Fréttablaðið - 15.02.2008, Page 66
30 15. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
SÖNGVARINN NAT KING COLE
LÉST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1965
FJÖRUTÍU OG SEX ÁRA AÐ ALDRI.
„Þeir sem vita ekkert um
tónlist eru þeir einu sem
alltaf eru að tala um hana.“
Nat King Cole var virtur
bandarískur söngvari og
tónlistarmaður.
MERKISATBURÐIR
1917 Kristín Ólafsdóttir er fyrsta
konan sem lýkur lækna-
prófi frá Háskóla Íslands.
1956 Teikning af Denna dæma-
lausa birtist í fyrsta sinn
í Tímanum er blaðið var
stækkað úr átta síðum í
tólf.
1965 Fáni Kanada með rauðu
hlynsblaði er tekinn upp.
1989 Sovétríkin tilkynna að allir
hermenn þeirra hafi yfir-
gefið Afganistan.
1992 Ásdís, fyrsta Fokker 50-
flugvél Flugleiða hf.,
kemur til landsins.
2003 Yfir sex milljónir manna
um allan heim taka þátt í
mótmælum gegn stríðinu
í Írak.
2005 YouTube, vefur þar sem
notendur geta deilt
myndskeiðum, fer í loftið.
Ingibjörg H. Bjarnason tók sæti á Alþingi Ís-
lendinga þennan dag árið 1922 fyrst kvenna.
Áður hafði hún verið ein tólf kvenna sem
sömdu frumvarp er flutt var á Alþingi árið
1915 um þörfina fyrir byggingu Landspítala og
var formaður Landspítalasjóðs Íslands. Hún
var landskjörin og komst á þing fyrir sérstak-
an kvennalista sem spratt upp úr kvenréttinda-
baráttu þess tíma. Seinna gekk hún til liðs við
Íhaldsflokkinn sem síðar breyttist í Sjálfstæðis-
flokk. Þó hélt hún áfram að berjast fyrir rétt-
indum kvenna. Hún hélt því fram að konur
jafnt sem karlmenn gætu aflað sér þekking-
ar á ýmsum málefnum og konur gætu vel sinnt
störfum sínum utan heimilis ásamt því að
sinna barnauppeldi og heimilishaldi.
Sjálf var Ingibjörg einn stofnenda Lestrar-
félags kvenna í Reykjavík, sat í menntamála-
ráði á árunum 1928 til 1932 og var skólastjóri
Kvennaskólans í Reykjavík frá 1906 til æviloka.
Ingibjörg sat á átta þingum og var þar eina
konan.
ÞETTA GERÐIST 15. FEBRÚAR 1922
Fyrsta konan á Alþingi Íslendinga
INGIBJÖRG H. BJARNASON var á undan sinni samtíð.
„Þörfin er mikil fyrir nýsköpun í
atvinnulífinu, ekki síst á tímum sem
þessum þegar heldur fjarar undan
hefðbundnum atvinnugreinum,“ segir
Þorsteinn I. Sigfússon, forstöðu maður
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Mið-
stöðin var sett á laggirnar í ágúst síð-
astliðnum þegar Iðntæknistofnun og
Rannsóknarstofnun byggingariðn-
aðarins sameinuðust. Höfuðstöðvar
hennar eru á Keldnaholti en hún er að
færa út kvíarnar og setja upp útibú
bæði í Vestmannaeyjum og á Höfn í
Hornafirði. Það er liður í áætlun rík-
isstjórnarinnar um að efla starfsemi
á landsbyggðinni og er gert ráð fyrir
tveimur starfsmönnum á hvorum
stað til að byrja með. Fyrir var útstöð
á Akureyri og einnig á Ísafirði þar
sem þrjár konur starfa. En hver eru
verkefnin sem ætluð eru þessum úti-
búum? Þorsteinn er spurður að því.
„Á Hornafirði viljum við styrkja
ferðaþjónustuna í kringum hinn nýja
Vatnajökulsþjóðgarð, meðal annars
með því að lengja ferðamannatím-
ann með ýmsu móti. Skerpa á matar-
menningu svæðisins þar sem gæða-
hráefni fæst bæði úr hafinu og hagan-
um og efla starfsemi hjá fyrirtækjum
í frumkvöðlasetrinu Frumunni. Eitt
þeirra get ég nefnt sem býr til skilti
og alls kyns kynningarefni sem hent-
ar þjóðgörðum. Þetta eru heimamenn
allt búnir að móta. Hornafjörður er
líka einstakt svæði á Íslandi með til-
liti til jarðefna. Þaðan er hafinn út-
flutningur á efni til Colorado og við
ætlum að tengja byggingarrannsókn-
ir okkar betur þangað og greina frek-
ari möguleika á útflutningi á dýru
jarðefni, eins og gabbrói, granít og
granófír. Flest af því er hægt að finna
brotið við ósinn. Vatnslindir sem
koma undan jöklinum í Hornafirði
eru líka áhugavert rannsóknarefni og
sérnýting á því vatni er til skoðunar í
samráði við áhugamenn.“
Næst eru það Vestmannaeyjar.
Hverjar eru áætlanirnar þar í ný-
sköpun? „Í Vestmannaeyjum sé ég
fyrir mér varmadælur til að hita upp
húsin. Svíar nota jarðhita mikið til
upphitunar með því að skerpa á lág-
hitajarðvarma með rafmagni. Slíkt
fyrirkomulag gengi vel upp í Eyjum.
Þar erum við líka að setja upp fyrstu
Fab Lab-miðstöðina á Íslandi. Það eru
þjálfunarbúðir í tölvutæknilæsi, sem
fyrst voru þróaðar hjá MIT-tækni-
háskólanum í Bandaríkjunum. Mig
dreymir um að það geti farið víðar og
við ætlum að hafa mann í Eyjum sem
getur farið um landið og kynnt fyrir-
bærið.“
Röðin er komin að Ísafirði: „Á Ísa-
firði erum við að velta fyrir okkur
fyrirtæki sem myndi harðbrynja ál
sem myndi auka úrvinnslu og notk-
un álsins. Það gæti orðið sjö manna
vinnustaður. Fleira er í gangi. Stúlka
sem var að ljúka efnaverkfræðinámi
í Svíþjóð er til dæmis að skoða mögu-
leika á orkuöflun á svæðinu með
sjávarfallastraumum.
Svo má geta þess að við erum með
undirbúningsverkefni sem varða
ósvirkjanir því víðast fellur á að ósi
og sums staðar hentar ekki að virkja
sjálft vatnsfallið heldur bara enda-
punktinn. Þar sem blandast salt og
ósalt vatn er mikil orka. Þannig að
margt spennandi er sannarlega fram
undan.“ gun@frettabladid.is
ÞORSTEINN SIGFÚSSON: NÝSKÖPUNARMIÐSTÖÐ ÍSLANDS FÆRIR ÚT KVÍARNAR
Margt spennandi fram undan
ÞORSTEINN I. SIGFÚSSON FORSTJÓRI NÝSKÖPUNARMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS. „Víðast fellur á að
ósi og sums staðar hentar ekki að virkja sjálft vatnsfallið heldur bara endapunktinn.“
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON.Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Jóna Annasdóttir
lést laugardaginn 9. febrúar á heimili sínu,
Brekkugötu 1, Hvammstanga. Jarðsungið verður frá
Hvammstangakirkju sunnudaginn 17. febrúar kl.
14.00.
Guðrún Jóhannsdóttir Hreinn Halldórsson
Ragnheiður Jóhannsdóttir Aðalsteinn Guðmundsson
Benedikt Jóhannsson Ögn Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær maðurinn minn og faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jóhann Tómas Egilsson
frá Akureyri, fyrrum útibússtjóri,
Lækjarsmára 6, Kópavogi,
lést 9. febrúar. Útför hans verður gerð frá
Bústaðakirkju í Reykjavík í dag, föstudaginn 15. feb.
kl. 13.00.
Björg Jónsdóttir
Sigríður Dóra Jóhannsdóttir Ólafur H. Torfason
Egill Jóhannsson Kristín Gunnarsdóttir
Örn Jóhannsson Ane Mette Sørensen
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför bróður okkar,
Kristjáns Árnasonar
frá Kistufelli, síðar að Skálá í Sléttuhlíð,
fer fram frá Reykholtskirkju laugardaginn 16. febrúar
kl. 14.00. Jarðsett verður í Lundarkirkjugarði.
Systkinin.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir,
tengdamóðir og amma,
Guðrún Ingvarsdóttir
(Gígja)
Fossheiði 17, Selfossi,
sem lést á Landspítalanum 6. febrúar síðastliðinn,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 16.
febrúar kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu
er bent á „Göngum saman“ hópinn, sem styrkir rann-
sóknir á brjóstakrabbameini. Rkn. 115-15-380269
Kt. 650907-1750
Magnús Gunnarsson
Sveinfríður H. Sveinsdóttir
Ingvar Magnússon Ásthildur I. Ragnarsdóttir
Ragnheiður Magnúsdóttir Lárus Helgi Kristjánsson
Hjalti Magnússon Ásdís Auðunsdóttir
Guðrún Anna Ingvarsdóttir
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er
sýndu okkur samúð og hlýhug vegna and-
láts og útfarar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
Elsu A. Vestmann
Skarðshlíð 36 f, Akureyri.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Sjúkrahúss
Akureyrar fyrir góða umönnun.
Hallur Sveinsson
Margrét Hallsdóttir Reynir Hjartarson
Sigursveinn Hallsson Ingibjörg Guðjónsdóttir
Þorvaldur Hallsson Kristrún Þórhallsdóttir
Unnur Elva Hallsdóttir Heiðar Ólafsson
Sævar Örn Hallsson Bryndís Valtýsdóttir
Auður Hallsdóttir Birgir Árnason
ömmu- og langömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, bróðir og afi,
Guðni Oddgeirsson
Melás 3, Raufarhöfn,
lést miðvikudaginn 13. febrúar. Jarðarförin auglýst
síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Lára Þorsteinsdóttir
Þorbjörg Rut Guðnadóttir Ársæll Geir Magnússon
Oddgeir Guðnason Elísabet Karlsdóttir
Guðný Guðnadóttir
Árni St. Björnsson
og barnabörn.