Fréttablaðið - 22.04.2008, Side 43
ÞRIÐJUDAGUR 22. apríl 2008 27
FÓTBOLTI Barátta ensku liðanna Liverpool og Chelsea um
sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar hefst í kvöld þegar
liðin spila fyrri undanúrslitaleikinn sinn á Anfield Road-
leikvanginum í Liverpool.
Liverpool hefur slegið Chelsea tvisvar sinnum út úr
undan úrslitunum á síðustu fjórum árum, fyrst 1-0 saman-
lagt 2005 og svo eftir vítaspyrnukeppni í fyrra. Búast má
við harðri baráttu og taktískum leik en aðeins þrjú mörk
hafa verið skoruð í sex Meistaradeildarleikjum liðanna
undanfarin fjögur ár. Liðin hafa mæst afar oft í flestum
keppnum undanfarin misseri og eru því væntanlega farin
að þekkja hvort annað út og inn. Chelsea verður án Michael
Essien í leiknum í kvöld þar sem hann tekur út leikbann en
búist er við því að Michael Ballack komi inn á miðjuna í
staðinn fyrir Ganverjann.
„Við erum að spila vel bæði varnar- og sóknarlega og það
er mikið sjálfstraust í liðinu. Við vitum samt að Chelsea er
með mjög skipulagt og gott lið og þetta verður því mjög erf-
itt. Við vitum að þegar tvö frábær lið mætast við þessar
kringumstæður skipta litlir hlutir oft miklu máli,” sagði
Rafael Benitez, stjóri Liverpool, um leikinn. Liverpool
hefur aldrei skorað undir hans stjórn á Stamford Bridge og
því verður afar mikilvægt að hans menn nái góðum úrslit-
um á heimavelli.
Avram Grant, stjóri Chelsea, hefur ekki gefið mikil færi
á sér í fjölmiðlum upp á síðkastið en hann var þó til í að
hrósa Steven Gerrard, fyrirliða Liverpool, í viðtali. „Gerr-
ard er frábær leikmaður og frábær manneskja. Hann er
besti leikmaðurinn í Englandi að mínu mati og jafnvel sá
besti í Evrópu vegna þeirra áhrifa sem hann hefur á sitt
lið,“ sagði Grant um Gerrard, sem hefur glímt við meiðsli
og var ekki með Liverpool í deildinni um helgina. Hann á
samt að vera orðinn klár í leikinn í kvöld.
„Það besta sem við getum tekið með okkur úr þessum
leikjum er tilfinningin sem greip okkur þegar við heyrðum
lokaflautið. Það er versta tilfinning sem hægt er að finna en
að öðru leyti munu þessir gömlu leikir ekki hafa nein áhrif,”
sagði Chelsea-maðurinn Frank Lampard spurður um áhrif
fyrri ófara liðsins gegn Liver-
pool í Meistaradeildinni. Í
þessi fyrri tvö skipti var fyrsti
leikurinn á Stamford Bridge
en að þessu sinni leika liðin
fyrri leikinn á Anfield. Nú er
að sjá hvort það hjálpi Chel-
sea-mönnum að brjóta af sér
Liverpool-álögin í Meistara-
deildinni en sagan er vissu-
lega með heimamönnum,
sem hafa ekki dottið út úr
undanúrslitum Evrópu-
keppni meistaraliða síðan
árið 1965. - óój
Ensku liðin Liverpool og Chelsea leika fyrri undanúrslitaleik sinn í Meistaradeildinni á Anfield í kvöld:
Kemst Chelsea loks í gegnum Liverpool?
Í FÝLU Það hefur verið þungt
yfir stjóra Chelsea síðustu
daga. NORDICPHOTOS/GETTY
Nám samhliða starfi
- styrktu stöðu þína á vinnumarkaði
Umsóknarfrestur er til 5. maí
Rekstrar- og viðskiptanám
Mannauðsstjórnun
Þjónustustjórnun
Gæðastjórnun
Verkefnastjórnun - leiðtogaþjálfun
NÁM SAMHLIÐA STARFI
Leiðsögunám á háskólastigi
Markaðssamskipti - stefnumörkun
og framkvæmd
Þekkingarmiðuð þjónustustjórnun
Nám í verðbréfaviðskiptum
Nánari upplýsingar og skráning:
sími 525 4444
endurmenntun.is
FÓTBOLTI Fyrirsögnin er gömul,
hún hefur margoft verið notuð úti
um allan heim en orðrómurinn er
samt enn að skjóta upp kollinum.
Umboðsmaður hollenska
þjálfarans Guus Hiddink neitaði
því enn og aftur í gær að skjól-
stæðingur hans myndi taka við
Chelsea í sumar en staða Avram
Grant þykir veik hjá félaginu.
„Það eru engar líkur á því að
Guus fari til Chelsea. Hann
skrifaði undir nýjan samning við
Rússa í mars sem nær yfir HM
2010 og Guus stendur alltaf við
sína samninga,“ sagði umboðs-
maðurinn.
„Ég veit ekki hvaðan þessar
sögur koma alltaf og mér er
mikið í mun að jarða þær
endanlega. Málið snýst ekki um
peninga. Það sem málið snýst um
er að Guus er með samning sem
hann ætlar að virða.“ - hbg
Sagan sem aldrei deyr:
Hiddink ekki á
leið til Chelsea
GUUS HIDDINK Verður áfram með rúss-
neska landsliðið. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Þó svo að Ronaldinho sé
búinn að semja um kaup og kjör
við ítalska liðið AC Milan þarf
hann að bíða með að leita að húsi í
borginni.
Samningaviðræður Barcelona
og AC Milan hafa farið hægt af
stað og engin sátt er um kaup-
verðið sem stendur.
„Þetta er ekki að smella saman.
Kannski kemur Ronaldinho ekki
eftir allt saman og við tökum bara
hreinan framherja í staðinn,“
sagði Adriano Galliani, yfirmaður
knattspyrnumála hjá Milan.
Tímabilið hefur verið erfitt hjá
Ronaldinho og hann hefur aðeins
verið í byrjunarliðinu í 13 leikjum
af 30 í deildinni.
Hann hefur verið
nokkuð meiddur og
sögusagnir hafa
verið um að hann
hafi verið tekinn
út úr liðinu vegna
agavandamála. - hbg
Ronaldinho-sala í uppnámi:
Engin sátt um
kaupverðið