Fréttablaðið - 26.02.2008, Blaðsíða 46
26 26. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
folk@frettabladid.is
„Minnst vonda lagið sigraði í hópi vondra laga,“
skrifar ritstjóri Eurovision-síðunnar Oikotimes um
sigurlag okkar í ár, This Is My Life. Ritstjórinn
hefur nokkrar áhyggjur af sviðsframkomu Friðriks
og Regínu. „Það þarf að vinna mikið í sviðsfram-
setningunni ef lagið á að eiga séns á að komast upp
úr undankeppninni. Það lítur ekki vel út í blönduð-
um dúett að söngkonan sé hærri en karlsöngvar-
inn.“ Það er víst lítið hægt að gera í því nema
Friðrik fái klossana hans Óttars Proppé í Dr. Spock
lánaða.
Ritstjóri hinnar aðal Eurovision-nördasíðunnar,
Esctoday, er jákvæðari. „Sviðsframkoman hjá þeim
var mjög fagmannleg og búningarnir og dansinn er
betri en á undanúrslitakvöldinu,“ segir hann um
sjóið á laugardaginn, en bætir við: „Lagið missir
aðeins „húkkinn“ á ensku, en nýja útsetningin gerir
lagið samt áhugaverðara en það var. Samt sem áður er lagið í heild
aðeins of yfirdrifið.“
Friðrik Ómar of lítill
AÐEINS OF
YFIRDRIFIÐ Friðrik
Ómar og Regína
Ósk.
88 DAGAR TIL STEFNU
> JULIA BAR AF
Julia Roberts var valin best
klæddi Óskarsverðlaunahafinn
í gegnum tíðina af lesendum síðunn-
ar Parade.com. Það var fyrir kjólinn sem
hún klæddist árið 2001 þegar hún tók á
móti verðlaunum fyrir Erin Brockovich.
Halle Berry fylgdi fast á hæla hennar,
fyrir kjólinn sem hún var í þegar hún
tók á móti styttunni ári síðar, fyrir
Monster‘s Ball.
Kvikmynd Coen-bræðra, No
Country for Old Men, kom,
sá og sigraði þegar Óskars-
verðlaunin voru afhent
í Hollywood í fyrrinótt.
Bestu leikararnir í aðal- og
aukahlutverkum voru allir
evrópskir.
Mynd Coen-bræðra fékk fern
verðlaun. Fögnuðu þeir sigri fyrir
bestu myndina og sem bestu leik-
stjórarnir, auk þess sem þeir unnu
fyrir besta handrit byggt á áður
birtu efni. Áður höfðu bræðurnir
unnið Óskarinn fyrir handrit sitt
að Fargo frá árinu 1996.
Spánverjinn Javier Bardem
hlaut jafnframt gylltu styttuna
fyrir aukahlutverk sitt í myndinni,
þar sem hann fór eftirminnilega
með hlutverk morðóðs brjálæð-
ings. Var það í fyrsta sinn í áttatíu
ára sögu Óskarsins sem Spánverji
hlýtur styttuna eftirsóttu.
Bræður í sandkassaleik
Joel Coen sagði í ræðu sinni að
þeir bræður hefðu búið til kvik-
myndir síðan í æsku og þetta væri
því í blóði þeirra. „Það sem við
erum að gera í dag finnst okkur
ekkert vera mjög frábrugðið því
sem við gerðum þá,“ sagði hann.
„Við erum þakklátir ykkur öllum
fyrir að leyfa okkur að leika okkur
úti í horni í sandkassanum.“
Evrópskir sigurvegarar
Þrír Evrópubúar til viðbótar fengu
Óskarinn fyrir aðal- og aukahlut-
verk og er þetta aðeins í annað
sinn í sögu hátíðarinnar sem það
gerist. Síðast gerðist það árið 1964.
Eins og margir höfðu spáð fyrir
hlaut Írinn Daniel Day-Lewis
Óskar inn fyrir frammistöðu sína í
There Will Be Blood. Var þetta
annar Óskarinn hans á ferlinum
en síðast vann hann fyrir My Left
Foot árið 1990. Sagði hann verð-
launin vera eins nálægt því og
hann gæti mögulega komist að
verða sleginn til riddara.
Hin franska Marion Cotillard var
valin besta aðalleikkonan fyrir
hlutverk sitt í La Vie en Rose. Kom
það nokkuð á óvart því flestir
bjuggust við því að Julie Christie
ynni fyrir góðan leik sinn í Away
From Her.
Tilda Swinton frá Bretlandi var
síðan kjörin besta aukaleikkonan
fyrir frammistöðu sína í Michael
Clayton.
Juno hlaut verðlaun
Dansarinn fyrrverandi Diablo
Cody hlaut Óskarinn fyrir frum-
samið handrit sitt að gamanmynd-
inni Juno, sem var hræódýr í
framleiðslu á mælikvarða Holly-
wood. „Ég á ekki orð yfir vinsældir
myndarinnar,“ sagði hún.
Þá var austurríska myndin
Falsararnir kjörin besta erlenda
myndin og Ratatouille besta
teiknimyndin.
Sigur Coen-bræðra
MYNDIR COEN-BRÆÐRA
No Country For Old Men (2007)
The Ladykillers (2004)
Intolerable Cruelty (2003)
The Man Who Wasn´t There (2001)
O Brother, Where Art Thou? (2000)
The Big Lebowski (1998)
Fargo (1996)
The Hudsucker Proxy (1994)
Barton Fink (1991)
Miller´s Crossing (1990)
Raising Arizona (1987)
Blood Simple (1984)
FJÓRAR STYTTUR Coen-bræður komu,
sáu og sigruðu á Óskarshátíðinni í
Hollywood. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Rauðir og
svartir kjólar
voru mest
áberandi
hjá stjörn-
unum á
Óskarnum,
en þar
fyrir utan
voru
axlir í
aðalhlut-
verki.
Berar axlir á Óskarnum
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/G
ETTY
Á rauða dreglinum í ár var
leitun að kjól sem huldi axlir
stjörnunnar sem honum
klæddist. Bæði hlýralausir
kjólar og kjólar með
aðeins einum hlýra virtust
gríðarlega vinsælir hjá stjörnufansin-
um. Hvað litina varðaði virtust flestir
hafa heillast af rauðum og svörtum
kjólum, þó að inni á milli glitti í hvítt,
grátt og fölbleikt, eins og hjá Camer-
on Diaz.
AXLIRNAR Í AÐALHLUTVERKI Í KJÓLAVALI
Britney Spears fékk að hitta syni sína tvo
á laugardag, í fyrsta sinn eftir að hún var
svipt öllum umgengnisrétti í síðasta
mánuði. Það var þó ekki fyrir þær sakir
að dómari hefði úrskurðað í málinu,
heldur náðu lögmenn söngkonunnar og
lögmenn fyrrverandi eiginmanns hennar
og barnsföður, Kevin Federline, sam-
komulagi í málinu upp á eigin spýtur.
Spears hafði sótt um að fá aftur
umgengnisrétt í síðustu viku, en var
neitað. Í kjölfarið sagði Federline, eins og
hann hefur reyndar ítrekað gert, að hann
vildi ekkert frekar en að synir þeirra
ættu gott samband við móður sína.
Mark Vincent Kaplan, lögfræðingur
Federlines, sagði í kjölfar samkomulags-
ins að það væri fyrsta skrefið að því
takmarki að gera móður barnanna aftur
að þátttakanda í lífi þeirra.
Spears sótti drengina heim
til Federlines í fylgd með
föður sínum, James Spears,
sem hefur fylgt henni eins og
skugginn síðustu vikur, og
sálfræðingi, samkvæmt
People.com. Þau keyrðu á
brott eftir að Federline
hafði gengið úr skugga um að
börnin væru vel spennt í
bílstóla sína, og vörðu í
heildina þremur klukkutímum
saman.
HITTI BÖRNIN Britney Spears fékk
að hitta syni sína tvo, Jayden
James og Sean Preston, á
laugar dag, í fyrsta sinn frá því
hún var svipt umgengnisrétti.
Britney hitti syni sína aftur
Magimix
- réttu tækin fyrir eldhúsið