Fréttablaðið - 20.03.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 20.03.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Dr. Gunna Ég hef hugsað alltof mikið um fjármál síðustu dagana. Fjár- mál eru leiðinlegasta fyrirbæri alheimsins og ég kann ekki við þetta. Mig langar í áhyggjulausari raunveruleika án endalausra frétta af gengi markaða. Er eðli- legt að skap manns fari eftir því hvaða bréf froðufellandi verð- bréfakarlar á útúrstressuðum kontorum kaupi þann daginn? Á maður að fá í magann af því að bláfátækir Kanar fluttu úr hjól- hýsum í einingarhús og eiga nú ekki fyrir láninu? Kannski sé best að hætta bara að hlusta á fréttir. Á MÁNUDAGINN var allt í steik. Er allt að fara til fjandans? var yfirskrift fundar Viðskipta- blaðsins. Auglýsingin dundi á manni allan daginn. Ég hringdi með sting í hjarta og spurði síma- stelpuna á blaðinu: Já, það er nokk- urn veginn allt að fara til fjand- ans, svaraði hún. Á þriðjudaginn var „engin ástæða til bjartsýni“. Ég sofnaði seint það kvöld. Í gær- morgun sagði Edda Rós sérfræð- ingur, sá frelsandi engill, að nú væri ástæða til „hóflegrar bjart- sýni“. Mér létti eitt augnablik, sá jafnvel utanlandsferð í hillingum. Sá léttleiki gufaði upp eins og íslensk króna í kauphöll þegar ég sá forsíðu DV: Skelfilegar hækk- anir eftir páska! Ég slaufaði öllu öðru, þaut í Bónus og slóst við elli- lífeyrisþega um kjúklingabringur á 3.000 kall kílóið. Þær kosta örugglega 5.000 kall eftir helgi. HVAÐ næst? Þrátt fyrir ýkta þenslu höfum við þurft að vinna lengst allra til að eiga fyrir dýr- asta drasli í heimi. Þrátt fyrir að dollarinn væri í 60 kalli og góðær- ið grasseraði lækkaði ekki neitt. Það var aldrei tilefni til vaxta- lækkana til að „ógna ekki stöðug- leikanum“. Nú hækkar allt og ennþá er ekki tilefni til vaxtalækk- ana, kannski til að „ógna ekki óstöðugleikanum“. Hvað veit ég? Jú, ég veit það að þegar verð hefur á annað borð hækkað á Íslandi þá lækkar það ekki aftur. Í því ljósi vil ég óska verkalýðshreyfingunni til hamingju með nýgerða kjara- samninga. Á MEÐAN ég bylti mér yfir end- unum sem ná ekki saman get ég líka kviðið fyrir afdrifum íbúða- lánsins sem ég tók þegar endur- fjármögnunartískan stóð sem hæst. Á næsta ári verða vextirnir „endurskoðaðir“ og ég bíð á milli vonar og ótta eftir því að sjá á hvaða vexti lánið fer: hvort mafí- an brjóti á mér hnéskeljarnar eða láti sér nægja að höggva af mér litla putta. Hófleg bjartsýni Í dag er fimmtudagurinn 20. mars, 80. dagur ársins. 7.27 13.35 19.44 7.12 13.20 19.30

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.