Fréttablaðið - 26.02.2008, Síða 39
ÞRIÐJUDAGUR 26. febrúar 2008 19
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Við hvetj um les end ur til að senda
okk ur línu og leggja orð í belg um
mál efni líð andi stund ar. Grein ar
og bréf skulu vera stutt og gagn-
orð. Ein göngu er tek ið á móti efni
sem sent er frá Skoð ana síð unni
á vis ir.is. Þar eru nán ari leið bein-
ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni
birt ist í Frétta blað inu eða Vísi eða
í báð um miðl un um að hluta eða
í heild. Áskil inn er rétt ur til leið-
rétt inga og til að stytta efni.
BRÉF TIL BLAÐSINS
UMRÆÐAN
Póstþjónusta
Að undanförnu hafa okkur þingmönnum borist erindi,
bréf og fyrirspurnir frá sveitar-
stjórnum og einstaklingum sem
benda á skerta póstþjónustu og
áform um enn frekari niður-
skurð. Hér er m.a. um að ræða
fækkun póstburðardaga á stór-
um landsvæðum, lokun pósthúsa
og skipulagsbreytingar sem hafa
í för með sér skerta þjónustu.
Starfsfólki í póstþjónustu um
áratuga bil hefur verið sagt upp
störfum undir yfirskini hagræð-
ingar, en álag á aðra eykst.
Einkavæðingin og Íslandspóstur hf.
Ég hafði miklar efasemdir um
hlutafélagavæðingu póstþjónust-
unnar á sínum tíma og stofnun
Íslandspósts hf. Þar væri í raun
verið að taka ákvörðun um einka-
væðingu póstþjónustunnar í
áföngum. Miklu nær hefði verið
að skipuleggja póstflutninga sem
þátt í almenningssamgöngum
hvort sem er í lofti, á láði eða legi.
Áætlunarferðir sem áður nutu
stuðnings póstflutninga hafa víða
lagst af eða berjast í bökkum. Því
hefðu póstflutningar átt að vera
hluti af hinni samræmdu opinberu
samgönguáætlun og lögin um
póstflutninga hefðu átt að kveða á
um að svo skyldi vera. Á þetta
benda m.a. sveitarstjórnir sem
berjast fyrir bættum almennings-
samgöngum svo sem styrkingu
flugs til Bíldudals eða með bílum
um Ísafjarðardjúp.
Lögbundin þjónusta
Þáverandi samgönguráðherra,
Sturla Böðvarsson, svaraði gagn-
rýni minni á lögin þannig að
verið væri að bæta þjónustuna.
Vísaði hann í markmiðsgrein lag-
anna en þar segir: „Íslenska ríkið
skal tryggja öllum landsmönnum
á jafnræðisgrundvelli aðgang að
ákveðnum þáttum póstþjónustu,
alþjónustu, með ákveðnum
gæðum og á við-
ráðanlegu verði.“
Orðrétt sagði
ráðherrann: „Í
þriðja lagi eru
tekin inn í [frum-
varpið] ákvæði
varðandi kröfur
um gæði póst-
þjónustunnar og
ákvæði um söfn-
un pósts og
útburð alla virka
daga alls staðar á landinu. Lagt
er til að fært verði í lög að póst-
sendingar innan marka alþjón-
ustu skuli bornar út alla virka
daga alls staðar á landinu nema
kringumstæður eða landfræði-
legar aðstæður komi í veg fyrir
útburð. Slíkar kringumstæður
geta verið ófærð og óveður eða
sérstakar landfræðilegar aðstæð-
ur.“
Formaður samgöngunefndar,
Guðmundur Hallvarðsson, ítrek-
aði þessa skilgreiningu á alþjón-
ustu og póstútburði alla virka
daga um allt land.
Hugsar fyrst um arðinn?
Því er þetta rakið hér að nú ber-
ast fregnir af áformum Íslands-
pósts hf. um uppstokkun á allri
þessari þjónustu víða um land.
Starfsfólki í póstþjónustu hefur
verið sagt upp og fregnir berast
af víðtækum niðurskurði á póst-
útburði víða um land og lokun
pósthúsa vofir yfir. Ekki kemur á
óvart áhugi stjórnenda hluta-
félagsins fyrir að skera niður þá
þjónustu sem honum finnst
minnst arðbær, en það er við
hinar dreifðu byggðir. Því er það
mjög mikilvægt að samgöngu-
ráðherra komi nú þegar í veg
fyrir að þjónustan verði skert
eða gengið sé á bak laga og yfir-
lýsinga um gæði og jafnræði
póstþjónustunnar.
Úttekt á póstþjónustunni?
Grunnpóstþjónusta skiptir máli
fyrir samkeppnishæfni atvinnu-
lífs og búsetu um allt land. Lög
kveða á um jafnræði allra lands-
manna í þeim efnum. Bréf og
áskoranir sem við þingmenn
höfum fengið að undanförnu
benda til umfangsmikilla skerð-
inga á póstþjónustu landsmanna.
Núverandi samgönguráðherra
tók undir gagnrýni mína og kröf-
ur um þjónustu Íslandspósts
meðan hann var óbreyttur þing-
maður. Hann verður nú sem ráð-
herra póstmála að svara því
skýrt hvað er á seyði í þeim
efnum.
Vel má vera tímabært að kalla
eftir sérstakri úttekt á því,
hvernig umfang og gæði póst-
þjónustunnar hefur þróast bæði í
þéttbýli og dreifbýli á undan-
förnum árum eftir að einkavæð-
ing hennar hófst.
Höfundur er þingmaður Vinstri
grænna.
Hvað er að gerast í póstþjónustu landsmanna?
JÓN BJARNASON
Þegar stórt er spurt
Matthías Kristinsson, fyrrverandi
skólastjóri, skrifar:
Hvar eru STÓRU ORÐIN sem for-
svarsmenn verkalýðshreyfingarinnar
létu frá sér fara þegar Davíð Oddsson
fékk ein og hálf verkamannalaun í
launahækkun?
Hvar eru STÓRU ORÐIN sem sömu
menn létu falla um eftirlaunin sem
þingmenn og ráðherrar úthlutuðu
sér?
Voru STÓRU ORÐIN ekki í þá veru
að ekki yrði samið nema eftirlauna-
hækkun þingmanna og ráðherra
gengi til baka og að mið yrði tekið
af launahækkun seðlabankastjóra í
næstu kjarasamningum?
Voru STÓRU ORÐIN svo þung á baki
forustumanna verkalýðshreyfingar-
innar að hún gat ekki burðast með
þau lengur, eða voru þau sögð í hálf-
kæringi og eru nú gleymd og grafin?
Og hvernig er það með eftirlauna-
frumvarpið sem Valgerður Bjarna-
dóttir lagði fram á Alþingi í haust við
góðar undirtektir og lof allra þing-
manna? Ætlar þingið að svæfa það
vegna eiginhagsmuna og í von um að
allir séu búnir að gleyma því gerræði
sem þar átti sér stað?
Er ekkert að marka STÓRU ORÐIN og
góðar undirtektir í þessu þjóðfélagi?
Mér er spurn!
Forsíðuleikur á visir.is færir þér lukku
Þú horfir á Ísland í dag þegar þér hentar á visir.is. Ísland í dag er fréttatengdur þáttur þar sem
lifandi þjóðfélagsumræða fer fram alla virka daga. Svanhildur Hólm, Inga Lind Karlssdóttir, Sölvi
Tryggvason og Þorfinnur Ómarsson standa vaktina og varpa nýju og skýrara ljósi á allt það helsta
sem gerst hefur á Íslandi í dag.
...ég sá það á visir.is
Gerðu visir.is að upphafssíðu og taktu þátt í vinningsleik, fjöldi frábærra vinninga
– utanlandsferðir, dvd-myndir, áskrift að Stöð 2, bíómiðar o.fl.
Innskráning Frípóstur Hafa samband Stöð 2
Föstudagur 15.febrúar 2008
FréttirForsíða Viðskipti Íþróttir Lífið Umræðan Blogg Fasteignir Smáauglýsingar Vefmiðlar
Bylgjan Gjafabréf Kaupa sjónvarpsáskrift FréttablaðiðSýn
Innlent Erlent Fréttir af fólki Tækni og vísindi Kompás Enski boltinn Fréttaveitan Veður Mannamál Fréttayfirlit
MaturMarkaðurinnKompásÍsland í dag
VefTv Fréttatímar Útvarp Blöð
Fjöldi skemmtilegra
ferðavinninga með
Iceland Express
Gerðu visir.is að upphafssíðu og taktu þátt í
vinningsleik. Fjöldi frábærra vinninga –
utanlandsferðir, leikjatölvur, iPod og margt fleira...
Skýrari sýn
á það helsta
sem er að
gerast á
Íslandi
Magnaðir Wii Nintendo
vinningar frá Skífunni
Glæsilegar Wii Nintendo
leikjatölvur ásamt leik. Skráðu
þig hér og gerðu visir.is
að forsíðu...
Forsíðuleikur
visir.is
Fjöldi aukavinninga
Þú getur unnið fjöldan
allan af frábærum
aukavinningum. Bíó-
miðar á uppáhalds-
myndina þína í Regn-
boganum, Smárabíói,
Háskólabíói eða
Borgar- bíói.
TAKTU
ÞÁTT
Skýrari sýn á það
helsta sem er að
gerast á Íslandi
ÍSLAND Í DAG
Taktu þátt í Forsíðuleik visir.is og þú getur
unnið glæsilegan ferðavinning hjá Iceland
Express. Gjafabréf að andvirði 25.000 kr. og
50.000 kr. gerir þér kleift að skjótast til
einhvers af 14 áfangastöðum Iceland Express.
Þú skráir þig einfaldlega hér á visir.is og gerir
visir.is að upphafssíðu vafrarans þíns....
Meira
Apple iPod fyrir alla fjölskylduna frá Skífunni
iPod touch, nano og shuffle frá Apple eru meðal
veglegra vinninga í Forsíðuleiknum. Þú getur átt
möguleika á einhverjum af þessum
spilurum í vinning ef þú skráir þig hér
og gerir visir.is að
upphafssíðunni
þinni...