Fréttablaðið - 26.02.2008, Qupperneq 19
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Námskeið um stjórnun
heilsueflingar á vinnu-
stöðum verður
kennt í fjarnámi
frá Háskólanum
í Reykjavík frá 7.
apríl til 16. maí
næstkomandi.
Heiti námskeiðsins
er Vellíðan – Vinna
– Velferð og umsóknar-
frestur er til 17. mars.
Nýsköpunar-
þing Rannís,
Nýsköpunarmið-
stöðvar Íslands
og Útflutningsráðs
verður haldið á Grand
Hóteli á fimmtudaginn 28.
febrúar frá klukkan 8 til 10.
Notendastýrð nýsköpun verður í
brennidepli og nýsköpunarverð-
laun fyrir árið 2008 verða afhent.
Lýðheilsustöð lætur
á hverju ári kanna tíðni
reykinga meðal Íslend-
inga og má skoða niður-
stöður ársins 2007 á
síðunni www.lyd-
heilsustod.is. Meðal
þess sem kemur fram
í þeim er fylgni á milli
meiri menntunar og
þess að reykja ekki.
Sjósund nýtur alltaf vinsælda og þeir sem
stunda það segja það bæði hollt og hressandi.
Benedikt Lafleur hefur stundað sjósund í
nokkur ár.
„Ég hafði lesið grein um sjósund og á myndinni sem
birtist með var algjört heljarmenni þannig að ég
hélt að þetta ætti nú ekkert við mig,“ segir Bene-
dikt, en hann hefur stundað sjósund í nokkur ár.
„Svo var ég staddur í afmælisboði þar sem einn var
að fara að synda og þurfti félaga með sér. Mér datt
ekki í hug að ég gæti þetta en vildi samt prófa þetta
í gamni og fyrstu sekúndurnar voru bara eins og ég
væri að berjast fyrir lífi mínu, mér var svo kalt. Ég
stökk bara út í og það var rosalegt sjokk fyrst en svo
leið mér vel. Eftir smá stund finnur maður síðan
ekkert fyrir kuldanum og finnst maður hafa sigrað
heiminn.“
Benedikt útskýrir að æðarnar í líkamanum drag-
ist strax saman í kuldanum í sjónum en kjarni lík-
amans verði mjög heitur. „Menn geta verið algjörar
kuldaskræfur á landi og dúðað sig þar en hitnað svo
vel þegar þeir koma út í sjóinn. Þetta geta allir ef
þeir eru með hjartað í lagi og auðvitað er betra að
vera í einhverju formi. Til að byrja með er best að
synda bara við ströndina þar sem fólk getur botnað
og fara ekkert fram úr sér í byrjun heldur njóta
þess þá betur í hvert sinn. Svo er mikilvægt að fara
í heita sturtu á eftir og hlýja sér vel og lengi svo
menn fái ekki kuldahroll seinna um kvöldið. Ég held
að þetta sé örugglega gott fyrir ónæmiskerfið og
þetta frískar mann mjög mikið.“
Benedikt segir það sennilega ævintýraþrá sem
dragi fólk til sunds í ísköldum sjónum. „Svo vilja
menn komast í nánari snertingu við náttúruna, sem
er kannski einhver frumþörf. Kannski líka að yfir-
vinna einhverja hindrun í manni sjálfum. Við erum
vön að fara í sundlaugarnar en það er allt annað að
synda í ólgandi sjónum og maður hugsar ekki um
neitt annað á meðan.“
Benedikt er sestur að á Reykjum í Skagafirði og
vinnur að uppbyggingu ferðamannaiðnaðar á staðn-
um en frá Reykjum er stutt yfir í Drangey. „Hér er
búið að stofna sjósundfélagið Gretti. Ég reyndi við
Drangeyjarsundið seint í fyrra en það var orðið of
kalt eða um níu gráður. Ég fór því hálfa leið, en fer
næsta sumar aftur. Ég hef synt um Ermarsundið og
Vestfirðina og hef gífurlega reynslu í alls konar
öldum þar sem ég hef stundað þetta reglulega í
nokkur ár.“
Benedikt kennir einnig jóga á Akureyri og á Sauðár-
króki og segir jóga og sjósund fara vel saman. „Við
erum öll í svo miklu kapphlaupi og flýtum okkur of
mikið í dag svo það er bara gott að kæla sig aðeins
niður með sjósundi eða jóga.“ heida@frettabladid.is
Eins og að sigra heiminn
Benedikt segir sjósund frískandi og gott fyrir ónæmiskerfið. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
Sófalist
Sófalist, Garðatorgi Garðabæ S. 553 0444, www.sofalist.is
Rúmteppaveisla - mikið úrval af barna og
unglingateppum. - 25% afsláttur !