Fréttablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 44
15. FEBRÚAR 2008 FÖSTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● ráðstefnur
Veitingar eru lykilþáttur í vel-
heppnaðri ráðstefnu að sögn
Rúnars Gíslasonar hjá veislu-
þjónustunni Kokkunum.
Hvort ráðstefnur og veislur heppn-
ast vel eða ekki veltur að stórum
hluta á því hvernig veitingar eru
í boði. Rúnar Gíslason og félagar
hjá veisluþjónustunni Kokkarnir
sjá til þess að maturinn hæfi allt-
af tilefninu.
Rúnar segir að veisluhaldar-
ar sækist mun meira eftir hollari
mat, sem unninn er úr fersku og
góðu hráefni. „Okkar matseðlar
eru svolítið settir eftir því,“ segir
Rúnar. „Sérstaklega þegar fólk er
hjá okkur í það langan tíma að við
bjóðum upp á fleiri en eina máltíð,
þá hugsum við meira um hollust-
una.“
Að mörgu þarf að huga þegar
halda á veislu eða ráðstefnu þar
sem þær eru á öllum tímum dags-
ins og einnig mislangar að sögn
Rúnars. „Í hádeginu reynum við
að bjóða upp á hollustu. Þá er til
dæmis mjög gott að bjóða upp á
ferskan fisk, en með honum pöss-
um við okkur á að hafa grænmet-
ið alltaf með. Ef ráðstefnan stend-
ur yfir allan daginn reynum við að
bjóða upp á hollt í fyrra kaffinu
og kannski eitthvað sætara í því
seinna. Sé ráðstefnan fram á kvöld
getum við svo jafnvel haft flotta
veislu um kvöldið.“
Rúnar bætir við að sé vín á boð-
stólum, sé það yfirleitt haft í lokin.
„Ef það er búið að vera ráðstefna
eða námskeið allan daginn þá er
ekki óalgengt að það sé boðið upp
á léttvín í lokin, bara til að fá sér
smá hressingu áður en dagskrá
lýkur. Oft er þetta líka haldið á
föstudögum,“ segir hann svo og
glottir.
Sveigjanleikinn er í hávegum
hafður hjá Kökkunum, þar sem
starfsmenn leggja sig fram við
að uppfylla þarfir viðskiptavin-
anna. „Við bjóðum upp á ákveðinn
kjarna af matseðlum,“ segir Rúnar.
„En svo er það þannig að þriðjung-
ur viðskiptavina okkar vill breyta
matseðlinum, sem er bara eðlilegt.
Sumir vilja ekki einhvern tiltekinn
rétt af einum matseðli og kjósa eitt-
hvað annað girnilegt af einhverj-
um öðrum matseðli. Við víxlum þá
bara réttum fyrir fólk.“
Rúnar segir starfsfólk Kokk-
anna vinna mjög náið með við-
skiptavinum sínum þar sem engin
ein forskrift sé fyrir því hvernig
halda eigi veislur eða ráðstefnur.
„Við setjum bara saman dagskrá
fyrir hvern og einn, eftir því sem
við teljum að viðkomandi þurfi.
Fólk vill líka fá að sjá matseðil fyr-
irfram; hvað er í boði, hvað hlutirn-
ir kosta og þess háttar. Það vill vita
hvað það er að setja ofan í sig.“
- emh
Veltur á veitingunum
Rúnar og félagar hans hjá Kokk-
um veisluþjónustu hafa í nógu
að snúast þessa daga. Árshátíða-
og fermingarveislutörnin er nú
hafin og stendur fram í lok maí.
FRÉTTA
BLA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Ljúffeng laxasteik
Rúnar Gíslason og kokkar veislu-
þjónustunnar Kokkarnir voru svo
vinsamlegir að eftirláta lesendum
uppskrift að gómsætum og holl-
um lax ásamt meðlæti sem hentar
vel á ráðstefnur og í aðrar veislur.
GRILLAÐUR LAX Á KARTÖFLU OG
MANGÓSALSA MEÐ KARMELAÐRI
SÍTRÓNU. FYRIR 4 PERS.
200 gr. laxasteik á mann (800 gr)
2 msk. olía
2 stk. sítrónur, skornar í tvennt
2 msk. sykur
1 stór bökunarkartafla, flysjuð og
skorin í teninga
1 stór sæt kartafla, flysjuð og skor-
in í teninga
1 stk. mangó, flysjað og skorið í
teninga
1 tsk. saxaður rauður chili
2 msk. saxaður ferskur graslaukur
2 msk. smjör
salt og pipar eftir smekk
AÐFERÐ
Sjóðið kartöfluteninga þar til
þeir eru mjúkir. Sigtið og steik-
ið þá síðan upp úr smjöri ásamt
mangó og chili. Kryddið með
salti og pipar og setjið graslauk
saman við.
Takið þá laxinn og setjið olíu
á steikur, hitið grillið vel og legg-
ið laxasteikurnar á. Kryddið með
salti og pipar. Látið laxinn vera
lengi á þessari hlið, eða þar til
hann losnar auðveldlega frá
teinunum á grillinu. Þá má snúa
steikinni og krydda hina hliðina.
Sítrónurnar eru settar í sykur-
inn (sárið niður) og lagðar niður
á pönnu, meðal heitar og karm-
elaðar (sárið niður). Þetta tekur
1-2 mín.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Fjölbreytt þjónusta tengd fundahaldi:
• Baðstofa • Fyrirlestrar • Einkahóptímar • Hópefli
Frábær aðstaða til ráðstefnu-
og fundahalda í Laugum
Sími 553 0000
www.laugarcafe.is