Fréttablaðið - 15.02.2008, Page 68

Fréttablaðið - 15.02.2008, Page 68
32 15. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Ég var að hugsa um svolítið... Ég held að Palli og Sara hafi verið að rífast. Já, já! Flyttum saman? Þetta með að borga tvær húsaleigur... Það er nú frekar tilgangslaust! Þú ert hvort sem er alltaf hjá mér, eða ég hjá þér! Svo ég var að hugsa að það væri kannski jafn gott að við... Veistu... tvær húsaleigur! Það er frekar tilgangslaust. Þá er kannski jafn gott að við... Jaaaá... Júú... Já! Varstu að hugsa um það sama? Mmh? Ég er að reyna að hjálpa. Svo honum líður virki- lega illa. Kaloríu- meðferð? Ef þú efast, berðu mat á sárið. ...og veifaði bless, þegar hún reið framhjá enginu og út í víðáttuna. Mjá Móðgaðu aldrei kokkinn. Það var ekkert. Takk, pabbi! Og takk, mamma! En sætt að hún vildi láta okkur skiptast á að lesa upphátt í kvöld. Ohh. En dásamlegt barn! Þetta var rétt hjá þér. Mamma er miklu andfúlli en pabbi. Það vantaði tómatsósu! Og Davíð, lofar þú að elta Lísu í verslunarferðum og verða aldrei þreyttur? Í gær fögnuðu elskendur um víða veröld Valentín- usardeginum – bleikasta og væmnasta degi ársins. Ég notaði tækifærið og ræddi við vinkonu mína um tilbúnar hátíðir eins og þessa sem við látum stjórna lífi okkar. Báðum þótti okkur skrítið að alvöru stórhátíðir eins og jól, páskar og hvítasunna hefðu bara lítinn staf í nafni sínu á meðan Valentínusardagurinn skart- aði stórum staf. Auðvitað vissum við bæði ástæðuna, enda dregur dagurinn nafn sitt af heilögum Val- entínusi. Engu að síður þótti okkur skemmtilegra að kenna hinni miklu aðdáun Íslendinga á amerískri menningu um stóra stafinn. Við Íslendingar höfum nefnilega alltaf verið fljótir til að ættleiða amer- íska siði og ósiði. Í kvikmyndinni Eternal Sunshine of the Spotless Mind segir að Valentínusardagurinn sé dagur sem framleiðendur póstkorta hafi fund- ið upp. Eflaust er margt til í því, enda er áætlað að um milljarður Valentínusarkorta séu sendur manna á milli ár hvert. Það er því mikill iðnaður og fjöldi starfa skap- ast í kringum þessa væmni. Af ein- hverri undarlegri og óskiljanlegri ástæðu fékk ég samt ekki neitt af þessum fjölmörgu kortum. Ég lét sem mér væri sama. Ég væri hvort eð er of kúl fyrir svona lagað. Samt fann ég að innst inni langaði mig í Valentínusarkort. Sennilega eru allir örlítið væmnir inni við beinið, sama hversu töff þeir látast vera. Það er því leiðinlegt að við höfum ekki innleitt annan og betri sið frá Bandaríkjunum en það er dagur þeirra sem eru á lausu. Sá dagur heitir upp á enska tungu Singles Awareness Day (skammstafað SAD) og er ýmist haldinn hátíðleg- ur daginn fyrir eða eftir Valentín- usardag. Þá koma einhleypingar á öllum aldri saman og fagna sjálfum sér. Í dag er því rétti tíminn fyrir okkur sem erum á lausu til að bera höfuðið hátt. Við getum meira að segja „híað“ á væmnu og ástföngnu pörin sem leiðast um götur og stræti. Í dag eru þau kjánaleg. Í dag erum við sigurvegarar. Gleði- legan dag einhleypra. STUÐ MILLI STRÍÐA Dagur einhleypra ÖRLYGUR HNEFILL ÖRLYGSSON FÉKK EKKERT VALENTÍNUSARKORT Í GÆR MasterCard Mundu ferðaávísunina! SÉRFERÐIR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.