Tíminn - 08.12.1981, Page 8

Tíminn - 08.12.1981, Page 8
8 Þriöjudagur 8. desember 1981 WtSÍÍIW Útgefandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreióslustjóri: Sig urður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elias Snæland Jóns- son. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Olafsson. Fréttastjóri: Páll Magnússon. Umsjónarmaður Helqar-Timans: llluaí Jökulsson. Blaðamenn: Agnes Bragadottir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Egill Helgason, Friðrik Indriðason, Friða Björnsdóttir (Heimilis Timinn), Halldór Valdimarsson, Heiður Helga dóttir, Jónas Guðmundsson, Jónas Guðmundsson, Kristinn Hallgrimsson, Kristin Leifsdóttir, Ragnar Orn Pétursson (iþróttir), Skafti Jónsson. utjits- teiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guð- jón Robert Agústsson, Elin Ellertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteínsdóttir. Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Siðumúla 15, Reykjavik. Simi: 84300. Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 84387, 84392. — Verð i lausasölu 5.00. Askriftargjald á mánuði: kr. 85.00- Prentun: Blaðaprent h.f. Óhagkvæm prósenta „Prósentan hefur ávallt verið bændum óhag- kvæm”, er haft eftir gömlum þingskörungi og bændahöfðingja. Hér skal engum getum að þvi leitt hvort prósentan hafi leikið bændur grátt og skert afkomu þeirra, en það liggur i augum uppi að fjölmennur þjóðfélagshópur býr við óhag- kvæma prósentu og hefur gert lengi. Það er lág- launafólkið. Fjórum sinnum á ári eru reiknaðar út verðbæt- ur á laun og laun hækkuð samkvæmt þvi. Allir fá sömu prósentuhækkun, sem þýðir að þeir sem hærri hafa launin fá hærri upphæð i sinn hlut en þeir láglaunuðu, og launabilið breikkar. Þegar næst er reiknað eykst bilið enn og svo koll af kolli. Það liggur i augum uppi að i timans rás og eftir þvi sem þessari reiknikúnst er oftar beitt, breikk- ar bilið og misréttið eykst. Stjórnvöld hafa reynt að hægja á þessari ó- heillaþróun með þvi að takmarka verðbætur á hærri laun, en atvinnurekendur hafa gert sér litið fyrir og ákveðið að greiða öllum starfsmönnum sömu hækkunarprósentu og enginn getur bannað þeim það, þvi að i kjarasamningum er samið um lágmarkslaun en engin ákvæði eru um hve há laun greiða megi. Það er orðin löngu viðtekin regla i kjarasamn- ingum, að allir launþegar fái þvi sem næst sömu hækkanir, og oft fá þeir sem betur mega»meiri launahækkanir en aðrir. Skekkir þetta dæmið jafnvel enn meir og virðast samningamenn vinnumarkaðarins aldrei skeyta um það óréttlæti er þeir stuðla að við endanlega gerð kjarasamn- inga.,þrátt fyrir stóryrði um að brýna nauðsyn beri tilað bæta kjör hinna láglaunuðu þegar verið er að undirbúa kröfur og gagntilboð. Upp i lág- launaíólkið er stungið dúsu i formi einhverra fé- lagsmálapakka, sem einkum hafa sér til ágætis að auka útgjöld rikissjóðs og hægt er að telja fólki trú um að þarna hafi það nú heldur betur fengið kjarabætur. Eitt hiö undarlegasta við þetta stigmagnandi ranglæti er að þeir, sem einkum þykjast bera hag láglaunafólks fyrir brjósti, halda i það dauða- haldi og bregðast hinir verstu við ef imprað er á að breyta þessu steinrunna kerfi eins og fara eigi að fremja helgispjöll. Þá er æpt á torgum um kauprán, kjaraskerðingu, minnkun kaupmáttar og hvað þetta nú allt heitir. Það er rétt, að kjör hálaunamannanna yrðu skert,ef hróflað yrði við þessari heilögu kú, en með skynsamlegum að- gerðum væri áreiðanlega hægt að rétta hlut hinna láglaunuðu, eða að minnsta kosti að koma á jöfn- uði sem breikkaði ekki ávallt bilið milli launa- taxtanna á sjálfvirkan hátt. Það er samdóma álit allra, að verðbólgan rýri efnahag láglaunafólks fremur en hinna efna- meiri. Samkvæmt þvi væri það fyrst og fremst hagur hinna efnaminni og tekjulágu að sporna við þeirri verðbólguþróun sem við búum við. Verðbólga á sér margar orsakir, og það er ekkert cinfalt mál að kveða hana i kútinn, en það mætti örugglega draga verulega úr henni ef samkomu- lag næðist um að hægja á sjálfvirkri vixlþróun verðlags og launa og tryggja með þvi bættan hag láglaunafólksins sem allir þykjast bera um- hyggju fyrir i orði en stuðla að auknu misrétti á borði. O.ó. menningarmál Varnarrit fyrir stjórnkerfid Vilhjálmur Hjálmarsson: Raupaö úr ráðuneyti Innan dyra á Hverfisgötu 6 i fjög- ur ár og fjóra daga. Bókaútgáfan Þjóösaga 1981. Þetta er óvenjuleg bók. Hér segir fyrrverandi ráðherra frá sinum ráðherradómi. Augljóst er að það er gert i þeim tilgangi að glöggva fyrir lesendum hvernig málum er ráðið og að þeim unnið á æðstustöðum.Ogekki mun þess vanþörf þvi aðhætt er við að ýms- irséuheidurillaað sér um stjórn- kerfið. Þetta er þvi þörf lesbók fyrir ýmsa þvi að þekking á þjóö- félagsmálum er öllum nauðsyn- leg i lýðræðislandi. Menntamálaráðuneytið kemur viða við sögu. Til þess er leitaö vegna býsna margra og allskonar mála. Hér þarf engan meting milli ráðuneyta um hverra mál séu mikilvægust. En i sambandi við uppeldismálin, megum við jafnan hafa i huga það sem Magniís sálarháski sagði þegar verið var að ræða norður i Skaga- firði, á hverju ætti að byrja þegar þingið islenska hefði fengiö f jár- veitingavald og löggjafarvald 1874. Hann sagði: „Auðvitað á að byrja á börnunum”. t lýðfrjálsu landi gerast hlut- irnir þannig að fyrst vekur ein- hver máls á þvi að eitthvað sé ekki nógu gott. Þarna er vanrækt verkefni eða öfugt staðið að ein- hverju. Takist honum að vinna aðra á mál sitt verður tekið undir við hann og siðan bindast menn samtökum um að knýja fram að- gerðir. Þá erustofnuð félagssam- tök eða einhver hinna eldri félaga fengin til að taka málið að sér. Svo er kannski flutt þings- ályktunartillaga um að fela rikis- stjörninni að undirbda löggjöf um málið. Verði hún samþykkt má g Vilhjálmur Hjálmarsson. búast við að ráðuneytiö feli ákveðnum mönnum aö vinna það verk. Þetta er hin eðlilega leið i lýð- ræðislandi. Hún þykir kannski seinfarin og margorð og pappirs- frek,en samt þekkjum við ekki aðra farsælli. Þessi minningabók Vilhjlams Hjálmarssonar fjallar að veru- legu leyti um þessi vinnubrögð. Auðvitað eru þau ekki rakin aö rótum því að ekkert nær til ráðu- neytisins fyrr en bUið er aö koma af stað einhverri hreyfingu um það. Hitt er annað mál að nýj- ar hugmyndir um framkvæmd viðurkenndra verkefna geta kom- ið beint og milliliðaluast til ráð- herra. Eflaust hefði Vilhjálmur getað nefnt dæmi um slikt en um það er hann fáorður. Hann sleppir alveg að raupa af þvi. Og raunar held ég að maðurinn sé tiltölulega laus við grobb og drýgindi i þesari bók sinni. Það er þjóðkunnugt að Vil- hjálmur á Brekku er léttur i máli og hispurslaus i tali. Vera má að nærri liggi einhverntima að les- anda finnist að frásögnin sé þvi likust sem ögn sé fært i stil. Svo mun þó naumast vera. Þegar vel er gáð,reynist orðalagið vera svo að hann hafi heyrt eða sagt hafi verið. Og slikt gat auðvitað verið snertispöl frá nákvæmustu stað- reyndum. Fjöldimynda er i bókinni, and- litsmyndir af meira og minna þjóðkunnu fólki og myndir teknar við ýmiskonar tækifæri. Sumar þeirra munu þykja sögulegar, aðrar hafa einkum sér til gildis að þær eru skemmtilegar. Ég nefni hér tvær sem sýna að dugandi konur að sækja mál sitt fyrir ráð- herra. Þær þykja mér ágætar. Eins og gefur að skilja kemur fjöldi manna við sögu i þessari bók. Vilhjálmur ber mönnum söguna vel og er umtalsgóður. Auðvitað segir hann frá ágrein- ingsmálum sem deilt var um af fullri alvöru. Venjulega finnst honum andstaðan skiljanleg og réttmæt frá sjónarmiði hinna. Út af ber þó um löggjöfina um sér- stakan fræðslustjóra i hverjum tiuþúsund manna bæ. Sú löggjöf var kntnn fram en svo var það heldur ekki meira. Bókstafurinn stendur og þetta eru lög, en svo er það búið. Sigurinn vannst en hon- um ekki fylgt eftir. Löggjöfin var óþörf og meira en það. En það má lika læra af þessari sögu. Ef menn geta lært. Ég lit á þessa bók sem skemmtilega og trausta lesbók um stjórnsýsluþætti i samtið okkar. Hún er létt og fróðleg. En bak við þessa frásögn ætla ég að lesendur greini mynd af sögu- manni. Og það mun verða geð- þekk mynd sem gott er að skoða. Þvi má svo við bæta að með þessari frómu og yfirlætislausu frásögn er raunar svarað tals- verðu af þeim rógi sem stöðugt er haldið uppi um hið „ómanneskju- lega kerfi”. Til þess hygg ég aö bókin sé skrifuð i og með a.m.k.. Og óhróðrinum ersvarað vel. Þaö vænti ég að fjöldi stjórngæslu- manna finni og meti. H.Kr. Haukur Clausen sýnir ad Kjarvalsstödum Kjarvalsstaðir Haukur Clausen málverkasýning 28. nóv.-13. des. 1981 105 myndir. Málaraglugginn og raf- magnsbókin Mér er það minnisstætt þegar ég var drengur, að oft voru sýnd málverk i sýningarglugga Málar- ans, sem þá var eins konar fjöl- miðill, er borgarbúar höföu að- gang aö, alveg eins og Rafskinnu Gunnars Bachmanns, sem var stór rafmagnsbók, full af haglega teiknuðum og lituðum auglýsing- um, en hún var i Skemmuglugg- anum hjá Haraldi. Þar voru einn- ig sýnd málverk og til dæmis sýndi Svavar Guðnason þar fyrst eftirsig myndir og Markús Ivars- son, forstjóri i Héöni, stóðst auð- vitað ekki freistinguna og keypti sýninguna þar alla, en hann fór stundum illa með peninga, að mörgum fannst þá. Var alltaf með málverk á pedalanum, þegar borgað var Ut i Héöni. önnur minnisstæö sýning, eða sýningar frá þeirri ti'ð, vaf þegar Arreboe Clausen sýndi málverk eftir sig i Málaraglugganum . Það var dálitið óvenjulegt, þvi hann keyrði ráðherrana, og var ekki málari i þeim akademiska skilningi sem þá var rikjandi hér. Hann var fristundamálari, eða þvottahúsmálari, eins og það er stundum nefnt núna, þegar allir mála meiraog minna. Fristunda- málarar voru þá að mig minnir aðeins tveir i' landinu, svo ég vissi, Arreboe Clausen og Magn- ús, dósent, sem svo var nefndur en hann var ráðherra þegar ég var strákur, en lengst af prófess- or f guðfræði við Háskólann. Aðra vissi ég ekki um, annað en ég hafði heyrt að gamli biskupinn, Jón Helgason, hefði málað flott málverk og þeim átti ég síðar eft- ir að kynnast. Ég hékk langtim- um saman við þessa glugga og það gjörðu margir fleiri. Það má vera til marks um álit manna á þessari aukamálningu i landinu að í engu uppsláttarriti, er ég hefiundir höndum, er á þaö minnst að þeir Magnús og Jón heföu verið myndlistarmenn, en allt er talið er þeir rituðu. Orðið var nefnilega stærra, þá einkum hið læröa og prentaða orö. Astæðan til þess að ég rifja þetta upp er sú að nú sýnir Hauk- ur Clausen, tannlæknir, sínar myndir að Kjarvalsstöðum en hann ersonur Arreboe Clausen og einhvern veginn stóðu þessar gömlu myndir úr Málaraglugg- anum svo ljóslifandi fyrir hug- skotssjónum minum, þegar mér var sagt að Haukur fengist við myndlist. Hygg ég að hann hafi erft þar listfengi föður sins, sem var aö minu mati all fær, ekki siður en guöfræðingarnir tveir sem nú eru smám saman að fá pláss i lista- sögunni.eftiraö byrjaðer að taka meira mark á málverkum manna er hafa annars litla skólagöngu i listum. Þessi grunur minn var reyndar staöfestur, er ég las það einhvers staðar, að Haukur hefði fyrst fengið að fara með liti föður sins, þegar hann var barn aö aldri. Sýning Hauks Clausen Það var þvi sannarlega með ljúfarendurminningar i huga, um þessa ágætu menn er minnst var á hér að framan, að ég fór að skoða sýningu Hauks Clausen að Kjarvalsstöðum. Og kannskí hefði hann lika sýnt i' Málara- glugganum, eða i glugganum með rafmagnsbókinni, ef hann hefði verið fyrr á ferðinni eða áður meðan það heyrði meira undir sérvisku en myndlist að ólærðir menn væru að föndra við mynd- list. Básaskipting og stéttaskipt- ing var nefnilega afmarkaðri þá en núna. Haukur sýnirþarna næralltsitt sitt lifsverk á þessu sviði, er mér sagt, þaö er að segja frá þvi að hann telur sig byrja að ná viðun- andi árangri til dagsins i dag. Hann málar með oliulitum og vatnslitum, og hann notar fri- stundirfrá erli lækninganna til að mála þessar myndir. Myndir hans eru flestar af landslagi, og margar eru af frægum stöðum, þannig að hver og einn getur bor- ið saman við einhverja staði. í þessum myndum, mörgum hverjum er að finna þá gleði er maöur fann i Málaraglugganum hjáföður hans, eða sköpunargleði og næmtauga fyrir kyrrlátri feg- urð. Besta myndin á sýningunni finnst mérþóstór, rauð abstrakt- mynd,sem mun vera i eigu bróð- ur hans, ef ég tók rétt eftir. Af öðrum myndum, held ég mest upp á vatnsliti Hauks, einkum i minni myndum hans, eða smá- myndum. Þar nær hann að minu mati feti framar en i öðrum myndum. Haukur er ekki maður nýjunga i m álverki, þótt hann sé það i sinu sérfagi, að mér er sagt, framsæk- inn og fær. Hann fer hina troönu slóð. í tækni hefur hann náð ótrú- lega langt innan þess sviðs er hann vinnur á i myndlist, og sýn- ing hans hefur vakið verðskuld-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.