Fréttablaðið - 20.03.2008, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 20.03.2008, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 20. mars 2008 27 65 DAGAR TIL STEFNU Á ÞRIÐJUDAGINN FJÖLGAR ÍSLENSKUM MILLJÓNAMÆRINGUM UM 30 Íslensku tónlistarverðlaun- in voru afhent í fjórtánda sinn í Borgarleikhúsinu við hátíðlega athöfn í fyrra- kvöld. Flestir af frambæri- legustu tónlistarmönnum Íslands stigu þar á svið við góðar undirtektir við- staddra. Íslenskri tónlist fagnað PÁLL ÓSKAR Páll Óskar hlaut þrenn verðlaun. Lokaði hann síðan kvöldinu með því að flytja lög af plötunni „Allt fyrir ástina“ ásamt hópi dansara. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HJALTALÍN Hljómsveitin Hjaltalín, sem var kjörin bjartasta vonin, spilaði lag af sinni fyrstu plötu. RÚNAR TÓK LAGIÐ Rúnar steig upp á svið og söng eitt af sínum þekktustu lögum áður en hann tók á móti heiðurs- verðlaunum sínum. ÓLÖF ARNALDS Ólöf Arnalds var verð- launuð fyrir plötu sína „Við og við“ sem kom út fyrir síðustu jól við frábærar undirtektir. Dustin kalkúni, hið flippaða framlag Íra, segist finna fyrir miklum áhuga erlendis frá. Nú er verið að skipuleggja kynningarferð og er aldrei að vita nema kalkúninn komi hingað. Dustin fór á kostum nýlega í viðtali við írska sjónvarpið. Aðspurður um söngkonuna Dönu, sem segir kalkúnann og lagið hans ekkert nema hneyksli, sagði Dustin aðeins: „Það var mikill klassi yfir því þegar Dana, sem vann árið 1970, birtist aftur sem Dana International árið 1998.“ Dustin tekur eingöngu þátt í Eurovision af pólitískum ástæðum: „Írski efnahagurinn var á blússandi siglingu þegar við héldum keppnina á tíunda áratugnum, en nú er allt á niðurleið. Ég tek einfald- lega þátt svo við getum haldið keppnina aftur og komið efnahagnum í lag!“ Dustin hafði mikinn áhuga á því að allir ungir Írar reyndu að komast á stefnumót með Kryddpíun- um. Hann segist hættur við það baráttumál eftir að hann sá þær í návígi. Kalkúninn talar! VILL SIGRA EVRÓPU Dustin kalkúni.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.