Fréttablaðið - 20.03.2008, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 20.03.2008, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 20. mars 2008 NEYTENDUR Tölvuleikir hafa hækkað í verði síðan krónan fór á skrið fyrir nokkrum dögum. Í verslunum BT eru þeir nú að meðaltali þrettán prósentum dýrari en 1. mars, samkvæmt verðkönnunum Fréttablaðsins og leikjasíðunnar GameOver.is. Í Elko hafa þeir hækkað um sex prósent að meðaltali. Verð fimmtán tölvuleikja var kannað í verslunum BT og Elko í Skeifunni um hádegisbil í gær. Fjórtán þeirra voru til í BT og níu í Elko. Þessi verð voru síðan borin saman við niðurstöður verðkönnunar GameOver.is frá 1. mars. Þar var verð á sömu leikjum kannað í sömu verslunum. Niðurstöðurnar eru þær að tölvuleikjaverð hefur hækkað í nær öllum tilfellum. Hlutfallslega var mesta hækkunin á PC-leikjum í BT, en þeir fóru úr 4.999 krónum í 5.999. Hækkunin nemur tuttugu prósentum. Þessa þúsund króna hækkun mátti sjá víðar í BT. PlayStation 3-leikir sem kostuðu 6.999 krónur kosta nú 7.999, Wii-leikir fóru úr 6.999 krónum í 7.999 krónur og Xbox 360-leikir hækkuðu einnig úr 6.999 krónum í 7.999. Í verslunum Elko hafði verðið ekki hækkað jafn mikið en í nokkrum tilvikum hafði þúsund krónum verið bætt við eldra verðið. Til dæmis kostar PC- útgáfan af Call of Duty 4 nú 4.995 krónur í Elko en var áður á 3.995. Hækkunin nemur tuttugu og fimm prósentum. „Það er búið að liggja fyrir í nokkrar vikur að það þyrfti að hækka verðið,“ segir Rúnar Örn Rafnsson, rekstrarstjóri BT. „Það hafa bæði orðið gengisbreyt- ingar og hækkanir hjá birgjum þannig að það var fátt annað hægt að gera.“ Hann segist ekki eiga von á fleiri verðhækkunum á næstunni. Örn Barkarson, innkaupafulltrúi afþreyingar hjá Elko, segir verðhækkanir hjá birgjum eina af ástæðunum fyrir verðhækkun hjá sér. „Það má búast við einhverjum fleiri hækkunum vegna gengis, en ég hækka ekki bara til að hækka,“ segir hann. „Við reynum að halda verðinu eins lengi og við getum.“ salvar@frettabladid.is Eldsnöggir að hækka verð á tölvuleikjum Rússíbanareið krónunnar hefur nú þegar hækkað smásöluverð til neytenda. Þúsund krónum hefur verið smurt ofan á stóran hluta tölvuleikja hjá BT og Elko. Fréttablaðið kannaði verð á tölvuleikjum og bar saman við könnun frá 1. mars. TÖLVULEIKIR Aðeins lítill hluti tölvuleikja var verðmerktur þegar Fréttablaðið kannaði verð í gær. Aðspurður sagði starfsmaður nýja verðmiða vera í prentaranum og yrðu bráðlega settir á hillurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON LEIKJAVERÐ Í BT Samkvæmt verðkönnunum Fréttablaðsins og GameOver. is Leikur Verð 1. mars Verð 19. mars Munur Call of Duty 4 - PC 4.999 5.999 20% Stranglehold - PS3 6.499 7.999 23% Metroid Prime 3 - Wii 5.990 6.999 17% Burnout Paradise - X360 6.999 7.999 14% Pro Evolution Soccer 2008 - PS2 5.499 5.999 9% LEIKJAVERÐ Í ELKO Samkvæmt verðkönnunum Fréttablaðsins og GameOver. is Leikur Verð 1. mars Verð 19. mars Hækkun Call of Duty 4 - PC 3.995 4.995 25% Unreal Tournament 3 - PS3 4.995 5.995 20% Burnout Paradise - X360 5.995 5.995 0% NBA 08 - PS2 4.495 5.495 22% 2 fyrir 1 í Bláa lónið gildir gegn framvísun afrifunnar dagana 20.–31. mars 2008 Spennandi páskamatseðill á Lava veitingastaðnum. Börn borða frítt af barnamatseðli panti fullorðinn aðalrétt af matseðli. Tilboð í Blue Lagoon verslun. NÝTT – Fjölskyldukort í Bláa lónið. Nánari upplýsingar í afgreiðslu. Allir sem skrá sig í Blue Lagoon netklúbbinn eiga kost á að vinna fjölskyldukort. 2 fyrir 1 Gildir gegn framvísun miðans dagana 20.–31. mars 2008 Frítt fyrir börn, 11 ára og yngri, í fylgd með forráðamönnum Lykill 1561 Norðurlandaráð veitir í ár náttúru- og umhverfisverðlaun í fjórtánda sinn. Þau nema 350.000 dönskum krónum og eru veitt fyrirtæki, stofnun, samtökum eða einstaklingi sem sýnt hefur sérstakt frumkvæði á sviði náttúru- og umhverfisverndar. Verðlaunin í ár skulu veitt fyrirtæki, stofnun, samtökum eða einstaklingi (t.d. hugvits- eða vísindamanni) fyrir norræna vöru, uppfinningu eða þjónustu, sem hefur átt þátt í að draga úr orkunotkun almennings. Vöruna, uppfinninguna eða þjónustuna, skal vera hægt að nota á öllum Norðurlöndum með umtalsverðum árangri. Um getur verið að ræða kerfisbundna lausn eða sértækan hlut. Öllum er heimilt að tilnefna verðlaunahafa á þar til gerðu eyðublaði. Í fylgiskjali með eyðublaðinu skal tilnefningin rökstudd, lýst í hverju frumkvæðið felst og hver hafi staðið fyrir því. Koma skal fram hvernig varan, uppfinningin eða þjónustan, hefur komið að gagni, hver útbreiðsla hennar er og hverjir nota hana. Fylgiskjalið skal vera í mesta lagi tvær blaðsíður í A4-stærð til fjölföldunar fyrir dómnefnd. Dómnefnd er skipuð fulltrúum Norðurlandanna fimm og sjálfsstjórnarsvæðanna Færeyja, Grænlands og Álandseyja. Tilnefningin skal send á eyðublaði sem þarf að berast Danmerkurdeild Norðurlandaráðs í síðasta lagi föstudaginn 25. apríl kl. 12. Eyðublaðið má nálgast á heimasíðu ráðsins, www.norden.org, eða hjá skrifstofu dönsku landsdeildarinnar: Nordisk Råd Den Danske Delegation Christiansborg DK-1240 København K Sími +45 3337 5999 Fax +45 3337 5964 Netfang: nrpost@ft.dk F í t o n / S Í A Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2008

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.