Fréttablaðið - 15.02.2008, Side 86
50 15. febrúar 2008 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Dagur Sigurðsson
2 Ein
3 Valgeir Guðjónsson
LÖGIN VIÐ VINNUNA
„Ég hlusta nú bara á dagskrá
Ríkisútvarpsins. Gerður G.
Bjarklind á föstudögum er
algjör snilld.“
Helgi Örn Pétursson verslunareigandi.
LÁRÉTT
2. eyja í Asíu 6. íþróttafélag 8. málm-
ur 9. sægur 11. til dæmis 12. ofan á
brauð 14. menntastofnun 16. drykkur
17. gestrisni 18. hrópa 20. fyrir hönd
21. glufa.
LÓÐRÉTT
1. þurrka út 3. bardagi 4. kölkun 5. á
móti 7. holdýr 10. segi upp 13. væl
15. innyfla 16. skír 19. frá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. java, 6. fh, 8. tin, 9. mor,
11. td, 12. álegg, 14. skóli, 16. te, 17.
löð, 18. æpa, 20. pr, 21. rifa.
LÓÐRÉTT: 1. afmá, 3. at, 4. vitglöp, 5.
and, 7. holsepi, 10. rek, 13. gól, 15.
iðra, 16. tær, 19. af.
Athygli vakti þegar Davíð Odds-
son Seðlabankastjóri tók í spil
við opnun Bridgehátíðar 2008 í
fyrrakvöld. Þar sat hann til borðs
með Jóni Steinari Gunnlaugssyni
Hæstaréttardómara og fleiri góðum
mönnum. Eitthvað hefur þó fundur
um vaxtaákvörðun Seðlabankans
daginn eftir setið í Davíð því spila-
mennskan þótti ekki upp á marga
fiska. Mun Davíð hafa haft á
orði í gær að það hefði
ekki truflað hann mikið
þó illa hefði gengið,
verra hefði verið
að draga hinn ágæta
bridge-spilara Jón
Steinar niður
með sér um
leið.
Greint var frá forvitnilegri ritdeilu
þeirra Einars Ágústs Víðissonar
og Guðmundar Gíslasonar á
þessum stað í blaðinu í fyrradag.
Deilan snerist um ágæti útvarps-
stöðva og virtust skoðanir
þeirra hafa mótast af
því hvaða stöð spilaði
tónlist þeirra sjálfra.
Stór orð féllu. Dr.
Gunni bendir á blogg-
síðu sinni á
önnur forvitni-
leg ummæli
á netinu, en
þau eru á
heimasíðunni
Bubbi.is.
Á spjallborði síðunnar lætur
Ásbjörn nokkur til sín taka og
virðist vera um sjálfan Bubba
Morthens að ræða. Ásbjörn er
óánægður með gagnrýni á sjón-
varpsþátt sinn í fjölmiðlum. Hann
tiltekur sérstaklega gagnrýni hér í
Fréttablaðinu og svo í DV þar sem
rapparinn Dóri DNA skrifaði um
kónginn. Inntak skammarræðu
Bubba, sé þetta þá hann sem
skrifar, er á þá leið
að Dóri DNA hafi
helst unnið sér það
til frægðar að vera
útþynnt gen komið frá
Nóbelsskáldinu, eins
konar „vonnabí“ sem
þó hafi ekki náð
lengra en að skrifa
um kvikmyndir
og Bandið hans
Bubba. - hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Það er ekkert farið að draga úr áhuga á stjórnmála-
fræði, það er bara heilmikil samkeppni um nemend-
ur í þessum fræðum,“ segir Margrét S. Björnsdóttir,
forstöðumaður við stjórnmálafræðiskor Háskóla
Íslands, en deildin auglýsir nú námið af miklum
krafti í sjónvarpsauglýsingum á Skjá einum.
Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er þetta í
fyrsta skipti sem námsdeild innan HÍ auglýsir
námið sitt með þessum hætti en ekki er óalgengt að
hinir svokölluðu einkaháskólar kynni sitt nám eftir
þessum leiðum. „Við vildum bara nota þetta til að ná
til ungs fólks og vekja athygli á því að stjórnmála-
fræði er ekki bara fyrir fólk sem ætlar að ná langt í
pólítík,“ segir Margrét og bætir því við að stjórn-
málafræðin sé bara að nútímavæðast og í hálfgerðri
útrás.
Þótt stjórnmálafræði sé ekki útungunarstöð fyrir
pólitíkusa hafa fjölmargir stjórnmálamenn setið á
skólabekk í Odda, húsi stjórnmálafræðarinnar, og
nægir þar að nefna Hönnu Birnu Kristjánsdóttur,
Gísla Martein Baldursson og heilbrigðisráðherrann
Guðlaug Þór Þórðarson. Spurð hvernig Kristínu
Ingólfsdóttur, rektor Háskólans, hafi litist á þessa
leið stjórnmálafræðarinnar segir Margrét að hún sé
eflaust mjög sátt enda nútímaleg í hugsun. - fgg
Fræðin auglýst í fyrsta sinn
„Blessaður vertu, Íslendingar
virðast ekkert hafa verið að hlusta
á vaxtatilkynningu Davíðs og
félaga í Seðlabankanum og þessi
dagur er miklu betri en sá í fyrra,“
segir Laufey Kristjánsdóttir hjá
blómabúðinni Ísblómum, spurð
hvort kreppan margumrædda hafi
haft áhrif á blómakaupin á Valent-
ínusardeginum.
Dagur elskenda og ástarinnar
virðist smám saman vera að fikra
sig upp að hlið konudagsins sem
blómavænasti dagur ársins en
hingað til hefur fólk haft horn í
síðu dagsins sökum þess að hann
er nánast alamerísk hefð. Að sögn
blómafólks í Reykjavík var allt
brjálað að gera seinnipart dags.
„Ætli dýrasti blómvöndur-
inn hafi ekki kostað í
kringum sextán þúsund
krónur,“ segir Hafdís
Hafþórsdóttir hjá
Árbæjarblómum.
Á þeim bænum
höfðu menn orðið
varir við að eldra
fólk væri búið að taka
daginn í sátt en hingað
til hefur Valentínusar-
dagurinn aðallega verið
hafður í hávegum hjá yngri
kynslóðinni.
Aðalheiður Gestsdóttir hjá
Blómaverkstæði Binna tók undir
það og sagði fólk á öllum aldri og
af öllum kynjum kaupa blóma-
vendi handa sínum heittelskaða
maka. „Þrjátíu þúsund er
sá dýrasti sem ég
hef selt og hann
var hálfgert
blómahaf með
rósum og lilj-
um og eigin-
lega öllu,“ segir
Aðalheiður. Guð-
rún Einarsdóttir í
Blómavali í Skútu-
vogi segir að hjá sér
hafi margir ungir piltar
hlotið eldskírn sína í að kaupa
blóm handa fyrstu ástinni og þá
oftast eina rós og kort. „Við létum
síðan miða fyrir tvo í bíó fylgja í
kaupbæti,“ segir hún en dýrasti
blómvöndurinn sem farið hafði út
úr húsi kostaði litlar tíu þúsund
krónur. - fgg
Kreppan kreppti ekki að Valentínusi
GLEÐI Á VALENTÍNUSARDEGINUM
Kreppan hafði ekki mikil áhrif á blóma-
kaup Íslendinga, sem hafa smám saman
tekið Valentínusardaginn í sátt.
Í ÚTRÁS Margrét með þeim Gunnari Helga Kristinssyni og
Ómar Kristmundssyni en stjórnmálafræðin auglýsir nú á Skjá
einum.
„Við þurfum svo sem enga bak-
raddasöngvara. Ég er til dæmis svo
kröftugur að ég gæti tekið þetta
einn. Þótt þetta séu toppmenn í hús-
bandinu var þetta óþarfi og hugsað
sem alger uppfylling,“ segir Egill
Einarsson, talsmaður Mercedes
Club, sem keppir í Laugardagslög-
unum.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir mikilli ólgu meðal þátttak-
enda í forkeppni Eurovision-keppn-
innar. Eru reglur sagðar beygðar til
að hygla lagi Barða Jóhannssonar
Ho ho ho, we say hey hey hey, en í
13. grein segir að keppendur á sviði
megi aðeins vera sex. Í undan-
úrslitum síðasta laugardagskvöld
voru auk meðlimanna fimm þrír
bakraddasöngvarar úr hljómsveit
hússins sem sungu með í viðlaginu:
Ólafur Hólm trommari, Vignir Þór
Stefánsson hljómborðsleikari og
Stefán Már Magnússon gítarleikar-
inn snjalli. „Ég neita að tjá mig um
málið og vísa því til föðurhúsanna,“
segir Ólafur aðspurður hvernig það
sé að vera í miðju meints svindls.
Reglurnar eru reyndar óljósar.
Þannig segir í 24. grein reglna sem
tóku gildi árið 1. ágúst 2007 að Sjón-
varpið áskilji sér fullan rétt til að
breyta reglunum, túlka og skera úr
um öll vafaatriði sem upp kunna að
koma. Regluverkið kemur ekki til
af góðu. Komið hafa upp álitamál í
tengslum við forkeppnina hér
heima og er skemmst að minnast
átaka sem urðu árið 2006 milli hóps
þátttakenda sem Kristján Hreins-
son Skerjafjarðarskáld fór fyrir og
svo Silvíu Nætur sem sögð var hafa
dreift lagi sínu opinberlega, þver-
brotið reglurnar og voru uppi kröf-
ur um að Silvíu yrði vísað úr
keppni.
Þorvaldur Bjarni er tónlistar-
stjóri keppninnar og hann segir
engar reglur hafa verið brotnar.
Allir sitji við sama borð og megi
nýta sér raddir húsbandsins. „Nei,
það kannski nýtist ekki öllum. En
ef þú vilt stækka bakraddirnar þá
getur þú það. Fleiri nýttu sér þetta,
til dæmis þau í Wiggle Wiggle
Song.“
Þórhallur Gunnarsson dagskrár-
stjóri tekur í sama streng, fyrir-
komulag hafi legið fyrir og verið
samþykkt á fundi lagahöfunda.
„Raddirnar voru í fyrstu umferð á
teipi og svolítið mikið að taka það
allt af þeim í þessari umferð. En úti
mega bara vera sex á sviðinu.“ Þór-
hallur er ánægður með hversu
alvarlega menn taka keppnina enda
vilja allir komast til Serbíu og
syngja fyrir 300 milljónir manna.
Þorvaldur Bjarni telur reyndar
lítið þurfa að hjálpa laginu hans
Barða. „Brilljansinn við þetta er að
hægt væri að hafa taminn apa til að
segja hó og hey og það kæmi vel
út.“
Egill Einarsson hafnar aðspurð-
ur því að söngkennari bakvarðar-
sveitar Mercedes Club sé að verða
gráhærður. „Gæti ekki verið
ánægðari með okkur. Ég þurfti
minnst á söngkennslunni að halda
enda tónlistarmaður. En það þurfti
að fínpússa suma. En við þrír
munum klára þetta. Við þrír munum
fara til Serbíu.“ jakob@frettabladid.is
ÞORVALDUR BJARNI: ALLIR SITJA VIÐ SAMA BORÐ Í LAUGARDAGSLÖGUNUM
Sökuð um svindl í Eurovision
MERCEDES CLUB Mikil ólga er meðal keppenda í Laugardagslögunum og dagskrárstjóri segir gott að fólk taki keppnina alvarlega.
Mercedes Club er í miðju ólgunnar. Meðlimir sveitarinnar eru sakaðir um svindl. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
...ég sá það á visir.is
VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ
Viðskiptaráðuneytið hefur
nú fl utt sig um set,
Úr Arnarhváli að Sölvhólsgötu 7,
í Reykjavík
Nýtt símanúmer ráðuneytisins
er 545 8800
Sölvhólsgötu 7 • 150 Reykjavík
Sími 5458800 • Fax 511 11 61
www.vidskiptaraduneyti.is