Fréttablaðið - 15.02.2008, Page 54

Fréttablaðið - 15.02.2008, Page 54
R ósótt efni, röndótt veggfóður, brons- lituð ljós og viðar- klæddir veggir eru það heitasta í innanhús- hönnuninni í dag. Tekkið verður heitara en nokkru sinni fyrr og þeir sem státa af panilklædd- um veggjum og hyggj- ast henda þeim út skulu hugsa málíð vel því þetta er að verða aðal- trendið. Retró-hippafíl- ingur kemur í staðinn fyrir mínimalisma. Þegar erlend hönn- unarblöð eru skoðuð má sjá litaglöð heim- ili, túrkíslituð eða bleikmáluð herbergi þar sem skinn eru sett á gólf, pallíettupúðar í rúm og þykkar gard- ínur þekja glugg- ana. Hús- gögnin eru fyrst og fremst þægi- leg. Síðustu ár hefur þjóðin kosið ofurstíli- seruð híbýli en nú er að verða breyting á, svart og hvítt víkur fyrir hlýjum litum. En hvað gera þeir sem vilja losna undan ofursmart- heitunum í býtti fyrir þægindi? Byrjaðu á því að veggfóðra einn vegg í stof- unni. Rókókó-veggfóður er þó á al- gerum bannlista, veldu rendur eða blómamynstur. Þú gætir líka park- ettlagt einn vegg með grófu efni eða látið bólstra vegginn. Fer eftir stemningu á hverju heimili. Settu fullt af púðum í leðursófann þinn og hafðu þá í hlýrri litapallettu. Se- brahestur eða kúaskinn eru alltaf klassísk á gólfið. Í leiðinni væri ekki úr vegi að koma við í Fríðu frænku eða Góða hirðinum og fjár- festa í sérstöku húsgagni sem þú gætir látið bólstra. Til að setja punktinn yfir i- ið má setja glamúrleg ljós í loftið eða glannalega glans- píulampa til að gera þetta að algerri paradís. heima gleði og glysgjörn húsráð Uppinn flytur út – hippinn flytur inn... MAH JONG SÓFINN Franska fyrirtækið Roche Bobois framleiðir þennan dásamlega hippalega sófa sem er engum líkur. Þetta er það sem koma skal, þægindi og hlýlegheit sem eru útfærð á þennan arfa smarta hátt. SEBRAHESTUR Á GÓLFIÐ Bjargar málunum. Skinnið fæst í Hvítlist. TOM DIXON LJÓSIN breyta hverju heimili í skemmtistað. Þau fást í Saltfélaginu. Þessi IKEA-lampi er einn af gullmolunum í ljósadeild verslunarinnar. Þegar hann er kominn í annað umhverfi lítur hann út fyrir að vera hátískuhönnun og vera rándýr. Hann fæst líka í hvítu og svörtu. BEST GEYMDA LEYNDARMÁLIÐ SPEGILL ÚR GULLI gerir kraftaverk. Þessi er úr Tekk Company Paolo, ítalska Ásdís, Spænska Janice, Enska 12 • FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.