Fréttablaðið - 26.02.2008, Blaðsíða 8
8 26. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
1 Hvaða nafn ber dragnóta-
báturinn sem notaður verður
í upptökum á kvikmyndinni
Brim?
2 Hvað heitir nýkjörinn forseti
Kúbu?
3 Hvað segir Sigurður Þor-
valdsson, leikmaður Snæfells,
að sé leyndarmálið á bak við
stórleik sinn gegn Fjölni?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34
VIÐSKIPTI Bónus er vinsælasta fyrirtækið á Íslandi
sjötta árið í röð samkvæmt könnun í nýjasta hefti
Frjálsrar verslunar. Voru svarendur beðnir um að
nefna eitt til þrjú íslensk fyrirtæki sem þeir hafa
jákvætt viðhorf til.
Á eftir Bónus koma bankarnir Landsbankinn,
Glitnir og Kaupþing í þeirri röð, auk SPRON sem er
í fimmta sætinu. Þá koma Hagkaup, Össur, Krónan,
Síminn og Fjarðarkaup sem er í tíunda sæti. „Við
erum þakklát fyrir þann stuðning sem okkur er
sýndur og þetta hvetur okkur til að gera enn betur á
þeirri leið sem við höfum alltaf verið á, að vinna að
bættum hag neytenda,“ segir Guðmundur Marteins-
son, framkvæmdastjóri Bónuss.
Nokkur sömu fyrirtækin komast þó einnig á „botn
tíu“-listann þegar svarendur eru beðnir um að nefna
eitt til tvö fyrirtæki sem þeir hafa neikvætt viðhorf
til. Kaupþing er það fyrirtæki sem flestir eru hvað
neikvæðastir gagnvart, þá Síminn, Glitnir, Bónus og
Orkuveita Reykjavíkur. Hagkaup og Landsbankinn
eru í sjötta og sjöunda sætinu. Olíufélögin og Shell
eru saman í áttunda til níunda sæti og loks Baugur í
því tíunda.
Könnunin var gerð 3.-5. febrúar og eru niðurstöð-
ur byggðar á 729 svörum. - ovd
Mörg fyrirtæki eru bæði talin vinsælust og óvinsælust meðal landsmanna:
Bónus vinsælasta fyrirtækið
!"
#
$
%
%
!
$
'
(
&
$
) *
+"
+
%
&
, !
%
%
*
$")
$
*
$
+
&
-
.
/
012
3 "%
/
(%
441
5111
/
,6
441
5101
/
777&'(&
8
(
9
3
:
&;
(
<
'
(
1
2
0
4
4
... þetta hvetur okkur til
að gera enn betur á
þeirri leið sem við höfum alltaf
verið á, að vinna að bættum hag
neytenda
GUÐMUNDUR MARTEINSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RÍKISFJÁRMÁL Fjármálaráðuneytið
seldi Sæferðum ehf. ferjuna
Baldur fyrir 37,8 milljónir króna,
31. janúar 2006. Við söluna var
ekki farið eftir þeirri meginreglu
við sölu á ríkiseignum að auglýsa
það sem á að selja.
Í endurskoðun ríkisreiknings
fyrir árið 2006 gengur Ríkis-
endurskoðun út frá því að um
tveimur vikum síðar hafi skipið
verið selt úr landi fyrir 10 milljónir
norskar, eða tæpar 100 milljónir
íslenskar. Skipið var svo afskráð
úr skipaskrá 31. mars sama ár.
Samið var um að ríkið fengi
þrjátíu prósent af nettó-söluvirði
eða söluhagnaði Sæferða. Hagnað-
urinn er metinn á rúmar 62 millj-
ónir og Sæferðir áttu því að greiða
17,1 milljón til Vegagerðarinnar.
Þessir peningar voru hins vegar
geymdir í fimmtán mánuði, að því
er virðist vaxtalaust. Fullnaðar-
uppgjör sölunar er dagsett í júní
2007. Hálf milljón var greiddd 1.
júlí 2007 og afborganir af 16,5
milljónum hófust 1. ágúst sama ár.
Vaxtagreiðslur miðast við upp-
gjörsdægur, ekki söludag.
„Við borguðum af því um leið og
sá hluti samningsins var tilbúinn,“
segir Pétur Ágústsson, fram-
kvæmdastjóri Sæferða. Pétur
getur þó ekki rakið orsakir tafar-
innar né hvort hún var ráðuneyt-
inu eða Sæferðum að kenna.
Hann segir að söluverðið hafi
ráðist af mati norrænna skipa-
fræðinga en viðurkennir að það
mat hafi verið komið til ára sinna.
Pétur sat í bæjarstjórn með
Sturlu Böðvarssyni, þáverandi
samgönguráðherra og æðsta yfir-
manns Vegagerðarinnar, frá 1986
til 1991. Hann telur þó ekki ástæðu
til að ætla að tengsl hans við ráð-
herra hafi haft áhrif á samninga-
gerðina, eins og heimildarmenn
Fréttablaðsins hafa haldið fram.
„Við bara þekkjumst og vorum í
bæjarstjórn saman. Það geta liðið
mánuðir eða ár án þess að ég heyri
í honum,“ segir Pétur.
„Sæferðir hafa eignast þarna
mikla peninga án mikillar fyrir-
hafnar,“ segir Kristinn H. Gunnars-
son, þingmaður Frjálslyndra, en
hann hefur beðið samgönguráð-
herra að skýra söluferlið á Alþingi,
eftir fyrrgreinda umfjöllun ríkis-
endurskoðanda.
Fjármálaráðuneytið vill ekki
segja hvers vegna Baldur var ekki
auglýstur til sölu, heldur vísar til
fyrirspurnar Kristins. Þingmaður-
inn spurði hins vegar alls ekki um
hvers vegna Baldur var ekki aug-
lýstur. klemens@frettabladid.is
Seldu Baldur úr landi
Fjármálaráðuneytið seldi ferjuna Baldur beint til fyrirtækisins Sæferða árið
2006, án þess að auglýsa hann til sölu fyrst. Verðið var 37,8 milljónir. Sæferðir
seldu bátinn úr landi tveimur vikum síðar á um hundrað milljónir.
PÉTUR ÁGÚSTSSON Framkvæmdastjóri Sæferða sem keypti Baldur. FRÉTTABLAÐIÐ/ÚR SAFNI
BRETLAND, AP Fjórir liðsmenn
Grænfriðunga klifruðu upp á
farþegaþotu á Heathrow-flugvelli
við Lundúnir í gær þar sem þeir
breiddu úr borða til að mótmæla
loftslagsbreytingum.
Á borðanum stóð: „Neyðar-
ástand í loftslagsmálum – Enga
þriðju flugbraut.“ Samtökin
berjast gegn stækkun Heathrow-
flugvallar, sem er fjölfarnasti
flugvöllur í Evrópu.
Flugvélin, sem var af gerðinni
Boeing 777 og í eigu breska
flugfélagsins British Airways,
var nýlent eftir innanlandsflug
frá Manchester.
- sdg
Gegn stækkun Heathrow:
Mótmæltu ofan
á farþegaþotu
VEISTU SVARIÐ?