Fréttablaðið - 20.03.2008, Síða 46

Fréttablaðið - 20.03.2008, Síða 46
38 20. mars 2008 FIMMTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 MORGUNMATURINN LÁRÉTT 2. grunnflötur 6. klaki 8. fugl 9. arinn 11. skóli 12. ríki í Norður-Afríku 14. lést 16. tveir eins 17. herma 18. for 20. málmur 21. faðmlag. LÓÐRÉTT 1. fangi 3. fæddi 4. handarlínulist 5. starfsgrein 7. teppun 10. hljóðfæri 13. strá 15. steintegund 16. draup 19. óreiða. LAUSN LÁRÉTT: 2. gólf, 6. ís, 8. lóa, 9. stó, 11. fg, 12. líbýa, 14. fórst, 16. ll, 17. apa, 18. aur, 20. ál, 21. knús. LÓÐRÉTT: 1. gísl, 3. ól, 4. lófaspá, 5. fag, 7. stíflun, 10. óbó, 13. ýra, 15. talk, 16. lak, 19. rú. „Ég fæ mér LGG og glas af diet kók. Ég verð alveg ómöguleg ef þetta vantar á morgnana.“ Hulda Gústafsdóttir hestakona. Plötur Megasar Frágangur og Hold er mold voru kosnar plötur ársins í flokknum popp/dægurtónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum á þriðjudagskvöld- ið. Fjarvera Megasar vakti nokkra athygli. „Þetta var góður dagur, ég sat í sófanum og sá úrslitin á netinu,“ segir Megas. „Mér fannst bara verst að forsetinn skyldi ekki fá nein verðlaun. Nei, ég sá enga ástæðu til að mæta. Ég hleyp nógu mikið frá konu og börnum út af einhverju vinnutengdu þótt ég sé ekki hlaupandi líka út af heimilinu fyrir einhver hátíðarhöld.“ Megas er nú í hljóðveri og enn eru það Senuþjóf- arnir sem leggja honum lið. „Ég vil ekki fullyrða neitt en þetta gæti alveg eins endað á nýrri plötu,“ segir Megas. Hann treður upp með Senuþjófunum á Aldrei fór ég suður á laugardaginn. Og Megas er ánægður með að Bob Dylan sé á leiðinni. „Ég skil reyndar ekkert í því að hann treysti sér hingað aftur. Nei, ég sækist ekki eftir því að fá að hita upp fyrir hann. Ég vil bara fá að njóta tónleikanna og ekki leggja neitt á mig, það er að segja ef ég get skrapað saman fyrir miða.“ - glh Hleypur ekki frá fjölskyldunni FINNST VERST AÐ FORSETINN FÉKK ENGIN VERÐLAUN Verðlaunahafinn Megas er í hljóð- veri með Senuþjófunum. Kóreska stórfyrirtækið Samsung notaði þrjátíu íslensk vöðvabúnt til að auglýsa loftkælingartæki fyrirtækisins, Hauzen. Tökur á auglýsingunni fóru fram við rætur Fjallsárjökuls í fallegu veðri en það var framleiðslufyr- irtækið Filmus sem hafði veg og vanda af tökunum. Að sögn Arnars Knútssonar hjá Filmus gátu þeir ekki verið heppnari með veður. Hið dæmi- gerða vetrarveður var víðs fjarri og þess í stað skartaði sólin sínu skærasta, hitinn rétt við frost- mark. Kóreska poppstjarnan sem leik- ur aðalhlutverkið í auglýsingunni var hins vegar ekki alveg jafn sátt við íslenska veðurfarið. „Hún var með tíu einkaþjóna sem stjön- uðu við hana á allan hátt og um leið og það var kallað „cut“ stukku þeir upp til handa og fóta og hentu yfir hana hlýjum fatnaði,“ segir Arnar en aðstæður stjörnunnar skánuðu ekki mikið þegar vöðva- búntin þrjátíu hófu að kæla hana með fjöðrum af miklum móð. „Íslensku víkingarnir voru hins vegar hæstánægðir og upplifðu ekkert nema tóma hamingju,“ bætir Arnar við en svo heppilega vildi til að sjö af þeim þrjátíu sem tóku þátt í auglýsingunni eru að fara að keppa á fitness-móti fyrir norðan um páskahelgina og voru því „helköttaðir“ eins og það heit- ir víst á fagmálinu. Hlynur Áskelsson, betur þekkt- ur sem Ceres4, var einn þeirra kraftajötna sem lét ljós sitt skína í kóresku auglýsingunni. „Þetta var mikið ævintýri, við fengum náttúrulega gott veður, sól og þannig séð blíðu,“ segir Hlynur. Hann ber hinum kóresku yfir- mönnum vel söguna en segir þá hafa haft fullmikla fordóma gagn- vart líkamshárum. „Okkur var gert að láta öll „óþörf“ líkamshár hverfa, þannig að maður varð bara að vaxa sig kvöldið áður,“ segir Hlynur og hlær. Einn Íslend- inganna hafði hins vegar ekki fengið þessi sömu skilaboð og þegar hann fækkaði fötum skein í loðna bringuna. Hlynur segir að þá hafi rakvélin einfaldlega verið tekin upp og hárin fengið að fjúka á staðnum. „Þetta var allt mjög nákvæmt og allar hreyfingar voru æfðar deginum áður. Það skipti miklu máli að allir væru í takt og stæðu í þráðbeinni línu,“ segir Hlynur. - fgg CERES4: GERT AÐ VAXA SIG FYRIR AUGLÝSINGU Hárlaus íslensk vöðvabúnt auglýsa kælingu frá Kóreu HÁRLAUSIR Í NYLONBÚNINGI Kraftajötnarnir íslensku voru kannski ekki beint vígalegir í hvítum nylonbúningi og nánast algjörlega hárlausir. Sögulegum minjum af barnum Sirkus hefur verið komið fyrir í gámi þar sem þær bíða örlaga sinna. Byrjað er að rífa niður húsnæðið sem eitt sinn hýsti þennan sögufræga stað en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur Sigríður Guðlaugsdóttir, eigandi staðarins, staðið í ströngu við að bjarga því sem bjargað verður. Meðal þess sem hefur verið komið undan er hið stórmerkilega barborð þar sem ófáar listaspírur höfuðborgarinnar sátu að sumbli. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst hafa margir sýnt innanstokksmunum skemmtistað- arins áhuga. Nokkrir listamenn hafa þannig falast eftir hlutum úr Sirkus í þeirri von að geta endurskapað eitthvað af þeirri sérstöku stemningu sem myndaðist á listsýningum. Sögusagnir hafa verið á kreiki um að eitthvað verði flutt til London þar sem staðurinn ætti að verða endurskapaður að innan en það fékkst þó ekki staðfest. Fréttablaðið hafði samband við Sigríði en hún kaus að tjá sig ekki um málið að svo stöddu, sagði að örlög innanhússmunanna ættu eftir að skýrast á næstunni. - fgg Sögulegum Sirkus-minjum bjargað BYRJAÐ AÐ RÍFA Sirkus-húsið verður brátt jafnað við jörðu en margir listamenn bera sterkar taugar til stað- arins. Einhverjum innanstokksmunum hefur þó verið bjargað. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SKILTIÐ FARIÐ Skilti með nafni Sirkus hefur verið tekið niður. Vinsælt var hjá ferðamönnum að mynda sig við skiltið. Rapparinn Erpur Eyvind- arson þykist ekki orðinn skallapoppari þótt hann hafi tekið virkan þátt í forvali RÚV á framlagi Íslendinga til Eurovision. Mikið er að gerast hjá Erpi og verður hann að þeyta diskum á Akureyri á föstudagskvöld og spila með Rottweilerhundum á Ísafirði á laugardagskvöldi. Hann hefur nú nýlokið við að taka lag á sólóplötu sem hann er með í smíðum og semur titillagið í kvikmyndinni Stóra planinu eftir Ólaf Jóhann- esson auk þess að vera sérlegur tónlistarráðgafi vegna hljóðmynd- arinnar. Hin mjög svo fjölskipaða hljómsveit Retro Stefson, alls 16, er ásamt fleiri tónlistarmönnum á Ísafirði á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður sem Mugison skipuleggur ásamt öðrum. Reyndar eru aðeins sjö þeirra fyrir vestan. Nokkurt ónæði var af fjölmiðlamönnum sem hringdu í hljómsveitarmeðlimi og grennsluðust fyrir um furðulega fréttatilkynningu í nafni Retro Stefson sem barst til fjölmiðla. Þar var því lýst yfir að nú væri þriðji hljóm- sveitarmeðlimurinn kominn út úr skápnum og fylgdi beiðni til Gay Pride um að fá að taka þátt í göngunni næst. Talsmenn Retro Stefson kannast hins vegar ekki neitt við neitt og ljóst að þarna er einhver mis- tækur húmoristi að þjófstarta 1. apríl. - jbg FRÉTTIR AF FÓLKI Nr. 12 - 2008 Verð 659 k r. 20. mars. – 26. mars. Bara í Gerir lí fið skemm tilegra ! Bubbi og H rafnhildur upp að alta rinu: BRÚÐKAUP BUBBA! Þorvaldur Davíð í Reykjavík: Á STEFNUMÓTI MEÐ KÓKÓMJÓLK! Jón Páll í höll tískukóngsins: Edda Heiðrún Backman: Jóhanna Guðrún breytir um stíl:Bl óðugt brúðkaup á Búðum: 40 spor! 9 7 7 1 0 2 5 9 5 6 0 0 9 FJÖLDASLAGSMÁL Í VEISLUNNI! Y Friðrik Weisshappel: KOMINN MEÐ GLERAUGU! GLEÐILEGAPÁSKA! Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.