Fréttablaðið - 23.04.2008, Page 34
22 23. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
MERKISATBURÐIR
1935 Pólverjar taka í gildi nýja
stjórnarskrá.
1964 Leikfélag Reykjavíkur hélt
upp á 400 ára afmæli
Shakespeares með há-
tíðarsýningu á Rómeó og
Júlíu.
1961 Judy Garland kom fram í
Carnegie Hall.
1983 Kvennalistinn fékk þrjár
konur kjörnar á Alþingi en
aðrir listar fengu samtals
sex.
1992 Halldór Laxness varð ní-
ræður og af því tilefni var
farin blysför að Gljúfra-
steini og efnt til leiksýn-
inga.
1997 Omaria-fjöldamorðin áttu
sér stað í Omaria, litlu
þorpi í suðurhluta Alsír,
42 þorpsbúar, konur og
börn voru drepin.
WILLIAM SHAKESPEARE SKÁLD
LÉST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1616.
„Minna gáfaðir menn telja
sig jafnan vitra en þeir vitru
þekkja takmarkanir sínar.“
Shakespeare er eitt þekktasta
skáld heims og flestir þekkja
Rómeó og Júlíu, ásamt Hamlet
og Óþelló.
Dagur bókar og höfundarrétt-
ar er í dag. Hann var í fyrsta sinn
haldinn hátíðlegur meðal bóksala
árið 1923 í Katalóníu á Spáni.
Upphaflega var það til að heiðra
skáldið Miguel de Cervantes sem
lést þennan dag.
Dagurinn varð síðan hluti af hátíð
í kringum dag heilags Georgs,
en skáldið William Shakespeare
lést einnig þennan dag árið 1616.
Árið 1995 ákvað UNESCO að gera
dag bókarinnar einnig dag höf-
undarréttar og að honum skyldi
fagnað um heim allan, sérstak-
lega þar sem William Shake-
speare lést einmitt þennan dag,
auk skáldanna Incas Garcilaso de la Vega og Jo-
seps Pla. Einnig er hann haldinn til að fagna
fæðingardegi Maurice Druon,
Vladimirs Nabokov, Manuels
Mejía Vallejo og Halldórs Lax-
ness. Á Íslandi mun Rithöfunda-
samband Íslands halda daginn
hátíðlegan í dag og vera með
dagskrá helgaða aldarminn-
ingu Steins Steinarrs. Dagskrá-
in ber yfirskriftina „Ég kvaðst
á við fjandann“ og hefst í Iðnó
kl. 20. Þar munu skáldin Bragi
Ólafsson, Gerður Kristný, Kristj-
án Þórður Hrafnsson, Linda Vil-
hjálmsdóttir, Matthías Johann-
essen, Óskar Árni Óskarsson
og Sigurður Pálsson flytja ljóð
eftir Stein Steinarr. Aðgangur er
ókeypis og opinn öllum. Sjá uplýsingar um dag
bókarinnar: www.worldbookday.com
ÞETTA GERÐIST: 23. APRÍL 1923
Degi bókarinnar fagnað í fyrsta sinn
Ástkær frænka okkar,
Guðlaug Baldvina
Kristjánsdóttir
frá Uppsölum, Svarfaðardal,
sem lést á Dalbæ, Dalvík þann 17. apríl,
verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju föstudaginn
25. apríl kl. 13.30. Jarðsett verður í Vallakirkjugarði.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Vallakirkju.
Kristján Jónsson
Lára Stefánsdóttir
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Bjarni Jóhannsson,
Blásölum 24, Kópavogi,
andaðist á Dvalarheimili aldraðra,
Borgarnesi, sunnudaginn 20. apríl.
Guðný Þorgeirsdóttir,
Íris Bjarnadóttir Kristmar Ólafsson
Jóhann Bjarnason Sigríður Vilhjálmsdóttir
Björgvin Bjarnason Guðbjörg Elín Ragnarsdóttir
Skúli Eyjólfur Bjarnason
Guðný Bjarnadóttir Sveinbjörn Sigurðsson
Guðrún Bjarnadóttir Þorgeir Reynisson
Hjördís Bjarnadóttir Ingi Þór Guðmundsson
afa- og langafabörn.
Elsku móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Guðrún Á. Magnúsdóttir
Hléskógum 16, Reykjavík,
lést laugardaginn 19. apríl á Landspítalanum Fossvogi.
Útför hennar fer fram frá Seljakirkju föstudaginn
25. apríl kl. 13.00.
Vigdís E. Vignisdóttir Bjarni Þór Ólafsson
Davíð Örn Vignisson Sunna Miriam Sigurðardóttir
Andri Reyr Vignisson Sandra Brynjólfsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Guðrún Sveinsdóttir
frá Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum,
sem lést 10. apríl sl. verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju föstudaginn 25. apríl kl. 13.00.
Leifur Þorsteinsson Sigríður S. Frðgeirsdóttir
Sturla Þorsteinsson Ingibjörg Haraldsdóttir
Áshildur Þorsteinsdóttir Lúðvík Friðriksson
og barnabörn.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
Þórey Þorbergsdóttir
sjúkraliði, Laugarnesvegi 89,
lést á Landspítalanum mánudaginn 21. apríl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Hrafnhildur, Dave og fjölskylda.
AFMÆLI
SHIRLEY
TEMPLE
fyrrverandi
Hollywood-
barnastjarna.
80 ára.
MAGNÚS VER
MAGNÚSSON
kraftlyftinga-
maður, 45
ára.
JÓN ÞÓR
BIRGISSON,
JÓNSI söngv-
ari Sigur Rós,
33 ára.
HILMAR
ÖRN HILM-
ARSSON
allsherj-
argoði og
tónskáld.
50 ára. Menntaskólinn á Laugarvatni í Blá-
skógabyggð var formlega stofnaður
sem sjálfstæður framhaldsskóli í apríl
árið 1953. Hann var byggður á grund-
velli gamla Héraðsskólans á Laugar-
vatni sem starfrækti svokallaða Skál-
holtsdeild. Þar var kennt námsefni
fyrsta árs menntaskóla frá árinu 1947
og nemendur þaðan voru útskrifaðir í
samstarfi við Menntaskólann í Reykja-
vík.
Við formlega stofnun Menntaskól-
ans að Laugarvatni voru nemendur
fimmtíu og tveir talsins. Fyrsti skóla-
meistari var dr. Sveinn Þórðarson og
hann veitti skólanum forstöðu á árun-
um 1953-1959. Einnig má nefna aðild
Jónasar Jónssonar frá Hriflu sem
studdi stofnun skólans af alefli.
Í dag eru nemendur tæplega hundr-
að og þrjátíu talsins, þar af eru níu-
tíu prósent nemenda á heimavist skól-
ans. „Menntaskólinn á Laugarvatni
hefur frá upphafi verið heimavist-
arskóli og var stofnaður til að veita
nemendum úr dreifðri byggð aðgang
að framhaldsskólanámi,“ segir Hall-
dór Páll Halldórsson, skólameistari.
„Á þeim tíma var framhaldsskólanám
á borð við háskólanám í dag og nem-
endur úr dreifðri byggð áttu síður
kost á að sækja nám til Akureyrar og
Reykjavíkur sökum fjárhags. Heima-
vistarskóli var því hagkvæmur kost-
ur á þessum tíma,“ segir Halldór Páll,
sem sjálfur er frá Grundarfirði og út-
skrifaðist frá Laugarvatni árið 1977,
en Snæfellingar sóttu mikið í skólann
á þeim tíma.
„Laugarvatn hefur verið mjög
vinsæll meðal nemenda úr dreifð-
um byggðum landsins. Þetta hefur
þó breyst nokkuð síðan ég hóf störf
árið 2001. Þá voru nemendur af Suð-
urlandi tæplega fimmtíu prósent en
hefur fjölgað í tæp áttatíu prósent í
dag,“ útskýrir Halldór Páll, sem telur
þetta stafa af breyttu námsframboði í
öðrum framhaldsskólum á landinu.
Langflestir nemenda eru sem fyrr
segir á heimavistinni, en að sjálfsögðu
búa þeir sem geta heima ef þess er
kostur. „Byggðin í uppsveitum Árnes-
sýslu er frekar dreifð og hér á Laug-
arvatni eru aðeins hundrað og fimm-
tíu með lögheimili,“ útskýrir Hall-
dór Páll sem segir vistarlífið vera
ákveðna menntun út af fyrir sig. „Þeir
sem hafa verið hérna á vistinni bera
skólanum vel söguna. Þarna myndast
ævilöng vinátta og þetta er öðruvísi
og gífurlega þroskandi undirbúningur
fyrir lífið. Krakkarnir hafa stöðugt að-
gengi að skólafélögum sínum, sem er
líka mikill kostur í náminu. Síðan held
ég kannski að í sumum tilvikum þyki
foreldrum erfiðara en krökkunum að
flytja á vistina,“ segir Halldór Páll og
heldur áfram: „Við erum þó í heilmik-
illi samkeppni við „hótel mömmu“ og
þjónustustigið er mjög hátt. Við bjóð-
um enda fullt fæði allan daginn og
þvottahús sem meira að segja brýtur
saman þvottinn.“
Í boði eru þrjár brautir sem eru
náttúrufræða-, félagsfræða- og mála-
braut. Mikil hefð er fyrir íþróttaiðkun
og Halldór Páll segir ákveðið samstarf
vera við íþróttakennaraháskólann um
valáfanga og nefnir meðal annars úti-
vistaráfanga. Þó tekur Halldór Páll
fram að markmiðið sé aðallega að búa
nemendur sem best undir háskólanám,
bæði hérlendis og erlendis.
„Sérstaða okkar er fyrst og fremst
þessi nánd milli nemenda og starfs-
manna. Við erum með fáa nemendur í
bekkjakerfi sem ég tel vera einn helsta
kost skólans. Auk þess er hann mjög
ríkur af hefðum og sögu en um leið vel
tækjum og tækni búinn og framsæk-
inn mjög, þannig að þrátt fyrir ríka
sögu stöðnum við ekkert í fortíðar-
þránni,“ segir Halldór Páll hlæjandi,
og bætir við að skólavist að Laugar-
vatni gangi svolítið í ættir. „Mjög
margir nemendur eiga systkini eða
foreldra sem hafa verið hér. Það finnst
mér segja mikið, og kannski mest um
líðan nemenda hérna í Menntaskólan-
um á Laugarvatni.“
rh@frettabladid.is
MENNTASKÓLINN Á LAUGARVATNI: FIMMTÍU OG FIMM ÁR FRÁ STOFNUN
Skólavistin gengur í ættir
ÆVILÖNG VINÁTTA Halldór Páll Halldórsson, skólameistari Menntaskólans á Laugarvatni segir
einn helsta kost skólans sé nánd nemenda og starfsmanna.
HALLA
MARGRÉT
Árnadóttir
söngkona,
44 ára.
ÞRÖSTUR LEÓ
Gunnarsson
leikari, 47 ára.