Fréttablaðið - 15.02.2008, Qupperneq 38
L
eiðir Hreiðars Árna Magnússonar
og Jóhanns Tómasar Sigurðssonar
lágu fyrst saman þegar sá fyrrnefndi
byrjaði að læra hárgreiðslu hjá
móður þess síðarnefnda, Elsu Haraldsdótt-
ur, sem er þriðji eigandi Loft Salon. Þetta
var árið 1986 þegar hver einasta kona var
með permanent og mikill uppgangur í hár-
greiðslugeiranum. Jóhann ætlaði aldrei
að fara út í neitt sem tengdist hárgreiðsl-
unni en núna rúmum 20 árum síðar hafa
þeir félagar sameinað krafta sína og opnað
hárgreiðslustofuna Loft Salon ásamt Elsu.
Stofan er staðsett í hjarta Kaupmannahafn-
ar, Galleria K húsinu, og opnaði í október
2006.
Loft Salon er engin venjuleg hárgreiðslu-
stofa heldur samruni hugmynda um hár-
greiðslustofu, bar og kaffihús. Þar hittast
vinkonur yfir drykk og láta dekra við sig,
gefa sér góðan tíma í að láta nostra við hárið
á sér meðan þær spjalla, sötra kampavín
eða fá sér „boost“ orkudrykki. Þrátt fyrir
allan lúxusinn og þægindin er verðlagið
ekki hærra en á öðrum hárgreiðslustofum í
Danmörku. Jóhann segir að hann hafi komið
að máli við Redken í Danmörku árið 2005 og
kannað möguleika þess að opna hárgreiðslu-
stofu í Danmörku. Hárgreiðslustofu sem
væri jafnframt hótelbar eða móttaka. Þrátt
fyrir að hafa aldrei ætlað að vinna við hár-
greiðslufagið gat hann ekki við það staðið
þegar hann sá það sem er að gerast í hár-
greiðsluheiminum. Annars vegar samruni
hugmynda, svo sem hárgreiðslustofu og
hótelbars, og hins vegar viðskiptalausn sem
hentar rekstri hárgreiðslustofa.
„Við flugum til Bandaríkjanna til að
kynna okkur hugmyndir hjá stærsta
ráðgjafar fyrirtækis í heimi hárgreiðslunn-
ar. Við sáum að þær viðskiptahugmyndir
sem þeir fóru yfir voru í fullkomnu sam-
ræmi við okkar. Mamma sagði við mig að
hún hefði gert þetta nákvæmlega svona
ef hún hefði vitað þetta fyrir 20 árum,“
segir Jóhann. Hann segir að það séu sömu
meginvandamálin í hárgreiðslu alls stað-
ar í heiminum og því hægt að taka hug-
myndir frá Bandaríkjunum og aðlaga þær
öðrum mörkuðum. „Ég fékk áhuga á þessu
út af viðskiptahliðinni, að gera rekstur hár-
greiðslustofu að fyrirtæki. Það er ákveð-
in hringiða í hárgreiðslubransanum sem
við viljum breyta. Fólk útskrifast úr skóla
og fer að vinna á góðri stofu. Næsta skref
er oft að kaupa stofuna sem það vinnur á
eða opna sjálft aðra stofu. Það ræður til sín
fólk og vinnur og vinnur og svo fer fólk að
fara frá því og gera nákvæmlega sömu hluti
og það gerði sjálft. Ástæðan fyrir því að
þetta gerist er sú að viðkomandi er góður
í því að klippa en hefur hugsanlega komið
minna að fyrirtækjarekstri. Það kerfi sem
við vinnum eftir hjá Loft byggir á þessu
og leggur áherslu á að kenna hárgreiðslu-
fólki að reka hárgreiðslustofu sem fyrir-
tæki. Þannig byggir Loft á skýrum mark-
miðum fyrir alla starfsmenn og á árang-
urstengdu kerfi. Þannig liggur alltaf fyrir,
svart á hvítu, hvernig starfsmenn geta farið
frá því að vera nemi á fyrsta ári til þess að
verða meðeigandi. Okkar markmið er að
aðstoða okkar starfsmenn við að ná þessu
markmiði. Þessi hugsun fannst mér heill-
andi,“ segir Jóhann.
Hreiðar kannast vel við hringrásina sem
Jóhann er að tala um en hann lærði á Salon
VEH og svo stofnaði hann Salon Reykjavík
með Arnari Tómassyni. Þeir voru viðskipta-
félagar þangað til í hitteðfyrra þegar Hreið-
ar ákvað að taka þátt í Kaupmannahafnar-
ævintýrinu. Hann fluttist til Kaupmanna-
hafnar sumarið 2006 og tók þátt í
upp byggingunni á stofunni og stýrði henni
þangað til núna í haust. Um áramótin
keyptu Hreiðar, Jóhann og Simbi stofuna
Salon VEH af Elsu, móður Jóhanns. Áætl-
unin er að fara með Salon VEH sömu leið og
Loft Salon. En hvernig skyldu þeir fara að
því að vera með starfsemi í tveimur lönd-
um? „Við erum með teymi Dana sem stýrir
Loft Salon og sér um daglegan rekstur. Við
sjáum um stýringu og almenna þróun og
svo erum við með tölvukerfi sem gerir það
að verkum að við getum fylgst með því sem
er að gerast í Danmörku þegar við erum á
Íslandi,“ segir Jóhann en hann og Hreið-
ar fara mánaðarlega til Kaupmannahafn-
ar til að fara yfir stöðu mála, halda fundi
og fylgjast með öllum smáatriðum. „Ef ég
hefði fengið svona tilboð eins og við erum
að bjóða okkar fólki í dag þá hefði ég aldrei
hætt neins staðar og ætti sjoppuna einn.
Þetta minnir mig svolítið á myndina Pay it
Forward með Kevin Spacey, þar sem maður
miðlar sinni þekkingu til annarra og hjálp-
ar þeim að vaxa og dafna. Þetta er fallegur
hugsunarháttur,“ segir Hreiðar og Jóhann
bætir því við að þeir séu ekki að þessu
fyrir sjálfa sig heldur af hugsjón. „Ég hef
mína vinnu og Hreiðar hefur meira en nóg
að gera,“ segir Jóhann. „Við erum að þessu
til að sýna fram á að það sé hægt að reka
hárgreiðslustofu sem fyrirtæki sem skilar
hagnaði. Því betur sem starfsfólkið hefur
það því betur líður kúnnanum og því minni
áhyggjur höfum við,“ segja þeir.
Redken Loft byggir á því að blanda
saman hárgreiðslustofu og hótelbar þar
sem mikið er lagt upp úr fallegu umhverfi.
„Þegar við byrjuðum fengum við frumgerð
að stofu til að gefa okkur hugmynd hvern-
ig þetta gæti litið út. Við sýndum arkitekt-
inum hugmyndirnar og lögðum áherslu á
að blanda þessu saman við hótelbar-fíling.
Kristján Garðarsson arkitekt á heiðurinn
af stofunni í samvinnu við Þorvald Skúla-
son. Við viljum að hárgreiðslustofan sé lif-
andi staður þar sem fólk getur droppað
við, fengið sér bjór eða orkudrykk og látið
kannski bara þvo á sér hárið,“ segir Jóhann.
Þeir fara eftir ákveðnu viðskiptamódeli
sem byggist á árangurstengingu sem geri
það að verkum að fólk vill vinna. Þegar þeir
eru spurðir að því hvort Danir séu ekki latir
segja þeir svo ekki vera. „Danir eru ákaf-
lega duglegt fólk og vinnusamt. Það er á
fullu á meðan það er í vinnunni en það þýðir
ekkert að hringja í það og biðja það um að
vinna aukavinnu. Þegar Danir eru í fríi eru
þeir helst með slökkt á símanum sínum,“
segir Hreiðar og bætir því við að Íslending-
ar gætu lært margt af þeim.
Klippingin kostar meira í Köben
Miðað við glæsileika stofunnar þá hlýtur
þetta að hafa kostað mikla peninga. Þegar
þeir eru spurðir að því játa þeir að þetta
hafi alls ekki verið ódýrt. „Jú jú, þetta kost-
aði peninga. Það kostar peninga að gera
fallega hluti. Þetta er allt í rétta átt og
við erum bjartsýnir á framhaldið,“ segir
Jóhann. Þegar ákveðið var að opna Loft
Salon í Kaupmannahöfn voru þeir hvorki
með starfsfólk né viðskiptavini. Þeir gengu
því algerlega blint í þetta verk. „Við hefð-
um aldrei gert þetta á Íslandi, að opna stofu
án þess að hafa kúnna eða starfsfólk,“ segir
Hreiðar og brosir. „Við settum bara skilti í
gluggann „OPIГ og treystum því að fólkið
myndi streyma að,“ segir Jóhann.
Þeir félagar eru greinilega fæddir undir
lukkustjörnu því ekki leið á löngu þar til fólk
fór að streyma að. Danska pressan hafði
líka gríðarlegan áhuga á Loft Salon en síðan
stofan opnaði hafa birst umfjallanir um stof-
una í dönskum fjölmiðlum og þotulið Kaup-
mannahafnarborgar hefur flykkst þangað í
klippingu og dekur. Hreiðar og Jóhann vilja
þó ekki gera mikið úr því og segja að Loft
Salon sé fyrir alla. „Danir eru mjög vana-
fastir og það tekur smá tíma að venja þá við
þá hugmyndafræði sem við bjóðum upp á.
Það er að segja að hárgreiðslustofa sé stað-
ur þar sem hægt sé að koma til að slappa
af, njóta þess að vera til, staður til að vera
á. Klippingin er þó ekki dýrari á Loft en á
öðrum stofum í Kaupmannahöfn, en hún er
dýrari en á Íslandi. Við erum alls ekki dýr-
asta stofan í Kaupmannahöfn og leggjum
áherslu á bestu þjónustu án þess að vera
dýrastir,“ segir Jóhann og Hreiðar bætir því
við að kúnnahópurinn sé aðallega fólk sem
vinnur í miðbænum eða er mikið í bænum
auk þess sem Íslendingum finnst gott að líta
við á leið sinni um miðbæinn, fá hárþvott og
blástur, þegar það er í helgarferðum.
Danir strákar eru djarfari
Síðustu ár hafa Íslendingar verið mikið í
fjölmiðlaumræðunni í Kaupmannahöfn og
innrás Íslendinganna fer fyrir brjóstið á
sumum Dönum. „Við höfum ekki verið að
flagga því að við séum Íslendingar og að
sama skapi höfum við ekkert auglýst stof-
una á Íslandi,“ segir Jóhann. „Fókusinn að
þetta sé íslensk stofa er ekki til. Það koma
þó íslenskir kúnnar inn,“ segir Hreiðar. Þeir
segja að það sé töluverður munur á Íslend-
ingum og Dönum sem kúnnum. „Íslenskar
konur vilja sjá meira fyrir peninginn. Þær
vilja meiri klippingar og djarfa liti, dansk-
ar konur vilja hins vegar ekki stórt hár eða
djarfa liti, þær vilja vera náttúrulegri. Það
Við Strikið er að finna eina vinsælustu hárgreiðslustofu borgarinn-
ar, Loft Salon. Þangað flykkist fræga fólkið til að láta dekra við
sig. Marta María Jónasdóttir heimsótti tvo af eigendum stofunn-
ar, Hreiðar Árna Magnússon og Jóhann Tómas Sigurðsson og
komst að því að svona lúxus gerir lífið ennþá skemmtilegra.
Löðrandi
lúxus
Meðan kúnninn er í stólnum er honum boðið upp á kampavín, hvítvín, kaffi eða
koníak. Þeir segja að fólk borgi ekki fyrir drykkinn sérstaklega og vilja ekki
meina að klippingin kosti meira vegna drykkjanna. Þetta sé líka auðveldara í
Danmörku þar sem vín kosti brot af því sem það kostar á Íslandi.
AÐ MATI HREIÐARS OG JÓHANNS:
Uppáhaldsbarinn: Ruby kokteil bar og
Laundromat cafe.
Best við borgina: Mannlífið og rólegheitin.
Besti skyndibitinn: Dönsk pylsa klikk-
ar aldrei.
Líkamsræktin: Að ganga eða hjóla um
borgina.
Besta afslöppunin: Sól í almenningsgarð-
inum á góðum sumardegi eða á ströndinni.
Uppáhaldsverslunin: Illum, enda við hlið-
ina á stofunni.
Drykkurinn: Danskur öl er besti bjór í
heimi, sér í lagi á Palaæ bar.
8 • FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008