Fréttablaðið - 14.03.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
FÖSTUDAGUR
14. mars 2008 — 73. tölublað — 8. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Elín Sigurðardóttir rope yoga-kennari veitir
uppskrift að ljúffengu og næringarríku kjúkl-
ingasalati fyrir fjóra til se
dráttur í líkamanum og maður viarefni úr f ð
Saðsamt páskasalat
Elín að störfum í eldhúsinu ásamt húsbóndanum á heimilinu, Sigurbirni Dúa Baldvinssyni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HOLLT FYRIR BÖRNINEbba Guðný Guðmundsdóttir kennir foreldrum að búa til næringarríkan mat handa börnum sínum úr alls konar ávöxtum, grænmeti, korni og fræjum.
MATUR 2
SMÁBÍLAR
Eigendur smábíla þurfa ekki að eyða eins miklu í bensín auk þess sem þeir geta í sumum tilfellum fengið
frí bílastæði í
miðborginni.
BÍLAR 3
SKÍÐABOGAR
www.stilling.is // stilling@stilling.is
Skeifan 11, 108 Reykjavik | Bíldshöfði 12, 110 Reykjavík | Smiðjuvegur 68, 200 Kópavogur
Dalshraun 13, 220 Hafnarfjörður | Draupnisgata 1, 600 Akurey i
Eyrarvegur 29 800 S lf
Allar upplýsingar um er að finna á vef Stillingar www.stilling.is
VEÐRIÐ Í DAG
ELÍN SIGURÐARDÓTTIR
Mikilvægt hvað er
borðað og hvernig
matur bílar
Í MIÐJU BLAÐSINS
HEILSA OG LÍFSSTÍLL
Sundkennsla, klifur
og kynfræðsla
SÉRBLAÐ UM HEILSU OG LÍFSTÍL
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG.
da
gar
til paska
i
9
heilsa og lífsstíll
FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008
FRÉTTA
BLA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Aldrei of seint að læra sundtökin!Sundkennsla fyrir full-orðna BLS. 6
Kóngur hjólar í
kóng
Kúrekinn Johnny
King er ósáttur
við Bubba
Morth ens.
FÓLK 50
Stóra stundin
Afmælistónleikar Sálarinnar eru í
kvöld. Stebbi Hilmars bíður með
öndina í hálsinum eftir því hvort
safnkassi sveitarinnar komist til
landsins í tæka tíð.
FÓLK 42
Mikil hátíðahöld í
tilefni dagsins
Fella- og Hólakirkja
fagnar tuttugu ára
vígsluafmæli.
TÍMAMÓT 28
BJART SYÐRA Í dag verða norðan
10-15 m/s úti við suður- og suð-
austurströndina, annars hægari.
Bjartviðri á landinu sunnan- og
vestanverðu, annars snjókoma og
síðar él.
VEÐUR 4
-1 -1
1
3
1
Óskar aðstoðar
Guðmund
Óskar Bjarni Óskars-
son var í gær ráðinn
aðstoðarlandsliðsþjálf-
ari í handknatt-
leik.
ÍÞRÓTTIR 44
EFNAHAGSMÁL „Þetta er að detta inn,
því miður, að lánin séu orðin jafn há
og markaðsverð eignarinnar,“ segir
Guðbergur Guðbergsson, löggiltur
fasteignasali. Hann segir nokkur
dæmi um slíkt og óttast að þeim
eigi eftir að fjölga.
Fréttablaðinu er kunnugt um
íbúð í útjaðri höfuðborgarsvæðis-
ins þar sem ásett verð er 29 millj-
ónir króna. Á henni hvíla 28,6 millj-
ónir. Eftir því sem fasteignasalar
segja dugar mismunurinn ekki
fyrir söluþóknun. Fleiri dæmi séu
um slíkt. Blaðið þekkir ennfremur
til dæmis úr miðbæ Reykjavíkur,
þar sem lánið er orðið hærra en
sem nemur markaðsvirði.
„Það er mjög algengt að eignirn-
ar dekki ekki skuldirnar,“ segir
Ásta S. Helgadóttir, forstöðumaður
Ráðgjafarstofu um fjármál heimil-
anna. Mörg dæmi séu um að fólk
hafi selt eignir til að eiga fyrir
skuldum.
Fasteignaverð á höfuðborgar-
svæðinu lækkaði að jafnaði um 0,9
prósent í síðasta mánuði, sam-
kvæmt nýjum tölum frá Fasteigna-
mati ríkisins, en lítið hefur verið
um fasteignaviðskipti undanfarnar
vikur. Sé miðað við síðustu þrjá
mánuði hefur fasteignaverðið þó
hækkað lítillega.
Undanfarin rúm tvö ár hefur
fasteignaverð á höfuðborgarsvæð-
inu hækkað um fjórðung. Hækkan-
ir eru hins vegar mismunandi eftir
hverfum og öllu minni í sumum
úthverfum Reykjavíkur. Það getur
haft þau áhrif að höfuðstóll lána
fari yfir verðsetningarhlutfallið
eða jafnvel yfir markaðsverðið.
„Í fasteignaspá okkar er gert ráð
fyrir því að næstu tvö árin aukist
verðbólgan meira en sem nemur
hækkun fasteignaverðs. Fasteignir
lækka þá í verði að raunvirði og
eigið fé í húsnæði minnkar þar af
leiðandi. Við spáum þó ekki hruni á
fasteignamarkaðnum,“ segir Ásgeir
Jónsson, forstöðu maður Greiningar-
deildar Kaupþings.
Höfuðstóll verðtryggðra lána
heimilanna hefur hækkað um ríf-
lega 200 milljarða króna undan-
farin fjögur ár, vegna verðbólgu.
Fram kom í Fréttablaðinu í gær
að laun hefðu að jafnaði hækkað
umfram verðlag undanfarin fjögur
ár. Þetta á þó alls ekki við um alla.
Samkvæmt haustskýrslu hagdeild-
ar Alþýðusambands Íslands varð
kjararýrnun hjá fjórum af hverjum
tíu launþegum á árunum 2005 til
2007. Á þeim tíma hafa verðtryggð-
ar skuldir hækkað umfram launa-
hækkanir hjá þessu fólki. - ikh
Fasteignaverð
fer lækkandi
Dæmi eru um að áhvílandi lán á íbúðum nálgist
markaðsverð þeirra eða fari jafnvel fram úr því.
Fasteignaverð í höfuðborginni lækkaði í febrúar.
VORIÐ ÞJÓFSTARTAÐI Í HÖFUÐBORGINNI Ekki þarf mikið til að mannlífið fari í
vorstellingar í miðborginni. Eftir harðan vetur hefur viðmót veðurguðanna heldur
hlýnað undanfarna daga og sátu kaffigestir undir berum himni á Austurvelli í gær líkt
og á sumardegi. Það var líka eins gott fyrir borgarbúa að nýta sér tækifærið því í dag
fengju menn líklegast kvef ef þeir léku þetta eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/
VIÐSKIPTI „Þótt þarna hafi komið
óvænt inn um 270 milljarðar
breytir það líklega ekki því að við
erum enn skuldugasta þjóð heims.
Kannski er þetta Íslandsmet í
reikniskekkju,“ segir Gylfi
Magnús son, prófessor í viðskipta-
og hagfræðideild Háskóla Íslands.
Seðlabankinn birti nýlega tölur
á vefsíðu sinni þar sem sagði að
erlend staða þjóðarbúsins hefði
verið neikvæð um 1.845 milljarða
króna í fyrra. Seðlabankinn leið-
rétti tölurnar á miðvikudag og
segir réttu töluna vera 1.584 millj-
arða. „Þetta er auðvitað óheppi-
legt og segir manni kannski það
að yfirsýnin er stundum ekki
mjög trúverðug. Það geta auðvit-
að allir gert mistök en hundruð
milljarða til eða frá geta skipt
töluverðu máli,“ segir Gylfi. - mh
Rangar tölur Seðlabankans um erlendar skuldir:
Íslandsmet í reikniskekkju
LÖGREGLAN Lögreglufélag Suður-
nesja, Tollvarðafélag Íslands,
stéttarfélagið SFR og Félag flug-
málastarfsmanna stóðu fyrir fjöl-
mennum fundi í gærkvöldi í
Reykjanesbæ vegna fyrirhugaðs
niðurskurðar hjá embætti Lög-
reglu- og tollstjórans á Suður-
nesjum. Félagsmenn hafa haft
verulegar áhyggjur af áhrifum
niðurskurðarins.
„Ályktunin sem sett var fram
er einfaldlega sú að það þarf að
tryggja rekstrargrundvöll emb-
ættisins vegna þessa mikla vanda
sem steðjar að löggæslu á Suður-
nesjum,“ segir María Pálsdóttir,
ritari Lögreglufélags Suðurnesja.
Hún segir að tæplega 150 manns
hafi verið á fundinum.
Á fundinum voru meðal ann-
arra sveitarstjórnarmenn frá
Suðurnesjum og alþingismenn
Suðurkjördæmis. - jse
Lögreglufélag Suðurnesja fundaði um fyrirhugaðan niðurskurð:
Fjölmennur fundur í Keflavík
FRÁ FUNDINUM Í REYKJANESBÆ
Fjölmennt var á fundinum í gærkvöldi
þar sem rætt var um rekstrarvanda hjá
embætti Lögreglu- og tollstjórans á
Suðurnesjum. MYND/VÍKURFRÉTTIR