Fréttablaðið - 20.03.2008, Blaðsíða 12
12 20. mars 2008 FIMMTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 1.346
4.564 -2,02% Velta: 12.983 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 7,16 -0,28% ... Bakkavör 38,65 +1,31% ... Eimskipafé-
lagið 25,35 -2,12% ... Exista 10,01 -0,89% ... FL Group 6,45 -6,39% ... Glitnir 16,10 -1,53% ...
Icelandair 23,80 -2,06% ... Kaupþing 680,00 -4,76% ... Landsbankinn 27,45 +1,67% ... Marel
82,3 -3,4% ... SPRON 4,35 -6,05% ... Straumur-Burðarás 10,75 +0,09% ... Teymi 4,24 -4,93%
... Össur 86,40 -1,37%
MESTA HÆKKUN
EIK BANKI 3,88%
LANDSBANKINN 1,67%
BAKKAVÖR 1,31%
MESTA LÆKKUN
FL GROUP 6,39%
SPRON 6,05%
TEYMI 4,93%
Skipti, móðurfélag Sím-
ans, höfðu verið í um 20
mínútur á markaði þegar
yfirtökutilboð barst í félagið
frá Existu, stærsta eiganda
þess. Gengi bréfa Skipta
lækkaði um tæp 10 prósent
frá útboðsgengi síðustu
viku í fyrstu viðskiptum. Til
stendur að taka Skipti sem
fyrst af markaði aftur.
Merkja mátti að eitthvað lá í loft-
inu og jafnskjótt og fagnað hafði
verið fyrstu viðskipum með Skipti
hf. og félagið boðið velkomið í Nas-
daq OMX kauphöllina í gærmorg-
un þá hurfu þeir Brynjólfur Bjarna-
son forstjóri Skipta, Erlendur
Hjaltason, forstjóri Existu og Þórð-
ur Friðjónsson forstjóri Kauphall-
arinnar inn í hliðarherbergi og lok-
uðu að sér. Nokkrum mínútum
síðar kom tilkynning í kerfi Kaup-
hallarinnar um stöðvun pörunar
með hlutabréf Skipta og Existu og í
framhaldi.
Klukkann 11.35, rétt rúmum
hálftíma eftir að viðskipti hófust í
fyrsta sinn með bréf Skipta á mark-
aði lá fyrir yfirtökutilboð í allt
hlutafé félagsins frá Existu, sem
fyrir á tæp 43,7 prósent í félaginu.
Þá stóð gengi bréfa Skipta í 6 krón-
um á hlut 9,6 prósentum undir
útboðsgengi félagsins í síðustu
viku sem var 6,64 krónur. Bréf
félagsins fóru lægst 24,2 prósent
undir útboðsgengi um hádegisbil,
en stóðu í 5,75 krónum á hlut í dags-
lok, 13,4 prósentum undir útboðs-
gengi, eftir 25 viðskipti.
Yfirtökutilboð Existu hljóðar
hins vegar upp á útboðsgengið 6,64
krónur á hlut og er í allt útistand-
andi hlutafé. Greiða á fyrir hlutina
með nýjum hlutum í Existu sem
verðleggja á í samræmi við loka-
gengi á markaði á þriðjudag, 10,1
krónu á hlut. „Fyrirhugað er að til-
boðið standi í átta vikur. Verði
gengið að tilboðinu mun Exista
leggja til við stjórn Skipta að óskað
verði eftir afskráningu félagsins
eins fljótt og auðið er,“ segir í til-
kynningu Existu.
Lýður Guðmundsson, stjórnar-
formaður Existu, segir útboð á
bréfum Skipta í liðinni viku hafa
leitt í ljós að hlutabréfamarkaður
sé ekki reiðubúinn til að taka við
nýju félaga í því árferði sem nú
ríki, en þátttaka var dræm í útboð-
inu þar sem selja átti 30 prósent
hlutafjár. 200 fjárfestar tóku þátt
og um fjórðungur seldist. „Þegar
ríkið seldi hlut sinn um mitt ár 2005
var ófyrirséð hvernig fjármála-
markaðir yrðu nú þegar Skipti fara
á markað. Kaupendur félagsins
hafa staðið við gerða samninga að
fullu, þrátt fyrir erfiðasta ástand á
hlutabréfamörkuðum í áratugi,“ er
eftir honum haft í tilkynningu. Þá
kemur fram að til standi að skrá
Skipti aftur í Kauphöll síðar þegar
aðstæður leyfi. Bent er á í tilkynn-
ingu félagsins að Exista sé annað
fjölmennasta hlutafélag landsins
og hlutabréf félagsins séu í flokki
veltumeiri bréfa Kauphallarinnar.
„Í gegnum eign sína í Exista mun
hluthöfum Skipta gefast kostur á
að njóta með óbeinum hætti þess
ávinnings sem Skipti kunna að
skapa í framtíðinni,“ segir þar.
Verði yfirtökutilboð Existu sam-
þykkt nýtir stjórn Existu heimild í
samþykktum félagsins til útgáfu
allt að 2.846.026.330 nýrra hluta í
félaginu og mun hlutafé félagsins
því að hámarki aukast úr
11.361.092.458 hlutum í allt að
14.207.118.788 hluti og eigið fé
félagsins mun aukast um allt að
28,7 milljarða króna. Tilboð Existu
er háð skilyrði um samþykki sam-
keppnisyfirvalda.
olikr@frettabladid.is
SKIPTI HF. HRINGD INN Á MARKAÐINN Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta, móð-
urfélags Símans, hringir markaðsbjöllu Nasdaq OMX kauphallarinnar hér við upphaf
viðskipta með bréf félagsins í gærmorgun. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar-
innar, fylgist með. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Skipti gera stuttan
stans í Kauphöllinni
Ferðaskrifstofa