Fréttablaðið - 26.02.2008, Qupperneq 16
16 26. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Sigurlín Margrét Sigurðar-
dóttir vinnur að því að
fyrsta teiknimynd heims
þar sem persónurnar tala
táknmál verði aðgengileg
fyrir íslensk börn. Sigurlín
hefur hlotið styrk sem
verður notaður til að færa
táknmál þáttanna yfir á
íslensku.
„Þegar ég var barn var litið svo á
að ekki þyrfti að gera barnaefni
fyrir heyrnarlaus börn, þau væru
hvort sem er svo fá,“ segir Sigurlín
Margrét Sigurðardóttir, táknmáls-
kennari og eigandi fyrirtækisins
Táknmál ehf.
Sigurlín vinnur nú að því að
fyrsta teiknimynd heimsins þar
sem sögupersónurnar tala tákn-
mál verði einnig aðgengileg fyrir
börn sem tala íslenskt táknmál.
Sjálf missti Sigurlín heyrnina
þegar hún var átta ára og kannast
því vel við þann skort sem heyrnar-
skert börn þurfa að búa við þegar
kemur að afþreyingarefni.
Teiknimyndaröðin ber heitið
The Fantastic Time Machine eða
Ævintýratímavélin og er hugsuð
fyrir börn á aldrinum fimm til tíu
ára. Í þáttunum ferðast börn í
tímavél og fræðast um spennandi
atburði liðinna tíma. Ein söguhetj-
an er heyrnarlaus og talar því
táknmál en það geta heyrandi
vinir hennar einnig. Ævintýrið
verður í forgrunni en ekki heyrnar-
leysið. Teiknimyndin er í 26 þátt-
um en hver þeirra er tíu mínútur
að lengd.
Það eru frændur okkar Danir
sem standa fyrir gerð þessarar
óvenjulegu þáttaraðar og er hún
gerð með styrk frá Sambandi evr-
ópskra sjónvarpsstöðva. Þegar
Sigurlín heyrði af gerð þáttanna
fór hún strax að leita frekari upp-
lýsinga um efnið og vinna að því
að það yrði einnig aðgengilegt
fyrir íslensk börn. Það þurfti hún
þó að gera fyrir sitt eigið fé.
„Ég fór til Kaupmannahafnar í
haust og heimsótti meðal annars
Döve film, en þar er meðal annars
framleitt sjónvarpsefni á tákn-
máli fyrir danska ríkissjónvarpið,“
segir hún.
Fyrir skömmu hlaut Sigurlín
styrk úr Styrktarsjóði Baugs og
verða peningarnir notaðir í for-
vinnslu táknmálssetningar þáttar-
aðanna.
„Það sem gerist þegar myndin
verður táknmálssett á íslenskt
táknmál er að þá verða hreyfingar
mínar settar í tölvutækt form og
settar eða límdar á teiknimynda-
persónuna. Þá er teiknimyndaper-
sónan farin að tala íslenskt tákn-
mál,“ segir hún um hvernig séð
verði til þess að börnin í myndinni
fari að tala íslenskt táknmál án
þess að hver hreyfing verði teikn-
uð upp á nýtt.
Sigurlín segist þegar hafa sýnt
umsjónarmanni barnaefnis Ríkis-
sjónvarpsins myndina og fengið
jákvæð viðbrögð. Kaupi Ríkissjón-
varpið sýningarréttinn segir hún
að búast megi við því að þættirnir
komist í loftið á næsta ári.
karen@frettabladid.is
Fyrsta táknmálsteiknimyndin
TEIKNIMYND FYRIR HEYRANDI OG HEYRNARLAUS BÖRN Sigurlín vill að íslensk börn
sem ekki heyra geti notið myndarinnar, enda afþreyingarefni fyrir þau oft af skornum
skammti.
ÆVINTÝRATÍMAVÉLIN Í þáttunum
ferðast börn í tímavél og fræðast um
spennandi atburði liðinna tíma. Ein
söguhetjan er heyrnarlaus og talar því
táknmál, en það geta heyrandi vinir
hennar einnig. Ævintýrið verður í for-
grunni en ekki heyrnarleysið.
■ Ætihvönn er ein
merkasta lækningajurt
Íslandssögunnar og er
hún öll nýtileg; rætur,
blaðstilkar, lauf og fræ.
Helstu áhrifin eru á
meltingarfæri þar sem
hún örvar meltingu
og eyðir spennu. Hvönnin er einnig
notuð gegn kvillum í lifur og talin
mjög góð til að losa slím úr öndunar-
færum og gegn öðrum lungnakvill-
um. Algengast er að búa til te og
seyði úr hvönn. Hefur hún einnig
verið notuð sem bragðefni og krydd.
Þá hafa rannsóknir Raunvísinda-
stofnunar sýnt að í ætihvönn eru efni
sem verka á bakteríur, veirur, sveppi
og jafnvel krabbameinsfrumur auk
efna sem virðast örva ónæmiskerfið.
ÆTIHVÖNN:
MERK LÆKNINGAJURT
„Ég er byrjaður að einbeita mér aftur að æfingum
eftir langa vinnutörn í vetur, enda byrjar keppnis-
tímabilið í apríl,“ segir Sigurpáll Geir Sveinsson
golfari. „Ég hef verið að safna styrktaraðilum og
vonast til að geta einbeitt mér hundrað prósent
að golfinu í sumar.“
Sigurpáll gerðist atvinnumaður í golfi árið
2003. Hann hefur þrisvar orðið íslandsmeistari
karla, og unnið titilinn þrisvar sinnum í sveita-
keppni.
„Samhliða vinnunni hef ég verið að æfa mig í
æfingasvæði Keilis í Hraunkoti, Básum, Sport-
húsinu og þessum stöðum. Þegar maður er í 110
til 120 prósenta vinnu er takmarkaður tími til að
æfa, en maður reynir að nýta hvert tækifæri sem
gefst,“ segir hann.
Aðspurður við hvað hann sé að vinna segist
Sigurpáll vera sjálfstæður verktaki í hinu og þessu,
meðal annars smíði og golfkennslu. Hann sé
þó hættur smíðunum í bili og ætli sér að draga
úr golfkennslunni. „Það gengur ekki að vera að
kenna golf og reyna að vera eitthvað góður sjálfur
á sama tíma. Maður er bara of þreyttur eftir sex til
sjö tíma golfkennslu til að geta æft sig almenni-
lega.“ Hann segir æfingaaðstöðu sína munu
stórbatna eftir tæpan mánuð, en þá
fer hann sem fararstjóri í golfferðir
Úrvals Útsýnar til Spánar og Tyrk-
lands. „Þetta hentar mjög vel til að
koma manni í gang, vinna hálfan
daginn sem fararstjóri og
nota svo hinn helminginn
til að æfa sig við topp-
aðstæður.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SIGURPÁLL GEIR SVEINSSON GOLFARI
Á leið til Spánar og Tyrklands í golf
„Ég hef miklar áhyggjur af rasism-
anum á Íslandi því ég óttast að
þetta muni
springa upp
í loft, eins og
gerst hefur í
Danmörku,“
segir Eilífur
Örn Þrastar-
son tónlistar-
maður. Eilífur
hefur eins og
margir aðrir
orðið var við að æ fleira ungt fólk
stofni heimasíður eða félög sem
breiða út haturskenndan áróður
gegn minnihlutahópum.
„Ég held að það þurfi að sýna fólki
betur að ekki eru allir útlendingar
endilega glæpamenn. Það mætti
til dæmis rannsaka betur og sýna
hvernig fólk þetta er. Til dæmis var
ágætis könnun í blaðinu um daginn
sem sagði að Pólverjar hefðu framið
fæsta glæpi af öllum innflytjend-
unum. Samt er alltaf verið að tala
um að Pólverjar séu svo voðalega
vondir og verri en við,“ segir hann.
Eilífur hvetur almenning og
sérstaklega menntamenn til að láta
betur í sér heyra um þetta málefni.
„Tónleikar Bubba voru til fyrirmynd-
ar, en ég er nú hræddur um að
meira þurfi til að ná árangri.“
SJÓNARHÓLL
RASISMI Á ÍSLANDI
Ekki spilltur, bara jolly
„Nei nei, hann er bara svona
jolly good. Það er engin spill-
ing í þessu hjá honum.“
ELLERT B. SCHRAM ÞINGMAÐUR
SAMFYLKINGARINNAR UM INNRÆTI
VILHJÁLMS Þ. VILHJÁLMSSONAR
ODDVITA SJÁLFSTÆÐISMANNA
Visir.is mánudag 25. febrúar.
Engir sterar í Ho ho ho
„Ég hef aldrei notað einhver
ólögleg efni til að ná meiri
árangri en verð hins vegar
að útskýra slíkar glósur fyrir
fjölskyldunni minni.“
HLYNUR ÁSKELSSON, BETUR ÞEKKT-
UR SEM CERES 4, EFTIR KEPPNI Í
UNDANÚRSLITUM EVRÓVISJÓN ÞAR
SEM HÁÐSGLÓSUR GENGU Á MILLI
KEPPANDA.
Fréttablaðið mánudag 25. febrúar.
EILÍFUR ÖRN
ÞRASTARSON
Gæti sprungið
í loft upp