Fréttablaðið - 25.04.2008, Page 13
FÖSTUDAGUR 25. apríl 2008 13
VIKA 12
DAGBÓK NÝRRA
ÍSLENDINGA
Nýjar 1 lítra umbúðir
„Ég sá svipuð átök þegar ég bjó
á Spáni,“ segir Rachid um átök
atvinnubílstjóra
og mótmæl-
enda annars
vegar og
lögreglunnar
hins vegar í
fyrradag. „Þá
tókust háskóla-
stúdentar á við
lögregluna og
voru það mjög
hörð átök. Það er slæmt að svona
skuli koma upp á. Ísland er þekkt
um alla Evrópu sem friðelskandi
lýðræðisríki. Ég á til dæmis vini
á Spáni sem tala um Ísland sem
eitt mesta lýðræðisríki í heimi og
ég tel að þetta muni valda fólki
vonbrigðum.“
Rachid Benguella:
SLÆMT AÐ ÚTKLJÁ
MÁL MEÐ OFBELDI
„Mér hefur gengið ágætlega í próf-
unum hingað til,“ segir Charlotte
Ólöf, sem viðurkennir þó að próf-
undirbúning-
urinn hafi ekki
gengið neitt
stórkostlega
vel. „Það hefur
verið nóg að
gera í vinnunni,
við að læra fyrir
prófin og við
undirbúning
Afríkuferðar-
innar,“ segir hún og á þar við ferð
til Líberíu sem hún hyggst fara í
sumar. Charlotte hefur verið að
hressast eftir að hún veiktist í
lungum af völdum víruss. Hún átti
frí í gær og nýtti daginn til að læra.
Charlotte Ólöf Ferrier:
ERFIÐRI VIKU
LOKSINS AÐ LJÚKA
„Það er sama flakkið á mér,“
segir Filipe sem nú er staddur á
Akureyri. „Ég er fyrir norðan að
sinna nokkrum
verkefnum í
vinnunni. Ég
kann bara
nokkuð vel
við mig. Hins
vegar stytti ég
mér stundir á
skíðasvæðinu í
Hlíðarfjalli.“
Þótt sumarið
sé gengið í garð samkvæmt alm-
anakinu þykir Portúgalanum lítið
gefa til kynna að sú sér raunin.
„Reyndar mætti þó segja að það
sé byrjað að vora hér fyrir norðan
þó enn sé nokkuð napurt en það
angrar mig ekkert.“
Filipe Figueiredo:
NAPURT SUMAR
Það er nokkuð liðið síðan við
höfum heyrt í Algirdas en hann
hefur átt annríkt í vinnu, tölvu-
námi og svo
dagskrárgerð á
útvarpinu Halló
Hafnarfjörður.
En næstsíðustu
helgi eyddi
hann með
fjölskyldunni.
„Eldri sonur
minn, Modest-
as, var þá að
keppa í úrslitakeppni í körfubolta
11 ára og yngri í KR DHL-höll-
inni. Það gekk mjög vel og hann
vann Íslandsmeistaratitilinn með
Haukum en það er annað árið í
röð sem þeir gera það. Svo er ég
búinn að skipuleggja sumarfrí
fjölskyldunar og búinn að kaupa
flugmiða til Litháen.“
Algirdas Slapikas:
SONURINN
ÍSLANDSMEISTARI
VIÐSKIPTI „Norðmenn hafa sinn olíusjóð, sem
tryggir þeim mikinn efnahagslegan stöðug-
leika. Við ættum að koma okkur upp þjóðar-
sjóði sem hefði tekjur af auðlindum lands og
hugviti þjóðarinnar,“ sagði Björgólfur
Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbank-
ans, í ræðu á aðalfundi bankans í fyrradag.
Slíkur sjóður ætti að verja efnahagslífið og
hagstjórn fyrir svipuðum áföllum og dunið
hefðu yfir undanfarna mánuði.
Hann sagði það gömul sannindi að í góðæri
skuli huga að mögru árunum. „Ég er þeirrar
skoðunar að ef við Íslendingar viljum halda
áfram á þeirri braut að taka fullan þátt í
viðskiptum á alþjóðamarkaði, halda áfram að
auka tekjur okkur af viðskiptum við útlönd,
halda sjálfstæðri efnahagsstjórn og eiga kost
á eigin gjaldmiðli, þá sé okkur nauðsynlegt að
koma okkur upp mjög öflugum varasjóði.“
Björgólfur minnti á íslenska lífeyrissjóða-
kerfið, þar sem hver og einn hefði lagt fé til
hliðar til efri ára. „Við sem þjóð höfum hins
vegar ekki sýnt þessa fyrirhyggju. Við eigum
ekki sjóð sem mætir alvarlegum þrengingum
eins og þeim sem við göngum nú í gegnum.“
Björgólfur sagði að slíkur sjóður yrði ekki
til á einni nóttu, en eftir áratug yrði hann
myndarlegur, yrði byrjað nú.
„Og jafnvel þótt við yrðum hluti af stærra
peningakerfi og tækjum upp stöðugri mynt þá
er ég ekki frá því að bjartsýni, ákafi og
áhættusækni okkar Íslendinga muni eftir sem
áður skapa þrýsting á efnahagskerfi okkar. Þá
yrði ekki síður mikilvægt að eiga varasjóð til
að vinna gegn skaðlegum sveiflum í búskap
okkar.“ - ikh
Björgólfur Guðmundsson vill verja efnahagslegan stöðugleika með nýjum sjóði:
Íslendingar komi sér upp þjóðarsjóði
MÆLIR MEÐ VARASJÓÐI Björgólfur Guðmundsson,
stjórnarformaður Landsbankans, segir Íslendinga ekki
eiga sjóð sem mæti alvarlegum þrengingum. Við hlið
Björgólfs er Sigurjón Árnason bankastjóri.