Fréttablaðið - 26.02.2008, Blaðsíða 14
14 26. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
TROÐIST UM BORÐ Tillitslausir
lestarfarþegar eru nýjasta viðfangsefni
herferðar yfirvalda í Peking við að
„siða til“ íbúa fyrir ólympíuleikana
í sumar. Hefur 22. hvers mánaðar
verið skilgreindur „dagur til að gefa
eftir sæti“ þar sem fólk er hvatt til að
standa upp í lestum fyrir þeim sem
þurfa sætið frekar, á borð við óléttar
konur og aldraða. NORDICPHOTOS/AFP
UPPLÝSINGATÆKNI Staða og skipting kynjanna
er mjög ójöfn í upplýsingatæknifyrirtækjum.
Þannig sýnir ný könnun, sem gerð var á
vegum Samtaka iðnaðarins, að konur eru
innan við þriðjungur af lykilstjórnendum
upplýsingatæknifyrirtækja innan samtak-
anna. Sama gildir um kynjahlutfallið meðal
æðstu stjórnenda. Konur eru aðeins fjórðung-
ur þeirra starfsmanna sem eru í hálfu til fullu
starfi.
Í könnuninni kemur jafnframt í ljós að
einyrkjafyrirtæki innan Samtaka iðnaðarins
eru frekar mönnuð konum en körlum. Í litlum
fyrirtækjum starfa hlutfallslega fleiri konur
og því stærra sem fyrirtækið er þeim mun
lægra er hlutfall kvenna. Hlutfallslega fleiri
karlar eru lykilstarfsmenn eða yfirmenn og
vex kynjaskiptingin körlum í hag eftir því
sem fyrirtækin verða stærri. Í stjórn eru
fleiri karlar en konur.
Gyða Margrét Pétursdóttir, félags- og
kynjafræðingur, segir að sífellt fleiri konur
mennti sig til starfa innan upplýsingaiðnaðar-
ins, en konur í upplýsingatækni reki sig á
veggi. Athyglisvert sé að skoða hvers vegna
karlar og konur með sömu eða sambærilega
menntun séu í mismunandi störfum. „Lengi
hefur því verið haldið fram að aukin menntun
kvenna skili þeim sjálfkrafa sama framgangi
innan atvinnulífsins og tekjum og körlum, en
það er ekki endilega samband þarna á milli.
Menntun verður ekki sjálfvirk forsenda
frama,“ segir hún.
Konur í upplýsingatækni lenda frekar í
störfum sem eru í takt við staðalímyndir og
hefðbundið hlutverk kvenna, til dæmis í
þjónustustörfum og þjónustuveri þó að þær
hafi sótt um starf forritara í upphafi. „Svo
virðist sem konur séu í störfum sem krefjast
nákvæmni og þrautseigju en ekki í meira
metnum störfum sem krefjast sköpunarkrafts
og snilligáfu,“ segir hún.
„Tækniþekking virðist oft vera spyrt saman
við karlmennsku og lítið pláss vera fyrir
konur, enda mikið um lárétta verkaskiptingu.
Karlarnir forrita og þróa hugbúnað meðan
konurnar þjónusta hugbúnaðinn. Þær fara oft
á milli staða og aðstoða viðskiptavini við að
setja upp forrit af því að þær búa yfir mikilli
tækniþekkingu en þrátt fyrir þekkingu þeirra
og reynslu njóta störf karlanna meiri virð-
ingar. Starf karlanna er sveipað dýrðarljóma.
Þeir finna lausnir á viðfangsefnum meðan
konurnar eru í þjónustuhlutverki.“ - ghs
Innan við þriðjungur af lykilstjórnendum upplýsingafyrirtækja er konur:
Dýrðarljómi um starf tölvukarla
EKKI ENDILEGA SAMBAND Gyða Margrét Pétursdóttir,
félags- og kynjafræðingur, segir að margar konur sem
ráði sig í störf innan upplýsingaiðnaðarins reki sig á
veggi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
UTANRÍKISMÁL Viðamikil Íslands-
hátíð undir yfirskriftinni Iceland
on the edge hefst í Brussel í dag.
Er hún í samstarfi við Bozar, lista-
og menningarmiðstöðina í Brussel
og stendur hátíðin fram undir
miðjan júní.
Meðal viðburða sem boðið verð-
ur upp á má nefna íslenska sam-
tímamyndlist með verkum 15
framsækinna íslenskra lista-
manna, fossaverkefni Rúríar og
verk Kjarvals, Kristjáns Davíðs-
sonar og Georgs Guðna.
Munu listunnendur einnig geta
notið danssýningar Ernu Ómars-
dóttur og félaga auk uppfærslu
Baltasars Kormáks á Pétri Gaut.
Kvikmyndirnar 101 Reykjavík,
Mýrin og Hafið verða sýndar. Þá
munu rithöfundarnir Auður Jóns-
dóttir og Hallgrímur Helgason
taka þátt í bókmenntakvöldi til-
einkuðu Halldóri Laxness og
verður það í umsjón Halldórs Guð-
mundssonar.
Sýnd verða íslensk drykkjar-
horn í eigu Þjóðminjasafns
Íslandss. Í lok maí verður blásið
til kvikmyndahátíðar auk þess
sem haldinn verður fjöldi tónleika,
bæði klassískra og popptónleika.
Landsbankinn er máttarstólpi
hátíðarinnar í samstarfi við Ice-
landair og Icelandair Cargo. Er
hátíðin haldin að frumkvæði sendi-
ráðs Íslands í Brussel en að auki
koma að verkefninu fjögur ráðu-
neyti, Reykjavíkurborg, Ferða-
málastofa og Útflutningsráð. - ovd
Iceland on the edge-hátíðin hefst formlega í Belgíu í dag:
Íslensk menningarveisla hafin í Brussel
GRAND PLACE Í BRUSSEL Hátíðin er jafnt ætluð Belgum sem og starfsmönnum
erlendra ríkja og fyrirtækja í Brussel.
SUÐUR-KÓREA, AP Nýr forseti
Suður-Kóreu, Lee Myung-bak, var
í gær svarinn í embætti. Hét hann
því að auka hagsæld, ekki aðeins í
Suður-Kóreu
heldur einnig í
Norður-Kóreu að
því tilskildu að
stjórnvöld þar
losi sig við
kjarnorkuvopn.
Lee vann
stórsigur í
kosningunum í
desember þar sem hann lofaði að
blása lífi í efnahaginn og taka
harðari afstöðu gagnvart
kjarnorkuvæðingu Norður-Kóreu.
Í síðustu viku var Lee hreinsað-
ur af ásökunum um fjármálamis-
ferli frá 2001 sem fyrrverandi
viðskiptafélagi hans er nú fyrir
rétti vegna. - sdg
Hreinsaður af spillingarákæru:
Nýr forseti í
Suður-Kóreu
LEE MYUNG-BAK
Volkswagen – kolefnisjafnaður útblástur
Passat 4x4
F
í
t
o
n
/
S
Í
A