Fréttablaðið - 15.02.2008, Side 54
R
ósótt efni, röndótt
veggfóður, brons-
lituð ljós og viðar-
klæddir veggir eru
það heitasta í innanhús-
hönnuninni í dag. Tekkið
verður heitara en nokkru
sinni fyrr og þeir sem
státa af panilklædd-
um veggjum og hyggj-
ast henda þeim út skulu
hugsa málíð vel því
þetta er að verða aðal-
trendið. Retró-hippafíl-
ingur kemur í staðinn
fyrir mínimalisma.
Þegar erlend hönn-
unarblöð eru skoðuð
má sjá litaglöð heim-
ili, túrkíslituð eða
bleikmáluð herbergi
þar sem skinn eru
sett á gólf, pallíettupúðar
í rúm og
þykkar
gard-
ínur
þekja
glugg-
ana. Hús-
gögnin eru
fyrst og fremst þægi-
leg. Síðustu ár hefur
þjóðin kosið ofurstíli-
seruð híbýli en nú er að
verða breyting á, svart
og hvítt víkur fyrir
hlýjum litum.
En hvað
gera þeir
sem vilja
losna undan
ofursmart-
heitunum í býtti
fyrir þægindi? Byrjaðu á
því að veggfóðra einn vegg í stof-
unni. Rókókó-veggfóður er þó á al-
gerum bannlista, veldu rendur eða
blómamynstur. Þú gætir líka park-
ettlagt einn vegg með grófu efni
eða látið bólstra vegginn.
Fer eftir stemningu á hverju
heimili. Settu fullt af púðum
í leðursófann þinn og hafðu
þá í hlýrri litapallettu. Se-
brahestur eða kúaskinn
eru alltaf klassísk á gólfið.
Í leiðinni væri ekki úr vegi
að koma við í Fríðu frænku
eða Góða hirðinum og fjár-
festa í sérstöku húsgagni
sem þú gætir látið bólstra.
Til að setja punktinn yfir i-
ið má setja glamúrleg ljós í
loftið eða glannalega glans-
píulampa til að gera þetta að
algerri paradís.
heima
gleði og glysgjörn húsráð
Uppinn flytur út
– hippinn flytur inn...
MAH JONG SÓFINN Franska fyrirtækið Roche Bobois
framleiðir þennan dásamlega hippalega sófa sem er
engum líkur. Þetta er það sem koma skal, þægindi og
hlýlegheit sem eru útfærð á þennan arfa smarta hátt.
SEBRAHESTUR Á GÓLFIÐ
Bjargar málunum. Skinnið
fæst í Hvítlist.
TOM DIXON LJÓSIN
breyta hverju heimili í
skemmtistað. Þau fást í
Saltfélaginu.
Þessi IKEA-lampi er einn af gullmolunum í ljósadeild verslunarinnar. Þegar
hann er kominn í annað umhverfi lítur hann út fyrir að vera hátískuhönnun og
vera rándýr. Hann fæst líka í hvítu og svörtu.
BEST GEYMDA LEYNDARMÁLIÐ
SPEGILL ÚR GULLI
gerir kraftaverk.
Þessi er úr Tekk
Company
Paolo, ítalska Ásdís, Spænska Janice, Enska
12 • FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008