Fréttablaðið - 26.02.2008, Page 48
28 26. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Frá framleiðendum Devils Wears Prada
Skemmtilegasta rómantíska gamanmynd
ársins með Katherine Heigl úr Knocked up
og Greys Anatomy í fantaformi.
Missið ekki af þessari!
FÓLK MEÐ ÓTRÚLEGA KRAFTA
SEM GETA BREYTT ÖLLU
KALLAST STÖKKVARAR!
NÝTT Í BÍÓ!NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
12
14
7
16
7
14
7
27 DRESSES kl. 8 - 10
RAMBO kl. 5.50
ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 5.50 ÍSLENSKT TAL
BRÚÐGUMINN kl. 8
JUMPER kl. 10
16
7
12
12
16
27 DRESSES kl.5.30 - 8 - 10.20
JUMPER kl.6 - 8 - 10
BEFORE THE DEVIL KNOWS kl.5.30 - 8 - 10.20
MEET THE SPARTANS kl.6 - 8 -10
27 DRESSES kl. 5.30 - 8 - 10.30
27 DRESSES LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
JUMPER kl. 6 - 8 - 10.10
MEET THE SPARTANS kl. 4 - 6 - 8
ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 3.40 ÍSLENSKT TAL
CLOVERFIELD kl. 10
BRÚÐGUMINN kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
THERE WILL BE BLOOD kl. 5.50 - 9
INTO THE WILD kl. 6 - 9
ATONEMENT kl. 5.30 - 8 - 10.30
BRÚÐGUMINN kl. 5.50 - 8 - 10.10
5%
5%
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN
MEÐ KREDITKORTI TENGDU AUKAKRÓNUM!
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
EITTHVAÐ SKELFILEGT
ER Á SVEIMI!
STÓRKOSTLEG MYND Í LEIKSTJÓRN SEAN PENN.
S.V. - MBL.
S.V. - MBL.
B.B - 24 STUNDIR
B.B - 24 STUNDIR
-V.J.V. - Topp5.is / FBL
- H.J. - MBL
drekktu betur
REYKJAVÍK AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSS
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
SELFOSS
AKUREYRI
KEFLAVÍK
STEP UP 2 kl. 5:50 - 8 - 10:10 7
THERE WILL BE BLOOD kl. 5:15 - 8:30 - 10:10 16
THERE WILL BE BLOOD kl. 5:15 - 8:30 VIP
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 16
MR. MAGORIUMS.. kl. 5:50 L
SWEENEY TODD kl. 10:10 16
UNTRACEABLE kl. 8 16
DEATH AT A FUNERAL kl. 6 - 8 7
STEP UP 2 kl. 6:10 - 8:20 - 10:30 7
P.S. I LOVE YOU kl. 5:30 - 8 - 10 L
JUMPER kl. 8 - 10:30 12
MR. MAGORIUMS... kl. 6 L
STEP UP 2 kl. 8 - 10:10 7
NO COUNTRY FOR OLD... kl. 10:10 L
JUMPER kl. 8 12
BRÚÐGUMINN sýnd lau og sun. 7
STEP UP 2 kl. 8 - 10 7
P.S. I LOVE YOU kl. 8 L
UNTRACEBLE kl. 10:30 16
STEP UP 2: THE STREETS kl. 8 7
CHARLIE WILSONS WAR kl. 10:10 12
RAMBO kl. 8 16
NO COUNTRY FOR... kl. 10 16
- bara lúxus
Sími: 553 2075
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
27 DRESSES kl. 8 og 10.10 L
RAMBO kl. 6, 8 og 10-P 16
JUMPER kl. 8 og 10 12
LOVEWRECKED kl. 6 L
ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 5.30 ÍSL TAL L
2
- 24. Stundir
- V.J.V., Topp5.is
This Is My Life, sigurlagið í for-
keppni Eurovision, er þremur sek-
úndum of langt. Samkvæmt regl-
um EBU mega lögin í keppninni
aðeins vera þrjár mínútur en laus-
leg mæling á lengd leiðir þetta í
ljós. Örlygur Smári, höfundur
lagsins, staðfestir þetta í samtali
við Fréttablaðið. „Ég ætla að hvíla
mig aðeins á laginu og skoða það
aftur,“ segir Örlygur í samtali við
Fréttablaðið. „Ég tek lagið síðan
aftur til skoðunar eftir nokkra
daga og fikta eitthvað í því,“ bætir
hann við og er ekki smeykur við
að annað hvort stytta eða hraða
sigurlaginu.
This Is My Life tók stakkaskipt-
um í þá fimm mánuði sem Euro-
visionkeppnin stóð yfir. Og Örlyg-
ur Smári útilokar ekki að það eigi
eftir að breytast enn meira. „Það
verður örugglega ekki alveg eins
en mjög svipað í grunninn,“ segir
Örlygur.
Og að venju eru margar kjafta-
sögur komnar á kreik í kringum
sigurlagið og sú heitasta er eflaust
sú að höfundurinn og RÚV hafi
leyfi til að skipta út söngvurum.
Örlygur vissi vel af þessari reglu
en sagðist ekki ætla að gera neitt
upp á sitt einsdæmi. Lýsti yfir
fullum stuðningi við bæði Regínu
og Friðrik Ómar. „Ég held að þjóð-
in vilji sjá þau þarna, bæði Regína
og Friðrik Ómar eru góðar fyrir-
myndir og það er því engin ástæða
til að vera að breyta því eitthvað
enda eiga þau sinn þátt í sigrin-
um,“ segir Örlygur. Spurður um
hvort samstarfið við Pál Óskar
héldi áfram sagði Örlygur það
liggja alveg fyrir en poppstjarnan
samdi enskan texta við lagið.
- fgg
Sigurlag Eurovision of langt
ÖRLYGUR ÞARF AÐ STYTTA This Is My
Life er þremur sekúndum of langt.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Hann hljóp yfir allan salinn til að
reka mér rembingskoss áður en
hann fór á sviðið og kom með
þessa frægu yfirlýsingu: „Glymur
hæst í tómri tunnu!“ Þetta snýst
ekki um einhverja áhorfendur.
Setningin beindist gegn mér. Enda
sagði hann það á Nasa síðar um
kvöldið,“ segir Valgeir Magnús-
son, betur þekktur sem Valli
sport.
Valli sá um kynningu á Merzed-
es Club, sem varð í öðru sæti í for-
keppni Eurovision-söngvakeppn-
innar. Vakti athygli hversu
rösklega hann gekk fram og sýndi
ótrúlega hugkvæmni við að koma
sínu fólki á framfæri í fjölmiðlum.
Drógu þar af leiðandi margir þá
ályktun að meinleg yfirlýsing
Friðriks beindist gegn Valla og
Merzedes Club en Friðrik sagði í
Fréttablaðinu í gær að orð hans
beindust ekki gegn Merzedes
Club. Valli tekur mátulega mikið
mark á þeim orðum. „Hann afhjúp-
aði sig. Og athyglisvert að vita að
Friðrik gat varla sofið á nóttunni
af áhyggjum því hann hélt að hann
væri að fara að lenda í öðru sæti
enn og aftur. Friðrik ætti bara að
hætta þessu væli. Annars hef ég
engan áhuga á að skíta Friðrik út.
Atriði Eurobandsins var stórkost-
lega vel úr garði gjört.“
Valli segist aldrei hafa upplifað
eins rafmagnað andrúmsloft og
var í Smáralind. Það hafi greini-
lega pirrað atvinnumennina að
nýliðar, óreyndir flytjendur á borð
við Merzedes Club, væru að velgja
þeim svo mjög undir uggum.
„Ég hef verið að hlæja mig mátt-
lausan af allri vitleysunni sem var
í gangi í tengslum við keppnina.
Eins og að vera staddur í miðju
handriti myndarinnar „Blade of
Glory“. Plöggsigurvegari? Jájá,
ég skilaði í það minnsta mínu. Ég
held að fáar hljómsveitir hafi
fengið eins mikla athygli,“ segir
Valli.
Valli ber sig vel fyrir hönd hóps-
ins, telur þátttökuna heldur betur
hafa orðið honum til framdráttar
en nú er verið að vinna nýja plötu
með hópnum. „Eftir á að hyggja
var þetta kannski besta niður-
staðan. Silvía Nótt bara dó eftir að
hafa farið í forkeppnina úti. Merz-
edes Club er bara rétt að byrja.“
- jbg
Valli sport fékk koss frá Friðriki
VALLI SPORT Sigurvegari í Eurovision-
plöggi segir fyrir liggja að honum hafi
sneið sigurvegarans verið ætluð.
Friðrik Ómar fékk hjálp frá dávaldi til að
sigra í Eurovision. Hjálparhellan fer með
til Serbíu.
„Þetta var mjög sérstakt. Hún tók mig afsíðis, við
fundum rólegan stað hjá Smárabíói og svo dáleiddi
hún mig,“ segir Friðrik Ómar, en hann lét Ingibjörgu
Gunnarsdóttur dáleiða sig til sigurs í Eurovision á
laugardaginn. „Ég hafði nú takmarkaða trú á ein-
hverju svona, en allt í einu hurfu öll hljóð í umhverf-
inu og ég heyrði bara röddina hennar. Hún hjálpaði
mér að búa til orkubolta í brjóstkassanum á mér og
slá í hann í hvert skipti sem mig vantaði orku á svið-
inu. Ég er allur blár og marinn í dag.“
„Fólk viðurkennir oft ekki að það sé stressað, en ég
sá það á honum að hann var dauðstressaður,“ segir
Ingibjörg. „Það sem hann þurfti var góð slökun og
það er þekkt aðferð að búa til orkusvæði í líkamanum
til að leita í. Þetta er ekkert vúdú!“
Ingibjörg er eiginkona Grétars Örvarssonar og
samdi textann við lagið Eldur sem Friðrik Ómar söng
í Eurovision í fyrra. Hún er NLP-ráðgjafi og byggir á
sömu kenningum og Anthony Robbins notar, en hann
er einn þekktasti hvatningarfyrirlesari heims. Henni
var sjálfri illa við að fljúga og hefur komið sér upp
aðferð sem felst í því að þrýsta á þumalputtann til að
losna við flughræðsluna. „Ég starfaði meira við þetta
fyrir nokkrum árum en nú nota ég þetta aðallega til
að hjálpa vinum og kunningjum,“ segir Ingibjörg.
„Dáleiðsla virkar ef fólk er móttækilegt og það getur
hjálpað að nota hana, til dæmis til að losa sig við alls
konar fóbíur. Ég var alveg fullkomlega örugg um að
lagið þeirra myndi vinna og sat bara úti í sal og fylgd-
ist með því gerast.“
„Ég reikna fastlega með því að taka Ingibjörgu út
til Serbíu með mér,“ segir Friðrik og Ingibjörg er til í tuskið: „Auðvitað fer ég með! Ég hleypi honum ekki
einum til Serbíu. Það er stríðsástand þarna!“
Friðrik býst við að atriðið þeirra Regínu verði svip-
að í Belgrad og það var hér og telur afar ólíklegt að
strákarnir í Eurobandinu fái að vera með þeim á svið-
inu. „Það gerir ekkert fyrir þetta lag að hafa gítar,
bassa og trommur með á sviðinu, en strákarnir koma
samt örugglega með okkur út þótt þeir fari ekki á
svið.“
Um „stóra tunnu-málið“ hefur Friðrik þetta að
segja: „Ég stend alveg við það sem ég sagði, en ég
myndi samt sleppa því að segja þetta í dag. Nú vona
ég bara að stuðningsmenn hinna laganna komi og
styðji okkur. Það er í sjálfu sér ekkert annað í boði.“
gunnarh@frettabladid.is
Dáleiddi Friðrik til sigurs
LÉT FRIÐRIK ÓMAR BERJA
Á SÉR ORKUBOLTANN Ingi-
björg Gunnarsdóttir fer með
til Belgrad.
VAR DAUÐSTRESSAÐUR En Friðrik Ómar losnaði við stressið
með hjálp dáleiðslu.