Fréttablaðið - 26.02.2008, Page 12
12 26. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið
KÝPUR, AP Endir kann að verða
bundinn á áratuga langa skiptingu
Kýpur fyrir lok þessa árs. Þessu
lýsti leiðtogi Kýpur-Tyrkja yfir í
gær, daginn eftir að Kýpur-Grikkir
kusu sér nýjan forseta.
Sigurvegari forsetakosning-
anna, Dimitris Christofias, hafði
heitið því í kosningabaráttunni að
taka snarlega til við að endurvekja
umleitanir um endursameiningu
eyjarinnar.
„Ég tel að það kæmi ekki á óvart
að okkur tækist að leysa málið
fyrir lok þessa árs,“ tjáði Mehmet
Ali Talat fréttamönnum, en hann
er forseti lýðveldis Kýpur-Tyrkja
sem einvörðungu er viðurkennt af
Tyrklandi. „Kýpur-Grikkir kusu
breytingar. Þeir kusu mann sem
getur gert þessar breytingar að
veruleika,“ sagði Talat. Christofias
hefur þegar heitið því að eiga fund
með Talat, en enn hefur ekki verið
ákveðið hvenær.
Ef samningar skyldu takast um
endursameiningu Kýpur, sem
hefur verið klofin frá því árið 1974,
yrði einum stórum ásteytingar-
steininum í vegi fyrir inngöngu
Tyrklands í Evrópusambandið rutt
úr vegi. Klofningur Kýpur er enn-
fremur sífellt uppspretta núnings
milli NATO-bandamannanna
Grikklands og Tyrklands.
Viðræður um endursameiningu
hafa legið niðri síðan Kýpur-
Grikkir höfnuðu málamiðlunartil-
lögu Sameinuðu þjóðanna þar að
lútandi í þjóðaratkvæðagreiðslu
vorið 2004, en það sama vor fékk
hið alþjóðlega viðurkennda lýð-
veldi Kýpur-Grikkja inngöngu í
Evrópusambandið.
Kjör Christofiasar hefur vakið
vonir um að nú sé tími sögulegra
sætta að renna upp. Christofias
vann síðari umferð forsetakosn-
inganna á sunnudag eftir að Tassos
Papandopoulos forseti heltist
óvænt úr lestinni í fyrri umferð
kosninganna viku fyrr. Papando-
poulos fylgdi mjög óbilgjarnri
stefnu í endursameiningarmálum.
Christofias, sem var frambjóðandi
Kommúnistaflokks Kýpur-
Grikkja, fékk rétt rúmlega 53 pró-
sent atkvæða í síðari umferðinni
og sigraði þar með Ioannis Kasoul-
ides, utanríkisráðherra og fram-
bjóðanda íhaldsmanna. Þeir höfðu
reyndar báðir heitið því að endur-
ræsa sameiningarviðræður.
audunn@frettabladid.is
TÍMAMÓT Forsíður kýpur-grískra dagblaða með fréttum af sigri Christofiasar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Vonir glæðast
um sameiningu
Við kjör Dimitris Christofias til forseta Kýpur hafa
vonir glæðst um að takast megi að ná samningum
um endursameiningu eyjarinnar.