Fréttablaðið - 15.02.2008, Síða 77

Fréttablaðið - 15.02.2008, Síða 77
FÖSTUDAGUR 15. febrúar 2008 Fyrsta einkasýning listmál- arans Þrándar Þórarins- sonar verður opnuð í húsi Ó. Jónssonar og Kaaber á laugardag. Þrándur hrökkl- aðist á sínum tíma úr námi sínu í Listaháskóla Íslands og gerðist nemandi hjá hin- um norska Odd Nerdrum. „Það var ekki hljómgrunnur fyrir því sem ég var að gera og mér var sagt að ég gæti alveg eins gert þetta heima,“ segir Þrándur um hvarf sitt úr málaradeild Lista- háskóla Íslands. „Þessi gömlu málverk voru ekki málið og alltaf þegar ég spurði út í þau var sagt að ég gæti lesið um þau í bókum.“ Í kjölfarið hitti Þrándur hinn umdeilda listamann Odd Nerdrum og lærði að mála heima hjá honum í gamla Borgarbókasafninu. „Hann leyfði fólki að koma og mála hjá sér. Kennslan var aðal- lega fólgin í því að fylgjast með hvernig hann gerði þetta. Ég lærði heilmikið á þessu. Þessi tími með honum var algjör guðsgjöf.“ Á einkasýningunni sýnir Þrándur stór olíumálverk og sækir hann mörg viðfangsefni sín í íslenska sögu, þjóðsögurnar og Íslendingasögurnar undir áhrif- um barokks og endurreisnar. Í verkum hans má finna þekkt stef úr íslenskri sögu, meðal annars Njálu og Egilssögu, auk þess sem Galdra-Lofti, Miklabæjar-Sól- veigu og Jóni Arasyni bregður fyrir. Þrándur segir að telja megi á fingrum annarrar handar þá lista- menn sem máli í sama stíl og hann hérlendis. Flestir listamenn efni til gjörninga eða búi til annars konar list sem telst nútímalegri. „Þetta er búið að vera algjört tabú í listaheiminum. Fyrir þrjátíu árum var þetta algjörlega bannað en núna er þetta aðeins að aukast. Síðan er þetta líka gríðarlega mikil vinna og þarf margra ára nám til að ná tökum á þessu. Þetta er kannski ekki auðveldasta leiðin til að nálgast hlutina. Þessum stíl hefur aldrei verið hampað og mál- arar hafa átt erfitt uppdráttar með að koma sér á framfæri og fá að halda sýningar,“ segir hann. Sýning Þrándar stendur yfir frá 16. febrúar til 1. mars. freyr@frettabladid.is Tíminn með Odd Nerdrum guðsgjöf ÞRÁNDUR ÞÓRARINSSON Þrándur við sjálfsmynd sem hann málaði af sér í hlutverki bresks lávarðar. Náman námsmannaþjónusta Landsbankans 410 4000 | landsbanki.is Árlega veitir Lands bankinn viðskiptav inum Námunnar veglega námsstyrk i. Nú er komið að þ ví að velja hæfustu umsækjendur til N ámsstyrkja Landsb ankans í 19. sinn. Umsóknarfrestur er til 3. mars 2008 . Allar nánari uppl ýsingar og skráningarblöð er að finna á land sbanki.is Styrkirnir skiptast þannig 3 styrkir til framh aldsskóla- og iðnn áms, 150.000 kr. h ver 3 styrkir til háskól anáms (BA/BS/BEd ), 300.000 kr. hver 4 styrkir til framh aldsnáms á háskó lastigi, 350.000 kr . hver 3 styrkir til listnám s, 350.000 kr. hver Mig langar til að … … nota tímann núna eftir hátíðarnar til að koma mér í form eftir barns- burð. Ég er svolítil dellukona og hef gaman af að taka á hlutunum. Ég byrja líka í nýrri vinnu og hlakka mikið til að fást við ný verkefni. Eva Ýr Gunnlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur Kellogg's Special K kemur mér á sporið Það er svo frábært þegar sólin hækkar á ný eftir hátíðarnar að hlaða batteríin og finna kraftinn streyma um æðarnar. Fara á fullt í ræktina og rifja upp allt sem ég auðvitað veit um næringu og hollustu. Kellogg's Special K er eitt af því sem kemur mér auðveldlega á sporið á ný, bragðgóður en fitusnauður morgunmatur, fullur af vítamínum og steinefnum. Svo er líka frábært að eiga ljúffenga stöng af Special K við höndina, ef mann langar í eitthvað sætara, bara 90 hitaeiningar. F í t o n / S Í A F I 0 2 4 2 9 1 specialk.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.