Fréttablaðið - 26.02.2008, Page 15
ÞRIÐJUDAGUR 26. febrúar 2008 15
NOREGUR Ný lög um dýravernd hafa verið
harðlega gagnrýnd í Noregi. Þar er hvergi
kveðið á um meðferð villtra dýra sem
drepast mörg hver árlega vegna rannsóknar-
aðferða. Þetta kemur fram í norska
dagblaðinu Aftenposten um helgina.
Þar segir Geir Skillebæk sérfræðingur ný
dýraverndunarlög hvergi kveða á um
meðferð villtra dýra. Auk þess gagnrýnir
hann áform stjórnvalda um frekari merk-
ingar á villtum dýrum vegna eftirlits.
Skillebæk segir mörg dæmi þess að villt
dýr á borð við úlfa, birni, refi, gaupur og
jarfa bæði líði fyrir og drepist árlega vegna
rannsóknaraðferða. Þar nefnir hann
ígræðslur sem sýking hlaupi í og hálsbönd
sem kyrki dýrin. Forsvarsmenn dýravernd-
unarsamtaka í Noregi taka undir þessar
gagnrýnisraddir. Einnig kemur fram að
dýrin búi við svipaðar aðstæður í Svíþjóð.
Yfirvöld í Noregi segja langa hefð fyrir
rannsóknaraðferðunum og segja fá dýr líða
sökum þeirra. - rh
Rannsóknaraðferðir á dýrum gagnrýndar í Noregi:
Ótal dýr drepast árlega
NÝ DÝRAVERNDUNARLÖG Árlega drepst fjöldi villtra dýra vegna rann-
sóknaraðferða í Noregi og Svíþjóð.
HAMFARIR Nokkurra vatnsskemmda hefur orðið
vart í Austurbæjarskóla eftir að koparklætt
þak fauk af húsinu í óveðri um miðjan desem-
ber. Segir Guðmundur Sighvatsson skólastóri
að bráðabirgðaviðgerð hafi verið gerð á
þakinu. „Síðan hefur sú lokun ekki gengið eftir
eins og menn óskuðu,“ segir Guðmundur því
nokkur leki hafi verið af og til síðan.
Meðal annars komst vatn í bókageymslu í
risi og í stofur þar fyrir neðan. Guðmundur
segir að skemmdir hafi ekki verið metnar. „En
það þarf að taka þakið upp að stórum hluta og
setja nýtt, reikna ég með.“ Telur hann að menn
hafi ekki gert sér grein fyrir hversu slæmt
ástandið er.
„Svo veit maður ekki með skemmdir í
veggjum þar sem lekið hefur milli hæða.“
Tvær til þrjár kennslustofur hafa skemmst en
þar er einkum ein sem er verst farin að sögn
Guðmundar.
„Kannski má segja að þetta hafi truflað
kennslu eitthvað því það hefur þurft að byrja
kennslu á að ausa vatni upp af gólfinu í byrjun
dags.“ Einnig hafi orðið vart við vonda lykt
sem komi til vegna rakans.
„Það verður farið í þetta í sumar ef viðrar til
en þeir hafa ekki gefið mér neinar tíma-
setningar,“ segir Guðmundur um endanlegar
viðgerðir. Segir hann menn hafa komið í
síðustu viku og gert betrumbætur á bráða-
birgðaviðgerðinni. Síðan hafi þakið ekki lekið
en reyndar hafi ekki mikið reynt á það þar sem
veður hafi verið með þeim hætti. - ovd
Bráðabirgðaviðgerð á þaki Austurbæjarskóla hefur ekki haldið í vatnsveðrum:
Vatnsleki í kennslustofum truflar kennslu
FRÁ AUSTURBÆJARSKÓLA
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SKIPULAGSMÁL Hverfisráð
Grafarvogs gerir athugasemd við
fyrirhugaða breytingu á aðal-
skipulagi við Spöngina 3-5 í
Grafarvogi þar sem atvinnu- og
þjónustusvæði er breytt í
íbúðasvæði.
Telur hverfisráðið að með
þessu séu þróunarmöguleikar
Spangarinnar sem verslunar- og
þjónustukjarna fyrir Grafarvogs-
búa takmarkaðir.
Kemur þetta fram í ályktun
sem hverfisráðs Grafarvogs
samþykkti fyrir helgi. Í ályktun-
inni ítrekar ráðið fyrri athuga-
semdir sínar frá 30. ágúst í fyrra.
Enn fremur segir að sé þörf fyrir
þéttingu byggðar beri að horfa til
annarra svæða en þess sem eitt
getur þjónað öllum íbúum sem
miðsvæði.
- ovd
Athugasemdir við tillögur:
Spöngin áfram
þjónustusvæði
UMHVERFISMÁL Á fundi samtaka
kvenkyns leiðtoga í umhverfis-
málum, sem haldinn var í
Mónakó á fimmtudaginn, tóku
Þórunn Sveinbjarnardóttir
umhverfisráðherra og Rejoice
Mabudafhasi, aðstoðarumhverfis-
ráðherra Suður-Afríku, sam eigin-
lega við formennsku í samtökun-
um.
Á fundinum var meðal annars
rætt um hvernig fjármögnun
aðgerða í loftslagsmálum getur
komið konum í þróunarlöndum
til góða. Tengist það því að
ákvarðanir um orkugjafa fyrir
heimili hafa mikil áhrif á líf og
heilsu kvenna þar sem þær sjá
þar um flest störfin.
Í ræðu sinni fjallaði Þórunn
um kjarnorku sem hún sagði
ekki vænlega lausn í baráttu við
loftslagsbreytingar. - ovd
Áhrif orkugjafa á líf kvenna:
Þórunn tekur
við formennsku
LÖGREGLUMÁL Flugvél lenti með
veikan farþega á Keflavíkurflug-
velli á sunnudagsmorgun.
Farþeginn, sem er franskur
karlmaður, fékk fyrir brjóstið í
miðju flugi. Hann var fluttur með
sjúkrabíl á Landspítalann í
Reykjavík. Talið var að hann
hefði fengið hjartakast. Svo
reyndist ekki vera.
Flugvélin var á leið frá
Frankfurt í Þýskalandi til
Chicago í Bandaríkjunum.
Maðurinn var útskrifaður af
Landspítalanum í gær. Hann hélt
til síns heima, en hann býr í Texas
í Bandaríkjunum.
- sþs
Frakki fékk fyrir brjóstið:
Lent með veik-
an farþega
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
ÖFLUG EN
HLJÓÐLÁT
DÍSILVÉL
EINSTAKUR
4X4 DRIF-
BÚNAÐUR
Passat Variant 4MOTION® TDI® kostar aðeins frá
3.590.000 kr.
Eða 41.600 kr. á mánuði miðað við gengistryggðan bílasamning til
84 mánaða og 20% útborgun. Árleg hlutfallstala kostnaðar er 6,4%.
Passat Variant sameinar kraft, þægindi og magnaða akstursupplifun.
DÚXAÐI Á
EURO NCAP
PRÓFINU
5 SINNUM
GULLNA
STÝRIÐ
SVEIGJAN-
LEGIR
SÖLUMENN
KOLEFNIS-
JAFNAÐUR
Í EITT ÁR
EYÐIR
AÐEINS FRÁ
6,7 l/100 KM
Í fjórhjóladrifinni útfærslu færir Passat Variant með TDI® dísilvél þér kraftinn sem gerir allan akstur skemmtilegri
og gerir gæfumuninn í erfiðri færð. Innra rýmið í Passat er í algjörum sérflokki, vel búið farþegarýmið setur ný
viðmið fyrir þig og þína. Komdu og láttu lúxusinn drífa þig áfram.
Fjarlægðarsk
ynjarar að fr
aman og
aftan, 16" álf
elgur, hiti í sæ
tum, dökkar
afturrúður, kr
ómbogar á þ
aki, leður
á stýri og gírs
tangarhnúð.
Veglegur au
kahlutapakk
i að
verðmæti 27
0.000 kr. fyl
gir
Das Auto.
ÚTBLÁSTUR
AÐEINS
177 G/KM