Fréttablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 56
Jóhanna Vilhjálmsdóttir er fædd
07.12.1970 sem færir henni lífstöl-
una níu sem gerir það að verkum að
hún á auðvelt með að tengjast orku
alheimsins og hún hefur sérstaka
aðlögunarhæfileika. „Þetta þýðir
það að ef Jóhanna færi til Afríku
yrði hún að svertingja,
ef hún færi í pólitík
yrði hún best,“ segir
frú Klingenberg og
bætir því við að það
kæmi henni ekki
á óvart ef
Jóhanna
ætti eftir
að láta til
sín taka
í pólitík.
„Hún hefur þó örugglega engan hug
á því akkúrat núna því það hentar
henni ekki vel að vera í vinnu þar
sem fólk er tilbúið að bíta í barkann
af minnsta tilefni. Hins vegar hefur
það aldrei velkst fyrir Jóhönnu að
fara ótroðnar slóðir með því að fara
í gegnum fjallið þótt hún komist í
kringum það. Það er ekki til neitt
sem heitir snobb í þessari persónu,
hún á alltaf eftir að vinna fyrir lítil-
magnann. Hún á traust almennings
og á eftir að halda áfram í sjónvarpi
því þar á hún algerlega heima.
Jóhanna er að fara inn í sterka tölu
og mun árið breyta lífi hennar en
það verður alls ekki áreynslulaust.
Mikil spenna á eftir að ríkja í kring-
um hana en fjölskylduhagir verða
góðir og kraftur og samstaða eru
þar einkennandi. Gifting gæti legið
í loftinu ef Geir er með nógu góð
hné til að henda sér á skeljarnar.“
Jóhanna Vilhjálms er vitur og klár
Hún veit hvað hún gerir upp á hár
Alþjóð veit að Jóhanna er heit
En enginn í sjónvarpi er alveg
eins „great“
Kaffikannan er okkur
hjónunum mjög mik-
ilvæg en úr henni
fáum við fullkomið
cappuccino, gerðan úr
kaffi frá Kaffifélaginu
við Skólavörðustíg.
Borðstofuborðið er þungamiðja
heimilis og nýtist okkur á marga
vegu en hér sameinast fjöl-
skyldan í leik og starfi.
Baðkarið er nauðsynlegt
á köldum sem heitum
dögum en ég kýs bað
fram yfir sturtuna enda
er fátt jafn afslappandi
og heitt bað.
bland
í gær og á morgun ...
Kápan mín er mér lífs-
nauðsynleg í kuldanum
en ég fékk hana í jóla-
gjöf frá manninum míum
síðustu jól. Hún er með
loðkraga sem tónar
skemmtilega við háralit-
inn minn og alltaf þegar
ég fer í hana líður mér
dálítið eins og frú.
Japanskur teþeytari,
hefur kannski ekki
mesta notagildið á
heimilinu en ótrúlega
fallegur. Ég er heilluð af
japanskri menningu og
keypti hann í Japan á
sínum tíma.
Bók sem ég fékk í tísku-
vöruverslun á eyjunni
Capri á Ítalíu. Bókin er í
raun kynningarefni frá fata-
hönnuðunum Dries Van
Noten og hefur verið afar
vinsæl hjá yngstu meðlim-
um fjölskyldunnar enda er hún
skreytt afar litríkum myndum.
Ávaxtaskálin er fastur punktur
á heimilinu og er full og tóm til
skiptis en við hjónin fengum hana
í brúðargjöf á sínum tíma.
KLINGENBERG SPÁIR Jóhanna Vilhjálmsdóttir
Gifting gæti legið í loftinu
Snagi eftir Valgerði Guð-
laugsdóttur hönnuð er
einn af lykilhlutunum á
heimilinu en maðurinn
minn gaf mér hann í af-
mælisgjöf árið 1996.
Tinna Gunnarsdóttir
iðnhönnuður
TOPP
10
Kertastjaki eftir sænsku vinkonu mina Önnu Kraitz
er í miklu uppáhaldi en skrautið á kertastjakanum
er eftir aðra sænska vinkonu mína Evu Schildt.
Málverk eftir manninn minn, Sig-
trygg Bjarna Baldvinsson en mál-
verkið gaf hann mér í jólagjöf þegar
við vorum nýbyjruð að vera saman.
Myndin er af hárinu á mér
frá því tímabili þegar það
var vel ljóst.
Kvikmyndin, 27 Dresses, var frumsýnd í gærkvöld. Myndin er stórskemmtileg en hún segir frá Jane
sem þráir ekkert heitar en að giftast. Til að svala brúðkaupsþorstanum gerir hún út á að skipuleggja
brúðkaup og í framhaldinu tekur hún að sér hið veigamikla starf brúðarmeyjar. En ekki er allt sem
sýnist og hlutirnir fara allt öðruvísi en áætlað var. Þetta er mynd sem þú verður að sjá um helgina.
HVAÐ GERIR MAÐUR VIÐ
27 BRÚÐARMEYJARKJÓLA?
Þessi vika var
alveg gjörsam-
lega að fara með
mig. Allir jakka-
fatahnakkarnir í
bankanum ann-
aðhvort á leið til
Balí eða nýkomn-
ir úr skíðaferð-
um og ég fann hvernig afbrýðisemin var
farin að ná tökum á mér. Á miðvikudag-
inn ákvað ég að taka mig taki og fara
í jógatíma til að ná innri ró. Auðvitað
hefði ég getað fengið smá yfirdrátt í
gegnum klíku og skellt mér eitthvert í
smáfrí en vandamálið er bara að Garða-
bæjarvinkonur mínar eru allar í einhverju
krakkastússi eða að byggja (eins
og það er nú hagsætt núna, not).
Restin af klíkunni á engan pen-
ing, það höfðu ekki allir vit á að
fara í viðskiptafræði. Eftir jógatím-
ann var ég örlítið sáttari, fór heim
í bað og dó í sófanum yfir Ljótu
Betty og vaknaði upp með and-
fælum daginn eftir þegar ég var
búinn að missa af einkaþjálfar-
anum sem ég átti að vera hjá
klukkan 06.15. Fokk.
FIMMTUDAGUR 7.
FEBRÚAR
Eftir vinnu fór ég niður í
Sævar Karl til að reyna að
kaupa mér smá hamingju.
Þegar ég var komin í bleikan
glansjakka og rauðan
Pradakjól og opna skó
rankaði ég við mér, klæddi mig aftur í
vinnufötin og skilaði afgreiðsludömunni
fötunum. Auðvitað hefði Prada-kjóllinn
verið málið ef það hefði ekki verið skaf-
renningur og skaflar úti. Fyrst ég var
komin niður í bæ ákvað ég að fara á
kaffihús, lesa tímarit og hafa það gott.
Þegar ég labbaði inn á Sólon gekk ég
beint í flasið á fyrrverandi sem var með
sturluðu týpuna í bandi (þessa sem
hann barnaði í grímupartíinu). Andskot-
inn, þarna gat ég ekki varið mig og án
þess að blikna setti ég upp sparibrosið,
leit á þau og sagði smeðjulega: Sssæ-
ææææl. Eftir þessa skelfilegu lífs-
reynslu pantaði ég mér stóran bjór og
hamborgara og slafraði þessu í mig
meðan ég hugsaði um hvað ég væri
aumkunarverð týpa.
FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR
Ég gat ekki beðið eftir því að losna
úr viðskiptavitleysunni og fá mér smá
kampavín með saumaklúbbnum úr at-
vinnulífinu. B5 stendur alltaf fyrir sínu
þegar skvísurnar hittast. Ég batt mikl-
ar vonir við að fá daðurslegt augnaráð,
bara frá einhverjum, eða að fá kampa-
vínsflösku senda á borðið frá leyndum
aðdáanda. Ó, nei, sú varð ekki raunin.
Ekkert nema einhverjir blankir plebbar
sem áttu pening í fyrra en eiga varla fyrir
kaffi núna. Maður nennir sko ekki að
púkka upp á svoleiðis aula. Ég fór því
heim snemma, en samt nógu full til að
senda fyrrverandi sms með tilheyrandi
skítkasti. Ætla að vera róleg þessa vik-
una eða láta skrá mig inn á Vog ...
díana mist
frunsuplástur!
www.compeed.com
Compeed frunsuplásturinn er
nýjung með Nanocolloid – 075
sem er vísindalega staðfest að
veiti þægilegan og skjótan bata
14 • FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008