Fréttablaðið - 25.04.2008, Blaðsíða 32
V
ið komum heim með
töskurnar fullar af verð-
launagripum eftir þátttöku
í einu virtara húðflúrmóti
Norðurlanda,“ segir húðflúrar-
inn Jón Páll Halldórsson, annar
eiganda Íslensku húðflúrstofunn-
ar, en hann rekur stofuna ásamt
Fjölni tattú og Búra. Þeir félag-
arnir gerðu sér lítið fyrir og skutu
kollegum sínum ref fyrir rass og
unnu til flestra verðlauna á hátíð-
inni. „Þarna voru fulltrúar frá 45
húðflúrstofum. Hver og ein stofa
var með bás á sýningunni auk þess
sem húðflúrarar gátu sent inn til-
lögu í keppnina án þess að vera
með bás,“ segir Jón Páll en mótið
er haldið árlega í Gautaborg og
var vel sótt. Bás Íslensku húðflúr-
stofunnar vakti mikla athygli og
var valinn best hannaði bás sýn-
ingarinnar en þeir hönnuðu sjálf-
ir básinn. „Keppt var í níu flokk-
um á sýningunni en við lentum í
fyrsta sæti í þremur og höfnuð-
um í öðru sæti í tveimur þeirra,“
segir Jón Páll alsæll með árang-
urinn sem kom þeim félögunum á
óvart. „Norðurlöndin eiga frábært
fagfólk sem stendur mjög fram-
arlega í húðflúrlistinni og því er
þetta mikil viðurkenning og hvatn-
ing fyrir okkur að hljóta þessa við-
urkenningu á móti sem þessu,“
bætir Jón Páll við að lokum.
bergthora@365.is
Íslenska húðflúrstofan slær í gegn
Fremstir á Norðurlöndunum
Bás Íslensku húðflúrstofunnar var valinn besti hannaði bás-
inn á sýningunni.
Þetta ævintýralega húðflúr eftir Búra vann í flokknum besti nýi
stílinn.
Starfsmenn Íslensku
húðflúrstofunnar: Jón
Páll, Búri og Fjöln-
ir tattú.
Nú fer að renna upp tími sumarfría og
þá er ekkert betra en að lesa skemmti-
legar bækur. Bjöguð enska Lúdmílu
eftir DBC Pierre er ansi skemmtileg af-
lestrar. Hún fjallar um Blair og Bunny
sem eru fyrstu síamstvíburar heims-
ins sem tekist hefur að aðskilja á full-
orðinsárum, 33 ára að aldri. Á sama
degi í hinu stríðshrjáða Kákasus verð-
ur hin fagra og kjaftfora Lúdmíla Derev
fyrir því óláni að drepa afa sinn. Þegar
desmbermánuður rennur upp eiga þau
öll þrjú ýmislegt merkilegt sameigin-
legt. Þú mátt ekki missa af þessari!
Bjöguð
enska
Lúdmílu
4 • FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2008