Fréttablaðið - 22.04.2008, Blaðsíða 40
24 22. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGURNÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
12
12
7
16
FORGETTING SARA MARSHALL kl. 8 - 10
BUBBI BYGGIR Í VILLTA VESTRINU kl. 6
SUPERHERO MOVIE kl. 6 - 8
THE ORPHANAGE kl. 10
12
7
16
FORGETTING SARA MARSHALL kl. 5.30 - 8 - 10.30
FORGETTING SARA M. LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
BUBBI BYGGIR Í VILLTA VESTRINU kl. 4
21 kl. 5.20 - 8 - 10.35
SUPERHERO MOVIE kl. 4 - 6 - 8 - 10
VANTAGE POINT kl. 8 - 10.10
HORTON kl. 4 - 6 ÍSLENSKT TAL
5%
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
16
12
7
16
7
AWAKE kl. 6 - 8 - 10
21 kl. 6 - 9
SUPERHERO MOVIE kl. 6 - 10
DOOMSDAY kl. 8 - 10.20
BRÚÐGUMINN kl. 6 - 8 5%
SÍMI 551 9000
10
16
14
LAKE OF FIRE (MYNDVARPI) kl. 5.20 ENSKUR TEXTI
THE BAND´S VISIT kl. 6 - 8 ENSKUR TEXTI
THE AGE OF IGNORANCE kl. 6 - 8 ENSKUR TEXTI
THE KING OF KONG kl. 6 - 10 ÍSLENSKUR TEXTI
BELLA kl. 8 ENSKUR TEXTI
TROPA DE ELITE kl. 8 - 10.20 ENSKUR TEXTI
BEAUFORT kl. 10 ENSKUR TEXTI
CARAMEL kl. 10 ENSKUR TEXTI
SÍMI 530 1919
GRÆNA LJÓSS
INSBÍÓDAGAR REGNBOGINN11. - 30. APRÍL AÐEINS 2 DAGAR EFTIR AF AUGLÝSTRI DAGSKRÁ!
Mögnuð mynd byggð á
sönnum atburðum um hóp
nemenda sem sérhæfðu sig í
að læra og telja í spilið 21 með
það markmið að hreinsa
spilavítin í Vegas!
"Tryllingslegt
hnefahögg
í andlitið!"
- SV, Mbl - HJ, Mbl
- HJ, MblSV
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SELFOSS
DIGITAL
REYKJAVÍK AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSS
stranglega bÖnnuÐ bÖrnum,
alls ekki fyrir viÐkvÆma !
DEFINETLY MAYBE kl. 8 L
DOOMSDAY kl. 10:15 16
SHINE A LIGHT kl. 8 L
21 kl. 10:15 12
FORGETTING SARAH ... kl. 8 - 10:20 L
FOOL’S GOLD kl. 8 12
VANTAGE POINT kl. 10:20 16
FOOL´S GOLD kl. 8 - 10:20 7
STÓRA PLANIÐ kl. 8 10
THE EYE kl. 10:10 10
FORGETTING SARAH... kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
FORGETTING SARAH... kl. 8 - 10:30 VIP
P2 kl. 8:15 - 10:30 16
SHINE A LIGHT kl. 8 - 10:30 L
SHINE A LIGHT kl. 5:30 VIP
RUINS kl. 8 - 10:30 16
FOOL´S GOLD kl. 5:40 - 8 - 10:30 7
STÓRA PLANIÐ kl. 6D 10
UNDRAHUNDURINN ÍSL TAL kl. 6 L
STEP UP 2 kl. 6 7
P2 kl. 6 - 8 - 10:10 16
STÓRA PLANIÐ kl. 6D - 8D - 10D 10
JUNO kl. 6 7
THE BUCKET LIST kl. 8 7
10.000 BC kl. 10:10 12DIGITAL
DIGITAL
- bara lúxus
Sími: 553 2075
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
1/2
SV MBL
FORGETTING SARAH MARSHALL kl. 5.45, 8 og 10.15 12
BUBBI BYGGIR Í VILLTA VESTRINU kl. 6 - 550 kr. L
THE RUINS kl. 8 og 10 16
DEFINITELY, MAYBE kl. 8 og 10.15 L
SPIDERWICK CHRONICLES kl. 6 7
550 Kr.
Bubbi Morthens heldur ferna tónleika á næstunni í
Keflavík, Hafnarfirði, Kjós og Mosfellsbæ og verða
þeir fyrstu í Keflavík á miðvikudag. Á tónleikunum
mun Bubbi flytja eldri lög í bland við lög af nýrri
plötu, Fjórir naglar, sem kemur út 6. júní, á afmælis-
degi hans.
Þrjú ár eru liðin síðan Bubbi gaf síðast út plötu
með nýju efni og því verður spennandi að heyra
hvernig nýju lögin hljóma. Fyrsta lag plötunnar er
væntanlegt í spilun í næstu viku.
Miðasala á tónleikana fer fram á midi.is og við
innganginn. Miðaverð er 2.000 krónur.
Bubbi spilar ný lög í tónleikaferð
BUBBI MORTHENS Bubbi heldur ferna tónleika á næstunni þar
sem hann ætlar að spila lög af væntanlegri plötu.
Kvikmynd Guðnýjar Halldórs-
dóttur, Veðramót, hefur verið
valin á kvikmyndahátíðina í
Moskvu, sem er sú næstelsta í
heimi. „Á Berlínarhátíðinni var
Veðramót valin til þess að keppa
á þessari hátíð, sem er ein af sjö
A-hátíðum í heiminum. Við erum
auðvitað ljómandi ánægð með
það,“ segir Guðný, sem segist
ekki vita til þess að íslensk mynd
hafi áður farið til Moskvu.
Hátíðin í Moskvu vekur athygli
á heimsvísu, en á meðal þeirra
stjarna sem hafa lagt leið sína
þangað undanfarin ár eru
Quentin Tarantino, Sean Conn-
ery, Meryl Streep og Jack Nichol-
son, svo örfáir séu nefndir.
Hátíðin í Moskvu stendur yfir
frá 19. til 28. júní, eins og segir á
heimasíðu hennar, en Guðný
segir að ekki muni koma í ljós
við hvaða myndir Veðramót
muni etja kappi fyrr en í byrjun
júní. „Núna erum við að panta
kópíu og láta þýða svolítið á
rússnesku, það er ýmislegt sem
þarf að gera og alls konar reglur
sem við verðum að hlýða, sem
við gerum með glöðu geði,“ segir
Guðný, sem telur að föruneyti
Veðramóta verði stórt og mikið.
„Við förum mörg með henni.
Sumum okkar er boðið og svo
kemur fólk sem þarf að hjálpa
okkur svolítið. Svona hátíð opnar
marga glugga, og sérstaklega
þegar maður er í keppni,“ segir
hún. Leikkonan Tinna Hrafns-
dóttir er á meðal þeirra sem
hefur verið boðið á hátíðina og
Guðný útilokar ekki að fleiri
leikarar verði með í för. „Maður
hefur ferðast með Hrafni Gunn-
laugssyni og Tinnu Gunnlaugs-
dóttur og nú er það Tinna Hrafns-
dóttir. Það er flott,“ segir hún
kímin. - sun
Veðramót til Moskvu
Hasarmyndin The Forbidden
Kingdom með bardagaköppunum
Jet Li og Jackie Chan í aðalhlut-
verki fór beint í efsta sæti
aðsóknarlistans vestanhafs eftir
frumsýningarhelgi sína.
Myndin er sú fyrsta þar sem
Jet Li og Jackie Chan leiða saman
hesta sína og virðist samstarfið
hafa hitt rækilega í mark. Í öðru
sæti yfir vinsælustu myndirnar
var Forgetting Sarah Marshall
sem er frá sömu framleiðendum
og sendu frá sér 40 Year Old
Virgin.
Hryllingsmyndin Prom Night,
sem var í efsta sæti í síðustu
viku, féll niður í þriðja sætið. Í
því fjórða var síðan 88 Minutes
með Al Pacino í aðalhlutverki.
Li og Chan á
toppnum
LI OG CHAN Hasarmyndahetjurnar Jet Li
og Jackie Chan fara með aðalhlutverkin
í The Forbidden Kingdom.
ÚR VEÐRAMÓTUM Guðný Halldórs dóttir
heldur í júní á kvikmyndahátíðina í
Moskvu ásamt fríðu föruneyti.
TÓNLEIKAFERÐ BUBBA
Miðvikudagur 23. apríl - Primo Keflavík kl. 21.30
Fimmtudagur 24. apríl - Bæjarbíó Hafnarfirði kl. 20.30
Miðvikudagur 30. apríl - Félagsgarður í Kjós kl. 20.30
Fimmtudagur 1. maí - Hlégarður Mosfellsbæ kl. 20.30
Gamla góða vínylplatan er
í bullandi sókn. Henni var
spáð dauða þegar geisla-
diskurinn kom fram en
nú þykir fátt eins töff hjá
ákveðnum hluta tónlistar-
heimsins en að gefa út
plötu. Báðar spútniksveitir
síðasta árs, Sprengjuhöllin
og Hjaltalín, gefa á næstu
vikum út frumraunir sínar
á plasti.
Plata Sprengjuhallarinnar, Tím-
arnir okkar, er nú í framleiðslu.
„Þetta verður gríðarlega flott
útgáfa,“ segir Snorri Helgason.
„Við tókum mikinn tíma í hönn-
unina og „artvörkið“ mun skila
sér á fullum styrk svona stórt.
Platan verður tvöföld, Tímarnir
okkar verður á fyrstu þremur
plötuhliðunum en á þeirri fjórðu
verður lagið Hiti – okkar útgáfa
af Motown-laginu Heatwave –
auk tónlistarinnar sem við gerð-
um fyrir leikritið Fló á skinni.“
Sleepdrunk seasons með
Hjaltalín kemur út á vínyl um
miðjan maí. „Það er nú bara svo
kúl,“ segir Baldur Esra Einars-
son hjá Kimi Records um ástæð-
ur þess að gefa út á þessu formi.
„Við erum með dreifingu í Skand-
inavíu og sjáum því alveg fram á
að losna við lágmarksupplagið af
svona plötuframleiðslu, 500 ein-
tök. Stefnan er að stærri útgáfur
Kima verði líka til á vínyl. Nýjar
plötur með Benna Hemm Hemm
og hljómsveitinni Reykjavík!
verða til dæmis báðar gefnar út á
vínyl þegar þar að kemur, Benni í
júní og Reykjavík! í ágúst.“
Síðustu árin hafa íslenskar
hljómsveitir sífellt sótt í sig veðrið
í vínylútgáfu. Hljómsveitir eins
og Sigur Rós, Seabear, múm, Slow-
blow og Skakkamanage eru meðal
þeirra sem gefið hafa út á plasti.
Plötubúðirnar eru á tánum. Flest-
ar bjóða þær upp á plötu rekka og í
Skífunni á Laugavegi stendur til
að stórauka framboð á vínyl og
grafa upp plötur á gömlum lager-
um til að gera úrvalið girnilegra.
Plötuspilarar fást víða. Eitt
besta úrvalið er í Pfaff-búðinni.
„Fyrir svona tíu árum seldum við
ekki plötuspilara, en eftir að þeir
komu þá hafa þeir mjatlast út,“
segir Bragi Kort verslunar maður.
„Svo má tala um algjöra spreng-
ingu í sölunni þegar USB-plötu-
spilararnir komu. Það eru plötu-
spilarar sem hægt er að tengja
beint við tölvu.“
Kúl að gefa út á vínyl
TÍMARNIR OKKAR Á FJÓRUM HLIÐUM Sprengjuhöllin kemur á plast. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ALLAR STÆRSTU ÚTGÁFURNAR Á VÍNYL
Baldur Esra hjá Kimi Records.