Fréttablaðið - 26.02.2008, Blaðsíða 54
34 26. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. steintegund 6. skóli 8. for 9. heiður
11. komast 12. röndin 14. pabbi 16.
mun 17. líða vel 18. kk-nafn 20. tveir
eins 21. lokka.
LÓÐRÉTT
1. ómögulegur 3. samtök 4. borð-
stokkur 5. knæpa 7. tré 10. keyra 13.
svelg 15. réttur 16. frostskemmd 19.
hreyfing.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. talk, 6. fg, 8. aur, 9. æra,
11. ná, 12. rákin, 14. faðir, 16. ku, 17.
una, 18. ari, 20. gg, 21. laða.
LÓÐRÉTT: 1. ófær, 3. aa, 4. lunning,
5. krá, 7. gráfura, 10. aka, 13. iðu, 15.
ragú, 16. kal, 19. ið.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Jón á Hofi.
2 Raúl Castro.
3 Fiskisúpan hennar Maggýar.
„Þar sem ég er að vinna í
miðbænum og hef oft lítinn
tíma finnst mér æðislegt að geta
stokkið inn á Sushi-hraðlestina
í Iðuhúsinu. Þar er hægt að
setjast niður og fá sér æðislega
gott sushi á færibandi.“
Hrönn Marinósdóttir, framkvæmda-
stjóri Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í
Reykjavík.
Hugleikur Dagsson hefur nú
ákveðið að flytja heim frá
Amsterdam þar sem hann
hefur verið búsettur að
undanförnu. Nýverið var
Baðstofan, nýtt leikrit eftir
hann, frumsýnt í Þjóðleik-
húsinu og ætlar hann að
gefa leikritaskrifum frí. Hins
vegar hefur hann ekki lagt
teiknipennann á hilluna og
þannig er stefnt að nýrri bók
í Okkur-seríunni á þessu ári,
Ókei bæ tvö og bók um
eineygða köttinn Kisa. Síðar á
þessu ári mun fyrsta bókin („Should
You Be Laughing at This?) koma út í
Bandaríkjunum.
Þótt þátttakendur í
Eurovision hafi kvartað
undan skorti á veit-
ingum baksviðs í
Smáralind á laugar-
dagskvöld ríkti þar
mikil stemning.
Meðal þeirra sem
tóku þátt í gleðinni
voru turtildúfurnar Sigmar Guð-
mundsson og Þóra Tómasdóttir en
þau komu hýr og rjóð beint frá því
að hafa veitt viðtöku blaðamanna-
verðlaunum verðskuldað. Einnig var
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra í miklu Euro-
stuði baksviðs svo einhverjir séu
nefndir.
Fjölmargir nýttu sér Food & fun hátíð-
ina til að fara út að borða. Þannig var
þétt setið á veitingastaðnum Gullfoss
á föstudagskvöldið. Meðal gesta var
Bjarni Ármannsson, fyrrum forstjóri
Glitnis, í góðum hópi. Þeir Magnús
Kjartansson og Eiríkur Tómasson
voru sömuleiðis hressir þar sem þeir
ræddu málefni Stefs. Mesta athygli
gesta vöktu þó stórsöngv-
ararnir Björgvin Hall-
dórsson og Eyjólfur
Kristjánsson sem áttu
góða kvöldstund með
eiginkonum sínum
og fleira fólki.
- jbg/hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
Yesmine Olsson sneri í síðustu
viku heim úr ferðalagi um Dubai
og Indland, þar sem hún leitaði
sér innblásturs fyrir nýja mat-
reiðslubók sem hún hefur nú í
smíðum. Ferðin hafði þó enn
meira að segja fyrir Yesmine,
sem heimsótti nú í fyrsta sinn
þær slóðir sem hún á ættir sínar
að rekja til.
„Ég er reyndar ættuð frá Srí
Lanka, en við vorum í Suður-Ind-
landi, svo það er bara nokkurra
klukkutíma ferðalag þarna á
milli. Ég var ættleidd þaðan þegar
ég var mjög ung,“ útskýrir Yes-
mine, sem eins og margir vita er
alin upp í Svíþjóð. Yesmine segist
ekki hafa freistast til að fara yfir
til Srí Lanka í þetta skiptið, enda
ástandið þar síst stöðugt þessa
dagana.
„Ég ákvað að hita aðeins upp
með Indlandi, áður en ég tek
næsta skref. En það er á dagskrá
hjá mér, algjörlega. Þegar ég fer
þangað hugsa ég að ég undirbúi
mig betur,“ segir Yesmine, sem
segist þó hafa fengið mikið út úr
ferðinni. „Það var auðvitað ákveð-
ið menningarsjokk að koma í
þetta umhverfi, sem ég held að
allir sem fara frá Íslandi til Ind-
lands upplifi. En það var mjög
gaman að sjá fullt af fólki sem
lítur út eins og ég,“ segir hún og
hlær við.
Yesmine segir matreiðslubók
undir þessum formerkjum vera
gamlan draum. „Þetta er matar-
gerð sem ég hef alltaf haft mik-
inn áhuga á. Núna finnst mér vera
kominn tími á þetta og mér fannst
ekki annað hægt en að fara út og
kynnast þessu almennilega. Við
vorum í tólf daga og fórum að
hitta kokka og ýmsa aðra til að fá
innblástur,“ útskýrir Yesmine.
Með henni í för voru ljósmyndar-
inn Áslaug Snorradóttir og Ágústa
M. Ólafsdóttir, sem aðstoða Yes-
mine við gerð bókarinnar. Hún er
væntanleg með haustinu.
- sun
Yesmine hélt á heimaslóðir í fyrsta sinn
MENNINGARSJOKK Yesmine Olsson
sneri á heimaslóðir í ferð til Indlands
og Dubai, þangað sem hún sótti sér
innblástur fyrir nýja matreiðslubók.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Ég er nú einu sinni þannig að ég bregð mér helst
aldrei út fyrir bæjarmörkin,“ segir listamaðurinn
akureyrski Lárus H. List.
Lárus hefur aldrei upplifað aðra eins athygli og þá
þegar spurðist að verslanakeðjan Wal-Mart væri búin
að stefna honum fyrir gerðardóm til Genfar í Sviss.
Líkt og Fréttablaðið greindi frá er það vegna léns
Lárusar, wa1mart.com, sem fór öfugt ofan í hina
bandarísku lágvöruverðsverslunarmenn sem þótti það
koma sér illa. Lénið er hluti listaverks sem Lárus gerði,
málverks af Mónu Lísu sem reynist karlmaður þegar
að er gáð í meðförum listamannsins. Þemað er ádeila á
heimsvaldastefnu og græðgisvæðingu.
Lárus stendur nú í ströngu, hann þarf að taka saman
álitsgerð fyrir lögmann sinn, hinn enska Graham Ross,
þar sem hann leitast við að útskýra hvernig allt þetta
tengist – lénið og Mona hans Lísa. Ef Lárus vill hafa
fjölskipaðan dóm þarf hann að greiða aukalega fyrir
það 2.000 dollara. Gögnum þarf hann að skila fyrir 4.
mars og mun niðurstaðan liggja fyrir hálfum mánuði
síðar.
Yfir listamanninn hefur rignt tölvupóstskeytum,
flest til stuðnings en eitt þó neikvætt frá Bandaríkjun-
um þar sem býsnast er yfir frekjunni. Eins og áður
sagði vill Lárus helst ekki fara mikið út fyrir Eyjafjörð.
Hann ætlar því ekki að fylgja máli sínu eftir með því
að fara til Sviss heldur treystir á lögmanninn Graham
Ross til að koma því í heila höfn. - jbg
Heimakær List ekki til Genfar
MONA LISA LÁR-
USAR Lén Lárusar,
wa1mart.com, og
þessi mynd renna
saman í ádeilu á
græðgisvæðingu
Bandaríkjanna.
LÁRUS H. LIST
Ætlar ekki að
fylgja máli sínu
eftir til Genfar
enda fer hann
helst ekki út fyrir
bæjarmörkin.
Umhleypingar síðustu vikna bitn-
uðu illa á nokkrum hljómsveitum
í Reykjavík þegar flæddi inn í
æfingahúsnæði þeirra í síðustu
viku. Í Hlíðunum komu meðlimir
Jakobínarínu að hljóðfærunum
sínum fljótandi á gólfinu. Hús-
næðið, sem er kjallari undir bíl-
skúr, leigja þeir með hljómsveit-
inni Singapore Sling. „Það eru
einhver hljóðfæri ónýt og slatti af
effekta-pedölum því þeir voru á
gólfinu,“ segir Einar Sonic, gítar-
leikari Singapore Sling. „Þetta er
búið að vera að þorna og við vitum
ekki alveg hve mikið er ónýtt, en
það er slatti. Það voru blásarar
settir þarna inn og svo tókum við
eitthvað bara heim til okkar. Það
er kannski bót í máli að magnar-
arnir sluppu alveg.“
Á öðrum stað í bænum, undir
gamla bakaríinu hans Jóa Fel,
lenti hljómsveitin Kimono í jafn-
vel enn verri málum. „Þetta var
helvíti skelfileg aðkoma, maður
bara grét,“ segir Gylfi Blöndal,
annar gítarleikari sveitarinnar.
Þegar bakaríið var flutt var ofn á
vegg fjarlægður en „eitthvert
gáfumennið“, eins og Gylfi kallar
hann, gleymdi að setja tappa í
gatið. Þegar kólnaði kviknaði á
þermóstati og heita vatnið fór að
fossa niður um gat á gólfinu eftir
gamlan hringstiga. Það eru átta
sveitir að æfa í kjallaranum en
þær sluppu að mestu leyti, nema
hljómsveitin Kimono sem var
búin að koma sér vel fyrir beint
fyrir neðan gatið.
„Það varð okkur kannski til
happs að heita vatnið virðist ekki
hafa fossað nema í einhverja tvo,
þrjá tíma,“ segir Gylfi. „Við
metum tjónið á þrjár milljónir.
Meðal þess sem skemmdist var
4.000 dollara handsmíðaður War-
wick-bassi, 3.500 dollara Tele-
caster-gítar sem Alex er búinn að
eiga árum saman, míkrófónar,
magnarar og dót. Við höfum talað
um það í mörg ár að fá okkur
tryggingu en aldrei gert neitt í
því. Við erum búnir að drattast til
þess núna. En við ætlum að sækja
hart á þann aðila sem sá um að
flytja bakaríið. Það er náttúrlega
vítavert gáleysi hvernig var
gengið frá þessum ofni.“
Þrátt fyrir atvikið sér Gylfi
sólar geisla í vatnsósa svartnætt-
inu. „Það varð okkur til happs að
trommusettið hans Kjartans
slapp. Hann á gamla trommu settið
hans Gunnars Jökuls Hákonar-
sonar, 1959-módel af Ludwig,
sama sett og Gunnar Jökull tók
með sér til London þegar hann var
að spila með fyrirrennara Yes,
The Syn. Það hefði verið menn-
ingarsögulega óbætanlegt ef þetta
trommusett hefði eyðilagst. Sem
betur fer var Kjartan nýkominn
af túr með Seabear og trommu-
settið ennþá í töskunum. Það var
það fyrsta sem við hlupum með
út.“ gunnarh@frettabladid.is
GYLFI BLÖNDAL: ÓFÖGUR AÐKOMA EFTIR FLÓÐ Í ÆFINGAHÚSNÆÐI
Rokkarar tapa milljónum
KOMU AÐ HLJÓÐFÆRUNUM Á FLOTI
Jakobínarínu brá í brún í síðustu viku.
STÓRTJÓN Gylfi Blöndal og félagar hans í Kimono meta tjónið á þrjár milljónir. Þeir
töluðu árum saman um að fá sér tryggingu og hafa nú loksins látið verða af því.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
fi mmtudaginn 28. febrúar kl. 20.00