erlendis á bolludaginn. Það væri skandall ef hann fengi ekki bollu.“ HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA UM HELGINA? Andrea Róberts, sjónvarpskona, meistaranemi og stjórnarkona UNIFEM. É g er að verða mamma hálfr- ar leikarastéttarinnar,“ segir leikkonan Margrét Helga Jó- hannsdóttir og hlær við. Hún hefur á síðustu árum tekið að sér mörg móðurhlutverk, og í þrígang leikið mæður manna sem eru veik- ir á geði. Fyrsta hlutverkið í þeirri röð fór Margrét með í Englum alheimsins, þar sem hún lék móður Páls, sem Ingvar E. Sigurðsson túlkaði. Í Börnum lék hún móður Ólafs Darra Ólafssonar í hlutverki Marinós, og nú síðast brá hún sér í hlutverk Bjarnfreðar, móður hins öfgakennda Georgs í Næturvakt- inni. „Þetta eru allt menn sem ekki eru sigurvegarar í lífinu, svo mikið er víst,“ segir Margrét Helga, sem nú er í launalausu leyfi frá Leikfélagi Reykjavíkur og dvelst á Akureyri, þar sem hún leikur í Fló á skinni. Uppsetningin hefur slegið í gegn, og uppselt er á allar sýningar sem settar hafa verið í sölu. „Það er ótrú- lega gaman að leika í Flónni og heyra hlátrasköllin. Þetta er frábært leikhús og hér er mikið af hæfileikaríku, orkumiklu og skemmtilegu fólki sem hefur tekið ofboðslega vel á móti mér.“ Margrét segir það fara eftir mann- gerðinni hvort hluverk sem þau of- annefndu taki á. „Ég samdi náttúr- lega mína manngerð sjálf í Börn- um, því við fengum að vinna okkar hlutverk sjálf. Það var mjög spenn- andi spunavinna,“ segir Margrét, sem leitaði þó ekki í fyrri reynslu sína sem móður Páls í Englum al- heimsins. „Þetta eru tvær alveg ólíkar konur. En ég hef verið hepp- in, þetta hafa allt verið góð verk- efni og skemmtileg vinna,“ segir hún. Umræður um geðsjúkdóma hefur borið hátt í þjóðfélaginu að undanförnu, og þá ekki síst út frá afstöðnum veikindum nýs borgar- stjóra. Margrét Helga segist viss um að myndir á borð við Börn og Engla alheimsins geti lagt hönd á plóg við að hrinda af stað vitundar- vakningu í kringum geðsjúkdóma. „Allir fordómar hljótast yfirleitt af þekkingarskorti. Allar upplýs- ingar eru til hins betra. Það er nú líka gaman að geta þess að þegar við vorum að vinna Englana kom í ljós að Ingvar, Hilmir Snær og ég höfðum öll unnið á Kleppsspít- ala á einhverjum tíma- punkti. Það er fjár- sjóður sem maður býr að alla tíð, að kynnast bæði þeim sem minna mega sín og þeim sem meira mega sín. Það er góður lífsins skóli, og eitthvað sem maður lærir ekki í leiklist- arskóla,“ segir hún. sunna@ frettabladid.is Margrét Helga Jóhannsdóttir hefur leikið mömmur nokkurra geðveikra manna Fordómar eru þekkingarskortur ÞÓRUNN HÖGNADÓTTIR FER SÁTT AF SKJÁNUM Breytingar í Innliti/útliti Margrét Helga Jóhannsdóttir Ólafur Darri Ólafsson Jón Gnarr Ingvar E. Sigurðsson

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.