Fréttablaðið - 26.02.2008, Page 32
● fréttablaðið ● skipulag og hönnun 26. FEBRÚAR 2008 ÞRIÐJUDAGUR10
Philips
AluLine
HR2094.
Öflugur
750w
blandari með 1,5
l glerskál. Mótor í
álhúsi sem er fingra-
fara- og rispuhelt. Ávaxtafilter. Blátt ljós.
Hægt að fá kaffikönnu, brauðrist, ketil og
fleira í stíl. Blandari kostar 10.995 krónur.
Fæst í Heimilistækjum.
Kenwood kMIX BLX51.
Blandari frá Kenwood
í nýju kMIX línunni.
Öflugur 800w
blandari
með 1,6 lítra
glerskál
– kMix. Hægt
að taka hnífa
frá til að hreinsa.
Gúmmítappar undir
auka stöðugleika. Stærð
í sentimetrum (breidd sinnum
hæð sinnum dýpt): 16x38x19.
Þyngd: 6,2 kíló. Fæst í rauðu, svörtu eða hvítu. Hægt
að fá hrærivél, töfrasprota og handþeytara í stíl.
Blandari kostar 14.995 krónur. Fæst í Heimilistækj-
um.
Blandarar henta þeim vel sem
vilja tileinka sér heilbrigðan
lífsstíl og skipuleggja matar-
tímann í kringum annasamt
líferni.
Íslendingar hafa sjálfsagt aldrei
verið meðvitaðri um heilbrigt líf-
erni en nú og sést það meðal
annars á fjölbreyttu
framboði af heilsu-
fæði og hvers
kyns heilsu-
tengdum
námskeið-
um. Eitt
af því sem
landsmenn
hafa gert
til að tileinka sér heilsusamleg-
an lífsstíl er að verða sér úti um
góðan blandara enda með ólíkind-
um hvað hægt er að búa til með
þessum galdratækjum. Auk þess
hentar tæknin vel í hröðu samfé-
lagi nútímans.
Ætli maður sér að fá sem
mest út úr blandaranum skipt-
ir hins vegar máli að velja einn
sem malar, þeytir, hristir
og hrærir eða býr yfir nógu
mörgum möguleikum til að
gera það sem hugurinn girn-
ist, hvort sem það er saðsam-
ur prótíndrykkur eða litrík-
ur og ljúffengur kokkteill.
Meðfylgjandi eru myndir af
nokkrum blöndurum sem fást
á markaðnum í dag. - rve
Kröftugur 750w Philips blandari úr
áli með fimm hraðastillingum og
flýtihraðastillingu, tveggja lítra
glerkönnu og ávaxtasíu, sem síar
steina og fræ í burtu og býr til
hreinan ávaxtasafa. Getur malað
ísmola. Hægt er að losa hnífa frá til að
auðvelda þrif á könnu. Verð 10.495
krónur. Fæst í Elko.
Nordica blandari með
300w mótor, tveimur
hraðastillingum og
flýtihraðastillingu,
og 0,8 lítra glerkönnu,
sem fæst í þrem litum:
hvítum, grænum eða
bleikum. Hægt er að
búa til súpur, sósur,
barnamat og mala ís í
blandara. Hnífar úr ryðfríu
stáli, en hægt er að taka
þá af til að þvo. Verð 3.495
krónur. Fæst í Elko.
Fljótlegt og gott
Cloer 6948. Aflmikill
550W mótor, með
tveimur hraðastilling-
um og flýtihraðastillingu,
1,2 l glerkönnu og burstuðu
stál. Malar ís léttilega,
þeytir, hristir og hrærir
allt sem hugurinn girnist.
Auðveldur í þrifum. Verð
9.990 krónur. Fæst í
Rafha.
Tristar BL-
4417. Nýr
blandari
með 1,5
lítra gler-
könnu og
í burstuðu
stáli. Öfl-
ugur 500W
mótor, með
tveimur
hraðastillingum. Sérhönnuð blöð mala
klaka. Auðveldur í þrifum. Verð er 5.990
krónur. Fæst í Rafha.
Róbert Traustason einka-
þjálfari hjá Boot Camp veitir
uppskrift að drykk sem fyllir
líkamann af orku eftir æfingu.
Róbert Traustason, einkaþjálfari
og einn stofnefnda Boot Camp lík-
amsræktar, notar blandara óspart
til að búa sér til hressandi drykki.
„Já, það er nauðsynlegt að fá sér
góðan prótíndrykk. Maður þarf
nefnilega helst að borða innan 30
mínútna eftir æfingu og næra
vöðvana strax eftir átökin. Þá er
mikilvægt að fá sér góða blöndu af
prótínum og kolvetnum til að fylla
líkamann aftur af orku. Hana fær
maður úr prótíndrykknum, sem
líkaminn sogar strax í sig.“
Ýmsir drykkir eru í boði hjá Boot
Camp og segir Róbert svokallað
Létt Boozt njóta einna mestra vin-
sælda, en sá drykkur samanstend-
ur af vanilluskyri, ferskum ávöxt-
um, múslí, kókosmjöli, vatni og
klökum. Þeir sem vilja þyngja sig
og stækka geta síðan bætt prót-
ínum út í og dugar þar ein skeið af
hreinu mysuprótíni.
Ekki tekur nema 35 til 45 sek-
úndur að blanda drykkinn, en Ró-
bert notar til þess Hamilton Beach
Commercial blandara og segir
ekkert minna duga til að blanda
allan þann fjölda drykkja sem
rýkur út eins og heitar lummur
hjá Boot Camp.
Setjið allt í blandarann og klak-
ana síðast. Setjið á fullan kraft í 35
til 45 sekúndur. Tilbúið til neyslu.
Mesta þarfaþing
Róbert Traustason notar blandara óspart til að búa sér til orkudrykk eftir æfingu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LÉTT BOOZT
Innihald:
200 til 250 g af vanilluskyri
1/2 banani
1 lítil pera (eða 1/2 stór pera)
30 til 50 g múslí
1 msk. kókosmjöl
6 stórir ísklakar
50 til 100 ml ískalt vatn (fer eftir
hversu þykkan boozt fólk vill)
30 g af hreinu mysuprótíni – fyrir
þá sem þurfa aukaprótín í fæð-
una.
Konur athugið!
Bylting í öryggismálum!
Líkt og með menn þá eru rútur einfaldlega ekki allar jafn
öruggar. Bjóðum á þriðja tug af nýjum og góðum bílum
með þriggja punkta öryggisbeltum í öllum sætum. Hafðu
samband og sérpantaðu einn slíkan fyrir þá sem þér þykir
vænt um.
www.gtyrfi ngsson.is - S. 568 1410 / 482 1210 - Grænir og góðir ;)