Fréttablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 76
40 15. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> ILLT AUGA
Breska ofurfyrirsætan Agyness Deyn,
sem er meðal eftirsóttustu fyrir-
sætna þar í landi þessa dagana,
lætur ekki hvað sem er stoppa
sig. Tískuvikan í London stend-
ur nú yfir, en svo illa vill til að
Deyn er illa haldin af augnsýk-
ingu. Málið var hins vegar leyst
í snatri með köflóttum sjó-
ræningjalepp hjá Henry Hol-
land, og fyrirsætan bar sólgler-
augu þegar hún tók á móti Elle
Style-verðlaunum fyrr í vikunni.
Grímsey
Hofsjökull
Húnaflói
Blöndulón
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Hofsjökull
Stærsta GSM þjónustusvæðið
Stórtíðindi úr
Skagafirðinum
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Ung kona staðhæfir að hún hafi náð GSM sambandi á
bóndabýli foreldra sinna í Skagafirðinum. Það þykir
ótrúlegt, enda hefur ekki náðst slíkt samband þar áður –
svo lengi sem elstu menn muna. Eina tiltæka skýringin er
sú að stúlkan hefur yfir að ráða farsíma frá Vodafone.
– Sönn saga frá 1414.
Með tilkomu langdræga GSM kerfisins býður Vodafone
nú stærsta GSM þjónustusvæðið á Íslandi. Skiptu yfir
til Vodafone, án þess að skipta um símanúmer, með einu
símtali í 1414 – strax í dag.
Capacent birti nýlega
áhorfstölur sem unnar eru
samkvæmt nýrri tækni.
Sjónvarpsáhorf er miklu
meira en áður var talið.
„Já, ég er mjög ánægður að fólk
hafi áhuga á að horfa á það sem við
höfum upp á að bjóða,“ segir Þór-
hallur Gunnarsson dagskrárstjóri
hjá Ríkisútvarpinu.
Nýjustu áhorfstölur, sem fundn-
ar voru út með sérstakri tækni, þar
sem viðmiðunarhópur Capacent
ber á sér tæki sem nemur útvarps-
bylgjur, voru í fyrsta skipti gerðar
opinberar í gær. Þær sýna algera
yfirburði Sjónvarpsins. Á topp 30
lista yfir vinsælustu dagskrárliði
eru 23 Sjónvarpsins. Stöð 2 nær að
lauma sér inn í 12. sætið með
Pressu (30,6%) og í 19. sæti með
Sjálfstætt fólk (28,5%) Annars á
Sjónvarpið sviðið.
Vikuna 28. janúar – 3. febrúar
mælast Laugardagslögin með 63
prósenta áhorf. Spaugstofan 57,3
prósent og kvöldfréttir Sjónvarps
46,6 prósent. Þórhallur segir það
magnað að 63 prósent landmanna
setjist fyrir framan sjónvarps-
tækið að kvöldi laugardags til að
horfa á skemmtiþátt. Aðspurður
segist hann ekki ætla að fagna
þessum tölum með því að slá tappa
úr kampavínsflösku þótt tilefni sé
til. Það sé ekki hans stíll.
Áhorfstölur eru lygilega háar,
miklu hærri en tölur sem sýndu sig
í dagbókarkönnun. Svo virðist sem
fólki hafi blöskrað eigið sjónvarps-
gláp þegar það færði inn neyslu
sína og dregið úr. En tækin ljúga
ekki.
„Já, gríðarlega háar tölur og með
ólíkindum. Ótrúlega gaman að sjá
þetta. Íslenskir þættir eru að mæl-
ast vel og greinilega eftirspurn
eftir slíku efni,“ segir Þórhallur.
Í tölum sem taka svo til 4. til 10.
febrúar eru Laugardagslögin enn á
toppnum með 54 prósent. Gettu
betur mælist með 53 prósent og þá
Spaugstofan með 51,3 prósent. Sjá
meðfylgjandi lista.
jakob@frettabladid.is
Algerir yfirburðir
Ríkissjónvarpsins
ÁNÆGÐUR Þórhallur Gunnarsson dag-
skrárstjóri er ánægður með nýja áhorfs-
mælingu Gallups. Þar eru yfirburðir
Ríkissjónvarpsins miklir.
Fóstbræðragengið úr samnefndum
þáttum afhenti í gær Umhyggju
ávísun upp á tæplega þrjár og
hálfa milljón íslenskra króna. Er
þetta ágóðinn sem kom af sölu
fimm DVD-diska með öllum þátta-
röðum Fóstbræðra. Ragna K.
Marinósdóttir, framkvæmdastjóri
Umhyggju, veitti ávísuninni við-
töku en félagið vinnur að bættum
hag sjúkra barna og fjölskyldna
þeirra.
Gjafmildir Fóstbræður
Hljómsveitin REM ætlar í tónleika-
ferð um Bandaríkin og Evrópu til
að fylgja eftir nýjustu plötu sinni
Accelerate.
Hljómsveitirnar
Modest Mouse
og The National
hita upp fyrir
sveitina í
tónleikaferðinni
um Bandaríkin.
Evróputúrinn
stendur yfir frá
júlí til september og mun sveitin
spila á nokkrum tónleikahátíðum á
þessum tíma. Platan kemur í búðir
31. mars hjá útgáfurisanum
Warner Brothers. Hún verður
fáanleg í hefðbundinni útgáfu og
viðhafnarútgáfu. Hinni síðar-
nefndu fylgir 64 blaðsíðna
bæklingur og DVD-mynddiskur
með ýmiss konar góðgæti.
REM ferðast
um heiminn
REM Hljómsveitin
REM gefur út nýja
plötu á næstunni.
Blúshátíðin Norðurljósablús verður
haldin í þriðja sinn á Höfn í Hornafirði
dagana 28. febrúar til 2. mars á vegum
Hornfirska skemmtifélagsins.
„Í ár ákváðum við að leggja áherslu á
að gefa ungum tónlistarmönnum
tækifæri og vera ekki með þessi
þekktu íslensku nöfn sem við
höfum verið með,“ segir
Sigurður Már Halldórsson,
einn af skipuleggjendunum.
Íslensku sveitirnar sem koma fram
eru Grasætur frá Hafnarfirði, Johnny
and the Rest frá Reykjavík, Blúsbrot
frá Stöðvarfirði og Vax frá Egilsstöð-
um, ásamt hornfirsku sveitunum
Mæðusveitin Sigurbjörn og Hulda Rós
og Rökkurtríóið. Einnig munu bræðurn-
ir Ómar og Óskar Guðjónssynir frá
Hornafirði spila ásamt hljómsveit sinni.
Þrjár erlendar hljómsveitir koma
fram á hátíðinni: Øernes Blues Band frá
Danmörku og hinar sænsku Street
Cowboys og Emil & the Ecstatics. Þeir
síðastnefndu voru aðalgestir Norður-
ljósablúss 2006 og vöktu mikla lukku.
„Við renndum algjörlega blint í sjóinn
með fyrstu hátíðina en við fengum fullt
af fólki og ákváðum strax að halda
áfram,“ segir Sigurður Már. „Við
lentum í hremmingum á hátíðinni í
fyrra. Það gerði vitlaust veður og bæði
komust gestir og listamenn ekki til
okkar. Björgunarsveitin sótti Pálma
Gunnarsson og hans menn og fylgdi
þeim í gegn frá Akureyri,“ segir hann
og vonast eftir betra veðri í þetta sinn.
„Við bara tökum á því þegar þar að
kemur, svoleiðis er blúsinn. Þetta er
bara spuni.“ - fb
Ungir blúsarar fá tækifæri
JOHNNY AND THE REST Hljómsveitin Johnny
and the Rest spilar blús á Höfn í Hornafirði.
GÁFU ÁGÓÐANN Fóstbræðragengið ákvað að gefa ágóðann af sölu fimm mynddiska
til Umhyggju og nam ávísunin tæplega þremur og hálfri milljón íslenskra króna.
Vinsælustu sjónvarpsþættirnir
1. Laugardagslögin (RÚV) 54,7%
2. Gettu betur (RÚV) 53%
3. Spaugstofan (RÚV) 51,3%
4. The Librarian (RÚV) 48,6%
5. The Break Up (RÚV) 44,8%
6. Kvöldfréttir (RÚV) 37,5%
7. Curious Tribe (RÚV) 37,1%
8. Kastljós (RÚV) 36,8%
9. Brothers & Sisters (RÚV) 33,7%
10. Forbrydelsen (RÚV) 33,4%
11. Sunnudagsþáttur Evu Maríu (RÚV) 31,7%
12. Criminal Minds (RÚV) 31,2%
13. Top Gear (Skjár einn) 30,8%
14. Taggart (RÚV) 29,6%
15. Gettu betur (e) (RÚV) 28,6%
16. Shaun the Sheep (RÚV) 27,5%
17. American Idol (Stöð 2) 27,2%
18. Laugardagslögin - úrslit (RÚV)
25,9%
19. CSI: New York (Skjár einn) 25,8%
20. Fréttir Stöðvar 2 (Stöð 2) 24,7%