Fréttablaðið - 28.02.2008, Blaðsíða 36
[ ]Sund er holl og góð líkamsrækt sem stunda má með litlum til-kostnaði. Sundbolur eða skýla og kort í sundlaugarnar er um þrisvar sinnum ódýrara en íþróttafatnaður og kort í líkamsræktarstöð .
Fagfólk innan geðsviðs Landspítala hefur
menntað sig í fyrirbyggjandi stuðningi við börn
þeirra foreldra sem glíma við geðraskanir. Um
þróunarverkefni er að ræða sem nefnist Fjöl-
skyldubrú og einn af frumkvöðlum þess er Eydís
Sveinbjarnardóttir geðhjúkrunarfræðingur.
„Foreldrum sem eiga við geðræna erfiðleika að etja
er umhugað um að standa sig vel í foreldrahlutverk-
inu og þeir hafa áhyggjur af velferð barna sinna.
Geðrænn vandi foreldra er líka þekktur áhættuþátt-
ur fyrir vanlíðan barna og getur haft áhrif á þroska
þeirra og heilsu. Því er þörf á ákveðnum stuðningi
við fjölskyldur sem eiga í þessum vanda því hægt er
að hafa jákvæð og verndandi áhrif á líðan þeirra og
stöðu.“ Þannig byrjar Eydís útskýringar sínar á verk-
efninu Fjölskyldubrú sem hún hefur haft forgöngu
um ásamt Sigurði Rafni Leví, sálfræðingi á barna- og
unglingageðdeild, Vilborgu G. Guðnadóttur, deildar-
stjóra sömu stofnunar, og Salbjörgu Bjarnadóttur,
verkefnastjóra hjá Landlæknisembættinu. Eydís
segir þau hafa sótt fyrirmynd að verkefninu til hinna
Norðurlandanna og einkum stuðst við ákveðið líkan
sem kennt er við barnageðlækni í Boston, Beardslee
að nafni. „Hann byggir sinn stuðning á langtímarann-
sóknum á því hvað er hjálplegast og bætir líðan fyrir
þennan hóp og hefur gefið út handbækur um efnið,“
segir hún og heldur áfram: „Við fjórmenningarnir
erum allir í fullri vinnu en fórum í gegnum heilmikið
fjarnám undir handleiðslu erlendra sérfræðinga og
ákváðum að miðla þeim fróðleik innan geðsviðsins.
Nú eru 16 fagmenn á geðdeild Landspítalans að
útskrifast á morgun eftir 72 klukkustunda bóklegt
nám og 20 klukkustundir í handleiðslu í að veita fjöl-
skyldum á geðsviði LSH þennan sértæka stuðning.“
Eydís segir forvarnarhugmyndafræði tengjast verk-
efninu sem fagfólk í heilsugæslu, skólum og félags-
þjónustu þurfi þjálfun í. „Sá forvarnarstuðningur
kallast „Tölum um börnin“. Eitt af því sem stuðning-
urinn getur komið í veg fyrir er félagslegar erfðir.
Að eitthvað sem er vandamál hjá afa og ömmu, fær-
ist yfir til foreldra og þaðan yfir á börn. Það getur
verið orðræða eða samskiptamynstur sem helst gegn-
umgangandi innan fjölskyldu. Getur birst í þögn, til
dæmis um geðsjúkdóma.“
Fjölskyldubrúin er greinilega metnaðarfullt verkefni
en Eydís tekur fram að það sé ekki komið í gagnið.
„Þetta er ný viðbótarþjónusta sem við erum að reyna
að koma hér inn í kerfið en ég get ekki sagt núna við
þá sem vantar hana: „Heyrðu, þú hringir í þetta
númer eða bankar á þessar dyr.“ Þörfin er hins vegar
mikil. Það sem vantar er ákveðið fjármagn en von-
andi verður þess ekki langt að bíða að Fjölskyldubrú-
in verði hluti af þjónustu geðsviðs Landspítalans.
gun@frettabladid.is
Fjölskyldubrú í byggingu
Eydís með handbækur sem fjalla um stuðning við þau börn
sem eiga foreldra með geðraskanir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Borðaðu
þig granna(n)
Nánari upplýsingar
Sími 865-8407
www.vigtarradgjafarnir.is
ALCO-GEL
Sótthreinsandi handgel.
Engin flörf fyrir sápu og vatn.
Fæst í apótekum
um land allt.
/ rakel@osk.is
Bæjarhraun 22 220 Hafnarfjörður
Veffang: rakel@osk.is
Símar: 696-2663 / 555-3536
ROPE YOGA
WWW.OSK.IS
Byrjendanámskeið hefjast
3., 10. og 11. mars
morgun, hádegis og síðdegis tímar
Skráðu þig strax í þetta einstaka ævintýri.
Vertu hjartanlega velkomin
Rakel og Ósk
Auglýsingasími
– Mest lesið