Fréttablaðið - 26.02.2008, Síða 2

Fréttablaðið - 26.02.2008, Síða 2
2 26. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR Egill, er ennþá bit í Þursun- um? „Ja, það er engan bilbug á okkur að finna eftir þrjátíu ár.“ Þursaflokkurinn hélt þrjátíu ára afmælis- tónleika um helgina. Hljómsveitin gaf meðal annars út plötuna Þursabit. Egill Ólafsson er söngvari Þursanna. noatun.is LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ Saltfiskréttur að hætti Börsunga 998 Nóatún mælir með kr. kg. þriðjudagur Spennandi STJÓRNSÝSLA Borgarstjórn Reykja- víkur barst í gær bréf Tryggva Gunnarssonar, umboðsmanns Alþingis, þar sem varpað er fram nýjum spurningum um REI-málið. Spurningarnar snúast meðal annars um aðkomu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, þáverandi borgar- stjóra, að málum tengdum samein- ingu Reykjavik Energy Invest (REI) og Geysis Green Energy (GGE) í svokölluðu REI-máli. Umboðsmaður rannsakar málið að eigin frumkvæði. Í bréfinu, sem Fréttablaðið hefur undir höndum, er meðal annars spurt hvort Vilhjálmi hafi verið ljóst, eða hefði mátt vera ljóst, þegar hann samþykkti samruna REI og GGE á eigendafundi að ekki væri meirihluti fyrir samrunanum í borgarstjórn. Þetta er annar spurningalistinn sem umboðsmaður hefur sent borgaryfirvöldum vegna málsins. Nýja bréfið er dagsett 22. febrúar og óskað eftir svari fyrir 14. mars. Fyrri spurningum, sem sendar voru 9. október síðastliðinn, var svarað hinn 30. október með skýrslu stýrihóps sem fór yfir mál- efni REI. Í fyrra bréfi Tryggva er meðal annars spurt um kaupréttarsamn- inga sem veita átti starfsmönnum Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og REI. Í bréfinu sem sent var í gær er vísað í svar borgarlögmanns, þar sem fram kemur að kaupréttar- samningar hafi áður verið gerðir í félögum sem OR hafi stofnað eða komið að. Voru Lína.Net og Enex nefnd í því samhengi. Í framhaldinu krefst umboðs- maður upplýsinga um kaup starfs- manna, stjórnarmanna, stjórnenda eða félaga í þeirra eigu á hlutum í slíkum félögum tengdum OR. Hann spyr hvort samningar um slík kaup hafi gengið eftir, og hvort þeir séu enn í gildi, til dæmis í Gagnaveitu Reykjavíkur, dótturfélagi OR. Tryggvi óskar jafnframt eftir upplýsingum um það hvort slíkir kaupréttarsamningar hafi verið samþykktir í stjórn OR eða á eig- endafundum. Að lokum spyr umboðsmaður hvort einhverjar breytingar hafi verið gerðar á þeim samþykktum og reglum borgarinnar sem á reyndi í REI-málinu, og fjallað er um í skýrslu REI-stýrihópsins. Ólafur F. Magnússon borgar- stjóri sagðist ekki hafa náð að kynna sér efni bréfsins þegar rætt var við hann í gærkvöldi. Ekki náðist í Vilhjálm Þ. Vil- hjálmsson, formann borgarráðs. brjann@frettabladid.is Umboðsmaður spyr borgarstjórn um REI Umboðsmaður Alþingis spyr hvort Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni hafi mátt vera ljóst að meirihluti borgarstjórnar var andvígur samruna GGE og REI. Einnig er spurt um kaupréttarsamninga sem gerðir hafa verið í félögum tengdum OR. TRYGGVI GUNNARSSON VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON NÝJAR SPURNINGAR Í bréfi Umboðsmanns Alþingis er sex spurningum um málefni tengd REI-málinu varpað til borgarstjórnar Reykjavíkur. SJÁVARÚTVEGUR Árni Friðriksson, rannsóknarskip Hafrannsókna- stofnunar, er nú á loðnuslóð sunnan við landið eftir að hafa siglt úr höfn í Reykjavík á sunnu- dag. Vegna versnandi veðurs náð- ist ekki að klára mælingar á loðnutorfu sem loðnuskipstjórar telja afar stóra, sagði Sveinn Sveinbjörnsson, fiskifræðingur um borð í Árna Friðrikssyni, seinnipart dags í gær. Rannsóknarskipið fann um þriggja sjómílna langa loðnu- torfu undan Hjörleifshöfða snemma í gær og voru vísinda- menn langt komnir með að mæla torfuna þegar þeir urðu að hætta sökum brælu. Sveinn sagði veð- urútlit þó sæmilegt og líklegt að mælingar hæfust að nýju í nótt. Sveinn segir allt of snemmt að segja til um hvort nægilegt magn loðnu finnist til að hægt sé að hefja veiðar á ný. Um einn og hálfan sólarhring getur tekið að mæla þá torfu sem nú er fundin og eftir það er ætl- unin að halda austur á bóginn. Einhverja daga í það minnsta þurfi til að leita og mæla áður en hægt verði að ræða um möguleg- ar breytingar á ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar um að loðnu- veiðum verði hætt. - bj Rannsóknarskip Hafrannsóknastofnunar komið á loðnuslóð og byrjað að mæla: Bræla tafði mælingar á loðnu DANMÖRK Langt leiddir sprautu- fíklar í Danmörku munu þegar á þessu ári, að uppfylltum ákveðn- um skilyrðum, geta fengið ókeypis heróínskammt hjá lækni. Allir flokkar á danska þinginu, að vinstrijaðar-Einingarlistanum undanskildum, hafa sameinast um tillögu um að setja sem svarar 130 milljónum íslenskra króna á þessu ári og andvirði 780 milljóna á því næsta í þetta verkefni Meðal settra skilyrða fyrir að fá heróínskammt á kostnað ríkisins er að þiggjandinn samþykki að ganga undir meðferð og að hann sé í standi til að mæta þrisvar á dag til að fá heróínskammtinn. - aa Dönsk meðferðartilraun: Heróín gefið hjá lækninum STJÓRNMÁL Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra viðurkenndi á Alþingi í gær að hafa svarað fyrirspurn Steingríms J. Sigfús- sonar, um skattamál vegna Kárahnjúkavirkjunar, ranglega. Steingrímur hefur frá því árið 2003 fjórum sinnum spurt fjármálaráðherra Sjálfstæðis- flokksins út í hvort engin álitamál væru uppi vegna skattgreiðslna Impregilo vegna byggingu Kárahnjúkavirkkjunar. Eins og greint hefur verið frá í Fréttablaðinu greiðir ríkið eina milljón króna á dag í dráttarvexti eftir að Hæstiréttur dæmdi að ríkið skuldaði Impregilo 1,2 milljarða ásamt vöxtum. Árni sagði dóm Hæstaréttar hafa farið gegn áliti ríkisskattstjóra og héraðsdóms. - mh Steingrímur J. Sigfússon: Fékk alltaf vitlaus svör KJARAMÁL Mikill fjöldi skurðhjúkr- unarfræðinga, svæfingarhjúkrun- arfræðinga og geislafræðinga á Landspítalanum íhugar að segja upp starfi sínu um mánaðamótin en alls eru það rúmlega 150 manns sem við þessi störf starfa á spítal- anum. Ástæðan er megn óánægja með nýtt vaktafyrirkomulag sem tekur gildi um mánaðamót. Tals- menn starfsfélaga leggja áherslu á að ekki sé um skipulagðar hópupp- sagnir að ræða heldur taki hver og einn ákvörðun á sínum forsendum. „Þessar breytingar leggjast afar illa í okkur. Við teljum að þeir sem að nýju vaktarplani standa séu ekki með á nótunum varðandi gæði og öryggi sjúklinga,“ segir Vigdís Árnadóttir, trúnaðarmaður skurð- stofu á Hringbraut. Breytingarnar fela meðal annars í sér að skurð- hjúkrunarfræðingur sem ekki er þjálfaður í keisaraskurði getur verið kallaður inn á kvennadeild sé hann á vakt þó hann sé sérþjálfað- ur í hjartaskurðaðgerðum og öfugt. Eldra fyrirkomulag hefði þó gert ráð fyrir að sérþjálfaður starfs- maður á bakvakt væri kallaður til. „Við höfum öryggi sjúklinga í fyrir- rúmi og teljum að ef standa eigi við þetta fyrirkomulag sé sjálfkrafa búið að segja okkur upp. Við viljum ekki starfa við svona aðstæður,“ segir Vigdís. Katrín Sigurðardóttir, formaður Félags geislafræðinga, segir nýjar vaktir koma niður á kjörum starfs- manna. „Mikil óánægja er með þessar breytingar,“ segir hún. - kdk Megn óánægja með nýtt vaktafyrirkomulag á Landspítalanum: Von á fjölda uppsagna á Landspítala UPPSAGNIR YFIRVOFANDI Starfsfólk segir nýjar vaktir fela í sér stóraukið vinnuálag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR KOSOVO, AP Þúsundir Kosovo- Serba héldu í gær áfram háværum mótmælum gegn aðskilnaði Kosovo frá Serbíu. Í Kosovska Mit- rovica hrópuðu mótmælendur „Kosovo er Serbía“ og brenndu fána Evrópusambandsins. Slík mótmæli hafa verið daglegt brauð frá því sjálfstæðinu var lýst yfir fyrir rúmri viku. Mótmælendur hafa líka brennt myndir af utanríkisráðherra Bandaríkjanna og serbneska forsetanum Boris Tadic, sem þjóðernissinnum þykir of hlið- hollur vesturveldunum. Slobodan Samardzic, ráðherra Kosovomála í Serbíustjórn, fór í dagsheimsókn þangað í gær. - aa Mótmæli Serba halda áfram: Evrópufáninn brenndur REIÐI Þúsundir Kosovo-Serba gefa daglega reiði sinni lausan tauminn á fjölmennum mótmælafundum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Einar K. Guðfinnsson sjávar útvegs- ráðherra fundaði í gær með hags munaaðilum úr sjávarútvegi í Vestmannaeyjum. Fundurinn var vel sóttur, og voru fundarmenn almennt ósáttir við ákvörðun ráð- herra um að stöðva loðnuveiðar. Þá voru fundarmenn ósáttir við að rannsóknarskip Hafrannsóknastofn- unar hefðu verið bundin við bryggju um helgina á meðan á fimmta hundrað manns beið eftir niður- stöðum rannsókna stofnunarinnar. Einar sagði ákveðið að skip Hafró myndu leita loðnu í 50 daga, ekki 39 eins og áður var ákveðið. RÁÐHERRA FUNDAÐI MEÐ EYJAMÖNNUM Í EYJUM Sjávarútvegsráðherra skoðaði Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum á milli funda með hagsmunaaðilum í sjávar útvegi. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON Stúlkur áreittar í sundlaug Lögreglunni á Suðurnesjum hafa borist kærur vegna karlmanns sem sagður er hafa áreitt stúlkur í Sund- laug Keflavíkur. Fram kemur á vef Víkurfrétta að atvik hafi komið upp á föstudag og annað í gær. Þá hafi lögregla verið kölluð til. LÖGREGLUMÁL Hakkaði kerfi Hagaskóla Fjórtán ára pilti í níunda bekk Haga- skóla í Reykjavík tókst að brjótast inn í tölvukerfi skólans og eyða skrám um nemendur sem kennarar nota. Málið komst upp á laugardag, og rannsakar lögregla málið, að því er fram kemur á visir.is. IÐNAÐUR „Það er ekki fyrir alla að vinna með svona litla fugla en ég hef ótrúlega gaman af þeim,“ segir Brynja Davíðsdóttir, ungur atvinnuhamskeri sem um helgina hlaut önnur verðlaun á heimsmeistara- móti hamskera. Gripurinn sem dómnefnd hreifst svo af er lítill snjótittling- ur sem þykir líta mjög eðlilega og líflega út en það þykir einmitt mikilvægasta í fari uppstoppaðra dýra. „Fólki þykir stundum stórir fuglar tilkomumeiri, en litlir galdrar eins og þessi fugl heilla mig mjög,“ segir Brynja og hlær. Hún segir mikinn heiður að hreppa verðlaunin enda aukist kröfurnar með hverju ári. - kdk HM hamskera í Salzburg: Snjótittlingur lenti í öðru sæti VINNINGS- GRIPURINN SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.