Fréttablaðið - 26.02.2008, Side 26

Fréttablaðið - 26.02.2008, Side 26
● fréttablaðið ● skipulag og hönnun 26. FEBRÚAR 2008 ÞRIÐJUDAGUR4 Tvöföld gólf þykja hafa gefið góða raun til að dempa niður hávaða í sambýlishúsum. Krafan um góða hljóðeinangrun í íbúðarhúsnæði hefur hugsanlega aldrei verið meiri en nú. Kvart- að er undan því að hljóðeinangr- un í gömlum húsnæði haldi ekki í skefjum hávaða af umgengni ná- granna og heimilistækjum nútím- ans. Ýmissa leiða hefur því verið leitað til að fullkomna hljóðvist, en ein þeirra gengur út á að setja tvöföld gólf í hús. Íslenskir aðal- verktakar hafa beitt þeirri aðferð frá árinu 2000 og þykir hún hafa gefið góðan árangur. „Við höfum verið leiðandi á þessu sviði. Höfum frá 2000 byggt á fimmta hundrað íbúðir með tvöföldum gólfum, þannig að við höfum töluverða reynslu af þessu,“ segir Kristján Arin- bjarnar, framkvæmdastjóri hjá Íslenskum aðalverktökum, sem flutti erindi um hljóðvist undir yfirskriftinni Hljóðeinangrun í sambýlishúsum, á ráðstefnu Steinsteypufélagsins sem haldin var á Grand hóteli í síðustu viku. Í fyrirlestrinum fór Kristj- án meðal annars yfir þær kröfur sem gerðar eru til hljóðvistar en hann segir nokkurn misskilning ríkja um hugtakið. „Við höfum mælt mun meiri ánægju hjá kaup- endum með hljóðvistina þar sem tvöföld gólf eru í íbúðum. Þó er einn og einn kaupandi sem býst við því að hljóðvistin sé enn betri jafnvel þótt hljóðeinangrunin sé vel heppnuð. Þetta stafar af því að hugtakið hljóðeinangrun mis- skilst. Hljóðeinangrun þýðir það að einangra hljóð. Í rauninni væri réttara að tala um hljóðdeyfingu eða -dempun.“ Kristján segir að það megi að hluta til rekja til þess að hljóð- einangrun nái ekki alltaf að úti- loka hávaða frá háværum tækj- um, sem gefa frá sér djúpa tóna eins og heimabíó og bassabox. „Markmiðið með hljóðeinangr- un er auðvitað að fólk verði ekki fyrir stöðugri truflun og áreiti af náunganum og fái aukið næði,“ bendir hann á og segir að ýmislegt hafi verið reynt til þess að verða við því. „Til dæmis eru herbergi látin liggja á ákveðna vegu. Eins með því að ganga skynsamlega frá hurðum í bílageymslur, nota hljóðdeyfðar loftrásir í veggjum til að þurfa ekki að opna glugga og gler sem hindra að hljóð berist að utan. Loks með vali á lagnaefn- um, lyftu, loftræsibúnaði og þess háttar.“ Tvöföldu gólfin sem Íslenskir aðalverktakar hafa notað á síð- ustu árum þykja hafa gefið góða raun í þeim efnum, en aðferð- in er upprunnin frá Þýskalandi. „Einangrun er sett ofan á burðar- plötuna og svo steypt aftur yfir þannig að gólfið er fljótandi frá burðarvirkinu,“ lýsir Kristján og bætir við að hugmyndir séu nú uppi um að fara enn lengra með aðferðina. „Við höfum fengið til- lögu frá leiðandi þýskum ráð- gjöfum um að setja tvöfalda ein- angrun í húsnæði, til að taka burt djúpa bassatóna og þvíumlíkt. Sú aðferð þykir hafa komið vel út í Þýskalandi og er nokkuð sem við hjá ÍAV eigum enn eftir að prófa.“ - rve Hávær krafa um góða hljóðvist Kristján Arinbjarnar hjá Íslenskum aðalverktökum segir tvöföld gólf hafa dugað vel til að dempa niður hávaða en aðferðin er upprunnin í Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Sveitarfélagið Vogar Vinalegur og fjölskylduvænn bær í nánum tengslum við náttúruna Akstursfjarlægðir frá Vogum um upplýsta og tvöfalda Reykjanesbraut. Flugstöð Leifs Eiríkssonar 15 mínútur Reykjanesbær 15 mínútur Hafnarfjörður 20 mínútur Smáralind 25 mínútur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.