Fréttablaðið - 17.03.2008, Blaðsíða 4
4 17. mars 2008 MÁNUDAGUR
ORKA „Geysir Green er nú með
yfir sjötíu prósenta eignarhlut í
Enex, svo REI getur kannski ekki
ráðið því hvað verður um það
[Enex],“ segir Guðmundur Þór-
oddsson, forstjóri REI.
Hann var spurður út í orð
Ásgeirs Margeirssonar, forstjóra
Geysis Green Energy, um að
undirbúningur fyrir sameiningu
Enex og Geysis sé langt kominn.
REI á um fjórðungshlut í Enex.
Guðmundur var inntur eftir
afstöðu REI til þessa og kvað
hann enga slíka afstöðu hafa
verið tekna. REI hafi ekki svarað
Geysi um málaleitanina. - kóþ
Forstjóri REI um Enex:
Hlutur REI
gæti farið inn
LÖGREGLUMÁL Sextán ára piltur
var stöðvaður við akstur í miðbæ
Reykjanesbæjar í fyrrinótt en sá
hafði að sjálfsögðu ekki ökurétt-
indi sökum ungs aldurs. Haft var
samband við foreldra drengsins.
Nokkur ölvun var í miðbæ
Reykjanesbæjar og þurfti einn að
gista fangageymslur sökun ölvun-
ar. Þá var einn ökumaður stöðv-
aður grunaður um að aka undir
áhrifum fíkniefna.
Á laugardagsmorgun stöð-
aði lögreglan ölvaðan ökumann
á Suðurnesjum. Sá reyndist ekki
hafa ökuréttindi þar sem hann
hafði verið sviptur þeim vegna
ölvunaraksturs fyrir skömmu. - þo
Erill á Suðurnesjunum:
Sextán ára pilt-
ur undir stýri
SLYS Átta ára gömul stúlka slasað-
ist í Bitrufirði í gær og var flutt
með þyrlu Landhelgisgæslunnar á
Landspítalann í Fossvogi.
Stúlkan var að renna sér ásamt
fleirum á plastpoka í snjónum
fyrir ofan bæinn Einfætingsgil
þegar hún skall á karlmann með
þeim afleiðingum að hún hlaut
áverka á hálsi, höfði og brjóst-
kassa.
Lögreglan flutti stúlkuna til
móts við sjúkraflutningamenn
frá Hólmavík á börum og þar tók
læknir ákvörðun um að senda hana
suður. Hún gekkst undir rannsókn-
ir á Landspítalanum en meiðsli
hennar reyndust ekki alvarleg. - þo
Þyrlan sótti stúlku:
Slasaðist við
leik í snjónum
SLYS Alvarlegt umferðarslys
varð á gatnamótum í Þorláks-
höfn um miðjan dag í gær þegar
fólksbifreið var ekið í veg fyrir
bifhjól.
Ökumaður bifhjólsins var
fluttur fótbrotinn með sjúkrabíl
á Landspítalann í Fossvogi þar
sem gert var að sárum hans.
Ökumaður fólksbílsins slas-
aðist ekki en hann er grunaður
um að hafa ekið undir áhrifum
fíkniefna.
Bíllinn og bifhjólið voru óöku-
fær eftir slysið og flutt á brott
með kranabíl. - þo
Ökumaður undir áhrifum:
Ók í veg fyrir
mótorhjól
BRUNI Allt tiltækt lið slökkviliðs-
ins á höfuðborgarsvæðinu var
kallað að fjölbýlishúsi við Eiðis-
torg 13 til 15 á Seltjarnarnesi í
gær.
Verktakar voru að vinna við að
setja tjörupappa á þak og hafði
neisti hlaupið frá þeim með þeim
afleiðingum að eldur læsti sig í
þakið.
Rífa þurfti upp 20 fermetra af
klæðningu til að komast fyrir eld-
inn og mátti litlu muna að illa
færi. Nokkrar skemmdir urðu á
íbúð á fimmtu hæð, einkum vegna
vatns.
Þetta var annar bruninn í fjöl-
býlishúsi sem slökkviliðið sinnti í
gær því fyrr um morguninn
kviknaði í íbúð í blokk í Breið-
holtinu.
Mikill erill var hjá slökkvilið-
inu um miðjan daginn í gær og á
þeim rúma klukkutíma sem tók
að slökkva eldinn á Eiðistorgi
sinntu sjúkrabílar sex bráðatil-
fellum, þar af fjórum þar sem
óskað var eftir fleiri en einum
sjúkrabíl. Mun það vera óvenju-
legur fjöldi útkalla á ekki lengri
tíma. - þo
Óvenjuerilsamt var hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í gær:
Eldsvoði og sex bráðaútköll
ELDUR Á EIÐISTORGI Eldsins
varð vart snemma og því tókst
að forða því að verr færi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Datt á skíðum í Bláfjöllum
Níu ára gömul stúlka datt á skíðum
í Bláfjöllum í gær og meiddist á
hálsi. Hún var flutt með sjúkrabíl á
Landspítalann í Fossvogi en meiðsli
hennar reyndust ekki alvarleg.
SLYS
UMHVERFISMÁL „Ég geri fastlega
ráð fyrir því að við kærum þetta,“
segir Bergur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Landverndar.
Hann fagnar orðum Aðalheiðar
Jóhannsdóttur í Fréttablaðinu í
gær, en hún held-
ur því fram að
byggingarleyfi
sem sveitarfé-
lögin Reykjanes-
bær og Garður
hafa veitt Norð-
uráli vegna
álvers í Helgu-
vík, sé byggt á
gölluðu áliti
Skipulagsstofn-
unar. Álitið geti því ekki verið
grundvöllur leyfisins.
Segist Aðalheiður telja að
umhverfisverndarsamtök geti
kært ákvörðun sveitarfélaganna
til úrskurðarnefndar skipulags- og
byggingarmála. Krefjast megi að
framkvæmdir við álversbyggingu
verði stöðvaðar á meðan.
Aðalheiður er dósent við laga-
deild Háskóla Íslands og Bergur
segir hana eitt
helsta kennivald
landsins í
umhverfislög-
gjöf.
„En í allri
góðri stjórnsýslu
myndu sveitar-
félögin þó draga
leyfið sjálfviljug
til baka, falli
úrskurður ráð-
herra okkur í vil,“ segir hann og
vísar til eldri kæru Landverndar
til umhverfisráðherra.
Í kæru þeirri er þess krafist að
álit Skipulagsstofnunar verði gert
ógilt og að fram fari lögformlegt
umhverfismat á framkvæmdun-
um í heild sinni. Kæran bíður
úrskurðar ráðherra.
En Árni Sigfússon, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ, segir bæjarfélagið
halda áfram með starf sitt. Aðal-
heiður gagnrýni helst tvennt; línu-
lagnir og losunarkvóta.
Árni kveður útfærslu línulagna
á lokastigi. Losunarkvótana hafi
Norðuráli áður verið tilkynnt um
að fyrirtækið ætti að sækja um
seinna, þar sem verkefni þess
væri ekki komið nógu langt.
„Og þá er eðlilegt að þegar verk-
efnið er komið lengra að hægt sé
að sækja um losunarkvóta,“ segir
Árni.
Árni segir að álit Aðalheiðar hafi
því engin sérstök áhrif á fram-
kvæmdirnar. „Við höfum séð önnur
álit frá öðrum lögmönnum og þeir
hafa verið annarrar skoðunar. En
ef Landvernd ætlar að halda þess-
um árásum sínum á okkur áfram,
þá bara velur hún það. Við erum
ýmsu vön.“ klemens@frettabladid.is
Ákvörðunin líklega
kærð af Landvernd
Framkvæmdastjóri Landverndar gerir ráð fyrir því að kæra ákvörðun sveitarfé-
laga um að gefa út byggingarleyfi, enda byggi leyfið á gölluðu áliti. Bæjarstjóri
Reykjanesbæjar bíður þessarar „árásar“ frá Landvernd. Segist ýmsu vanur.
ÚR HELGUVÍK Framkvæmdastjóri Landverndar geri fastlega ráð fyrir að félagið muni
kæra byggingaleyfið enda byggi það á gölluðu áliti.
BERGUR
SIGURÐSSON
ÁRNI SIGFÚSSON
SLYS Tveir voru fluttir á slysa-
deild eftir að bifreið ók á bifhjól
á Miklubraut á móts við Réttar-
holtsveg í gær. Loka þurfti hluta
Miklubrautarinnar um tíma
meðan lögregla og sjúkralið
unnu á staðnum auk þess sem
hreinsa þurfti upp olíu.
Meiðsli mannanna reyndust
ekki alvarleg. - þo
Óhapp á Miklubrautinni:
Bíll og bifhjól
skullu saman
HARÐUR ÁREKSTUR Ökumaður bifhjóls-
ins handleggsbrotnaði. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
GENGIÐ 14.03.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
140,8457
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
69,78 70,12
141,51 142,19
108,56 109,16
14,554 14,64
13,637 13,717
11,477 11,545
0,6933 0,6973
114,1 114,78
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
6°
5°
3°
3°
4°
9°
9°
10°
5°
5°
21°
16°
10°
8°
22°
8°
26°
17°
6Á MORGUN
Vestlæg eða hæg
breytileg átt.
MIÐVIKUDAGUR
8-15 m/s hvassast með
ströndum s- og sv-til
4
LYKTIN AF VORINU
Fólk nefnir mikið
við mig þessa
dagana að það fi nni
lyktina af vorinu.
Það má til sanns
vegar færa enda
vorjafndægur á
fi mmtudaginn og
sumir byrjaðir á vor-
verkunum í garðin-
um. Til viðbótar er
hitinn á uppleið og
hægviðrasamt. Rétt
er þó að minna á
að alltaf má búast
við vorhretum.
5
3
4
2
5
5
6
5
5
1
5
5
3
1
1
1
1
3
3
3
3
5 2
2
25
4
5
5
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur