Fréttablaðið - 14.03.2008, Blaðsíða 86
50 14. mars 2008 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HVAÐ VAR ÉG AÐ SPÁ?
LÁRÉTT
2. dropa 6. járnstein 8. gap 9. hvoftur
11. tveir eins 12. stoð 14. öl 16. fisk
17. meiðsli 18. hreinn 20. þessi 21.
treysta.
LÓÐRÉTT
1. dægurs 3. eftir hádegi 4. eldsneyti
5. einkar 7. litbrigði 10. ferskur 13. fát
15. litlaus 16. stefna 19. óreiða.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. leka, 6. al, 8. hol, 9. gin,
11. ll, 12. stýfa, 14. brugg, 16. ál, 17.
mar, 18. tær, 20. sá, 21. trúa.
LÓÐRÉTT: 1. dags, 3. eh, 4. kolagas,
5. all, 7. litblær, 10. nýr, 13. fum, 15.
grár, 16. átt, 19. rú.
Bæði Friðrik Ómar og Regína Ósk eru komin í stífa
einkaþjálfun í World Class í Laugum. Þau ætla að
vera í sem allra bestu formi þegar þau koma fram
sem fulltrúar þjóðarinnar í Belgrad 22. maí.
„Það eru akkúrat tveir mánuðir þangað til við
förum út svo það er að duga eða drepast,“ segir Frið-
rik Ómar, sem nú púlar 5-6 sinnum í viku hjá
einkaþjálfaranum Yesmine Olsson. „Það er ekkert
nema skyr og gulrætur alla daga og ég er búinn að
vera að drepast úr harðsperrum. Þetta fór ferlega í
taugarnar á mér til að byrja með. En þetta er allt að
koma. Ég er svakalegur nammigrís en mun hafa
þetta af. Ég ætla samt ekkert að missa mig í þessu.
Mitt markmið er nú bara að ég passi í fötin.“
„Það er gott að hafa svona gulrót eins og Euro-
vision, en ég held nú markmiðunum mínum fyrir
sjálfa mig,“ segir Regína Ósk. „Þegar maður er
svona mikið fyrir framan alla finnst mér nauðsyn-
legt að mér líði sem allra best. Ef manni líður vel þá
geislar maður meira.“
Regína hamast hjá Lindu Jónsdóttur einka-
þjálfara. „Ég hef verið hjá henni annað slagið í gegn-
um árin. Það munar miklu að hafa einkaþjálfara.
Maður nær pottþétt árangri og það er gott að hafa
einhvern sem bíður eftir manni. Ég mæti til hennar
þrisvar í viku en fer stundum sjálf að brenna, oft í
nýju stöðina í Turninum í Kópavogi. Það er mjög
þægileg stöð.“
Þótt Regína og Friðrik æfi á sama stað æfa þau á
ólíkum tíma og hittast sjaldan í Laugum. „Við
vinnum nú svo mikið saman að það er gott að fá frí
frá hvoru öðru í ræktinni. Svona til að halda
neistanum lifandi,“ segir Friðrik Ómar og hlær. - glh
Eurobandið kemur sér í form
EKKERT NEMA SKYR OG GULRÆTUR Eurovision er gulrót Euro-
bandins í ræktinni.
„Hvernig dettur Karli Th. í hug
þessi þvæla? Bull að maðurinn
skuli láta þetta frá sér svona. Hann
ætti í raun og veru að kíkja til
Styrmis og læra mannasiði,“ segir
Jónína Benediktsdóttir athafna-
kona.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að harðskeyttum palladómi
um Styrmi Gunnarsson, ritstjóra
Morgunblaðsins, í tímaritinu
Herðubreið, sem kemur í búðir í
dag, fylgi dálkur þar sem vitnað er
í áður óþekkta bók eftir Jónínu:
Ninna Nótt – taka tvö. Í Herðu-
breið er gengið út frá því að Styrm-
ir sé fyrirmynd persónu í bókinni
sem heitir Sólon Árnason og er
háskólarektor. Honum er „…lýst
sem einum mesta valdamanni
landsins, með umfangsmikil tengsl
inn í stjórnmál og viðskipti, með
öðru. Þeir sem til þekkja telja ekki
vafamál að allmarga drætti úr lýs-
ingunni á Sóloni megi rekja til
Styrmis Gunnarssonar“, segir í
Herðubreið.
Jónína segir þetta hina mestu
fjarstæðu. Varðandi bókina, sem
EG miðlun gefur út, Íslandsprent
prentaði og kom út árið 2005, þá er
Jónína ekki að pukrast með hana.
Síður en svo. Jónína var komin svo
langt með skrifin að allt eins gott
var að láta bókina í gegnum prent-
vélarnar. En Jónína dró til baka
alla kynningu. Hún stóð þá í
ströngu í málaferlum við Frétta-
blaðið í svokölluðu „tölvupósta-
máli“. Jónína ákvað um þær mund-
ir einnig að draga til baka framboð
sitt um 5. sæti í prófkjöri sjálf-
stæðismanna í Reykjavík. Jónína á
þrjú bretti af bókinni og er síður
en svo búin að afskrifa hana. „Hún
verður kynnt til sögunnar svo um
munar. Bókin er góð og sýnir
hvernig karlmenn svívirða konur
endalaust. Lýsir þeirri karlrembu
og kvenfyrirlitningu sem ég hef
kynnst. En henni hef ég ekki
kynnst hjá Styrmi Gunnarssyni,“
segir Jónína.
Hvað varðar þá ályktun Herðu-
breiðarmanna og ritstjórans Karls
Th. Birgissonar að Sólon sé Styrm-
ir segir Jónína það mikinn dóna-
skap að setja fram. Sem reyndar
kemur Jónínu ekki á óvart úr þeim
ranni. „Hvaða Samfylkingarsnepill
er þetta? Með Kristrúnu Heimis-
dóttur [aðstoðarkonu Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráð-
herra] í ritnefnd,“ spyr Jónína og
telur ótrúlegt bull og þvælu að láta
svona nokkuð frá sér.
„Hins vegar getur Sólon verið
hvaða karl sem er. Ég mun útskýra
þessa bók í öðrum ritum sem ég
mun senda frá mér á næstunni.
Karl mætti líta sér nær. Sólon er
að finna nær honum en hann
grunar. Hann þarf að lesa betur í
sitt nánasta umhverfi.“
Jónína segir jafnframt að það
komi að því að hún muni útskýra
sinn málstað betur í stríði við
menn eins og Karl Th. En það sé
ekki tímabært enn – fólk sér ekki
alla myndina enn. Og sumir eru
blindari en aðrir. „En þetta er mitt
svar. Algjört bull. Og þessi dreng-
ur ætti að skammast sín að fabúl-
era svona,“ segir Jónína.
jakob@frettabladid.is
JÓNÍNA BEN: KARL TH. BIRGISSON SKAMMIST SÍN FYRIR DÓNASKAPINN
Styrmir ekki Sólon rektor
„Það er eitthvað mikið að í sálar-
lífi Bubba. Ég þekki þetta af eigin
raun. Ég var svona sjálfur. Fullur
hroka og fældi fólk frá mér,“ segir
kántrítónlistarmaðurinn Johnny
King.
Hann bætist nú í góðan hóp tón-
listarmanna sem styður Bigga í
Maus heils hugar eftir óvægin
ummæli Bubba Morthens þess
efnis að Biggi væri falskur söngv-
ari og falskheitin smituðust yfir í
skrif Bigga í Monitor-tónlistar-
tímaritið. Má ásamt Johnny King
nefna þá Árna Johnsen, Geir
Ólafsson og Jójó sem allir eru á
því að ólíðandi sé að menn „drulli
með þessum hætti yfir kollega
sína“, eins og Johnny orðar það
afdráttarlaust.
„Bubbi ætti aðeins að deyfa ljós-
in í mælaborðinu, skipta um stöð
og hlusta á eitthvað annað en sjálf-
an sig,“ segir Johnny King. Hann
telur Bubba vinna ómældan skaða
með vægðarlausum ummælum
sínum. Þannig er Johnny
með lítið stúdíó á Akur-
eyri og tekur upp söng
fólks sem ekki fær mikil
tækifæri. En nú sé svo
komið að fólk, sem
fengið hefur útreið hjá
Bubba bæði í Idolinu
og svo Bandinu hans
Bubba, þori ekki að opna munn-
inn. „Það er alvarlegt þegar svo
djúpir draumar sem söngdraumar
eru drepnir. Jaðrar við glæp,“
segir Johnny. Hann er nú að undir-
búa útgáfu 15 laga disks með
Kúrekum norðursins sem mun
bera heitið Outlaws og kemur
út á næstunni. „Þeir sem
heyrt hafa segja þetta
albesta kántrí sem komið
hefur út á Íslandi. Diskur-
inn kemur út í maí.“
- jbg
Johnny King hjólar í Bubba kóng
JOHNNY KING Bætist nú í
góðan flokk tónlistarmanna
sem fordæma vægðarlaus
ummæli Bubba í garð
Bigga í Maus.
BUBBI MORTHENS Hefur
kallað yfir sig reiði kollega
sinna með afdráttarlausum
dómum sínum um Bigga.
„Auðvitað er þetta bara bölvuð
þrjóska í manni að vera ekki
hættur.“
Valgarður Guðjónsson, Fræbbblunum, í
viðtali við Pressuna í ágúst 1992.
„Þessi þrjóska er ennþá til staðar. Við
erum alla vega búnir að gefa út tvær stór-
ar plötur síðan þetta var og sú þriðja er á
leiðinni á næsta ári,“ segir Valgarður nú.
Jakob Frímann
Magnússon, for-
maður Ftt, boðar til
mikils blaðamanna-
fundar í hádeginu á
Hótel Borg. Frétta-
blaðið hefur hlerað
að þar standi til
að kynna mikla
og æsispennandi pílagrímsför tón-
listarmanna til Liverpool um mán-
aðamótin maí-júní. Til stendur að
hinir fornfrægu Hljómar komi fram
í Cavern-klúbbnum við þetta tæki-
færi og að fara á tónleika
Pauls McCartney.
Óttar Felix Hauksson
verður einn leiðang-
ursstjóra en á hádegi
verður opnaður
vefur ftt.is undir
yfirskriftinni
„fyrstur kemur
fyrstur fær“.
Við frumsýningu á
kvikmyndinni Heiðinni
eftir Einar Þór með
Jóhanni Sigurðar-
syni í aðalhlut-
verki í Háskóla-
bíói rann myndin
sitt skeið á enda,
eins og lög gera
ráð fyrir, og þegar kreditlistinn
byrjaði að rúlla tóku frumsýningar-
gestir til við að klappa. Venjan er
að aðstandendur fari við svo búið
upp á svið og þakki en nú brá
hins vegar svo við að forráðamenn
Háskólabíós létu opna dyrnar út
um leið og kreditlistinn fór að
rúlla, sem áhorfendur tóku sem
merki þess að þeir ættu að drífa
sig út. Klappið hætti því og fólk fór.
Leikstjóri, leikarar og aðrir aðstand-
endur stóðu því uppi í hálftómum
sal og enginn mórall fyrir því að
fara upp á svið í lokin. Þetta sveið
ýmsum sárt, ekki síst
ungum leikurum
sem ekki eru
vanir því að sjá
frumsýningar á
kvikmyndum.
- jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
JÓNÍNA BENEDIKTSDÓTTIR Hætti við
kynningu bókarinnar á sínum tíma en
sá tími mun koma að hún kynni sinn
málstað í ritum sem væntanleg eru.
STYRMIR GUNNARSSON Jónína
segir að Karl Th. ætti að kíkja til
hans og læra mannasiði.
NINNA NÓTT Lykilróman
eftir Jónínu og lýsir þeirri
karlrembu og kvenfyrirlitn-
ingu sem hún hefur kynnst.
En ekki frá Styrmi þó.
KARL TH. BIRGISSON
Þessi drengur ætti,
að mati Jónínu, að
skammast sín fyrir
dónalegar fabúleringar.