Fréttablaðið - 25.04.2008, Page 68
36 25. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
> MEÐ NÝJA DÖMU
Ástarævintýri Gerards Butler og
Cameron Diaz virðist þegar vera
lokið, en til Butlers hefur upp á síð-
kastið sést með dömu að nafni
Cheryl Burke upp á arminn,
en hún gerði garðinn síðast
frægan í þáttunum Danc-
ing with the Stars.
„Rokkið er ekki dautt þótt X-ið
mælist lítið í könnunum,“ segir
Franz Gunnarsson gítarleikari.
Því til sönnunar bendir hann á að
uppselt hafi verið á heiðurstón-
leika fyrir hljómsveitina Alice in
Chains á Organ 15. apríl. Það var
troðfullt og 150 manns urðu frá
að hverfa. Leikurinn verður því
endurtekinn á sama stað í kvöld á
slaginu kl. 23.
Eins og áður munu tónleikarnir
skiptast í tvo hluta. Í fyrri
hlutanum verða lög Alice in
Chains spiluð órafmögnuð en í
þeim síðari verður allt keyrt í
botn. Söngvarar á tónleikunum
verða Jenni úr Brain Police og
Kristófer Jensson úr Lights on
the Highway.
„Ég hef stofnað fyrirtækið IMF
og stefnan er sett á að halda fleiri
svona heiðurstónleika í sumar,“
segir Franz. „Fleiri sveitir frá
gruggtímabilinu verða hylltar en
svo er stefnan að færa sig aftur í
tímann. Það er klárlega markaður
fyrir svona, því eins og ég segi þá
er rokkið síður en svo dautt!“
Rokkið er
ekkert dautt
SYNGJA ALICE IN CHAINS LÖG Í KVÖLD
Aukatónleikar til heiðurs Alice in Chains
verða haldnir á Organ.
Skoski leikarinn Ewan McGregor
lét nýlega fjarlægja fæðingar-
blett undan hægra auga sínu eftir
að sérfræðingur greindi vöxt
krabbameinsfrumna í honum. „Ég
fór til sérfræðings sem sagði að
það væri betra að fjarlægja hann,
og hann hafði greinilega rétt fyrir
sér,“ segir Star Wars-stjarnan.
McGregor sagði aðgerðina hafa
verið lítið vandamál en spurður
hvort hann hafi óttast hana
svaraði leikarinn: „Það var
stórskemmtilegt að vera með
húðkrabba, það var frábært, ég
naut þess mjög.“ Það má reikna
með því að þar hafi kaldhæðni
leikarans fengið að njóta sín.
Ewan með
húðkrabba
LÍTIÐ MÁL McGregor segir það hafa verið
lítið mál að láta fjarlægja fæðingarblett-
inn, sem var undir hægra auga hans.
Grínarinn Sveppi undirbýr
nú hlutverk sitt í nýjum
söngleik. Hann sýnir á sér
nýja hlið sem diskóbolti.
„Ástin er diskó, lífið er pönk“,
söngleikur Hallgríms Helgason-
ar og Þorvaldar Bjarna Þorvalds-
sonar, verður frumsýndur í Þjóð-
leikhúsinu 1. maí. Í söngleiknum
takast á pönkarar og diskófrík,
en í kringum 1980 voru þessir
hópar allsráðandi í menningarlífi
ungs fólks. Meðal fjölmargra
leikara eru Sveppi og Sigurður
Hrannar Hjaltason, sem leika
hvor sinn fulltrúa hópsins.
„Jú, ég get ekki sagt að ég sé
karlmannlegur í þessu
hlutverki. Ég lít dálítið
út eins og Jónas R.,“
segir Sveppi. Hann
leikur Danna
diskó, sem er
mikið í Hollywood
og kennir diskó-
dans. Sveppi
þykir sýna
gríðar lega
danshæfi-
leika í sýn-
ingunni, „Ég
veit nú eigin-
lega ekki af
hverju þau
vildu fá mig í
þetta hlut-
verk. Ég
hef
lítið
dansað, eiginlega bara í Fame
sem ég vona að sem flestir séu
búnir að gleyma. Ég er lítill, feit-
ur og með krullur og með netta
minnimáttarkennd út af dansin-
um. En ég er hægt og bítandi að
vinna mig út úr þessu. Þetta snýst
bara um að brosa og vera hress.
Þá er hálfur sigurinn unninn.“
„Ég dansa ekkert, hristist bara
svona spastískt. Við lærðum
hreyfingarnar af tólf pönkurum
sem hristust fyrir framan sviðið
hjá Fræbbblunum,“ segir Sigurð-
ur Hrannar Hjaltason, sem leikur
pönkarann Ragga Rúnk.
Raggi er gítarleikari
í pönkhljómsveitinni Neyslu-
boltarnir. Sigurður er fæddur
árið 1982 og þurfti því að horfa á
heimildarmyndirnar Rokk í
Reykjavík og Pönkið og
Fræbbblarnir til að ná stemning-
unni. „Pönkararnir voru klárlega
mun karlmannlegri en diskóliðið
og ég held að enginn yrði til
dæmis hræddur við að hitta
Sveppa úti á götu. Hann er eigin-
lega sjálflýsandi. Ef fólk hitti
mig hins vegar í dimmu húsa-
sundi í leðurjakkanum og með
hanakambinn held ég að margir
myndu hrökkva í kút,“ segir Sig-
urður.
Sveppi, sem er fæddur árið
1977, er viss um að hann
hefði verið diskómegin í
lífinu hefði hann upplif-
að tímabilið. „Ég er allt
of hress til að hafa
getað orðið pönkari. Ég
meina, ekki var Hemmi
Gunn pönkari. Ég náði
þessu tímabili aðeins í
gegnum eldri bróður
minn sem átti leður-
jakka með barm-
merkjum. Hana-
kamburinn á
honum var samt
alltaf svakalega
hallærislegur.
Hann var bara
með of miklar
krullur.“
„Það er rosa stuð í
þessari sýningu,“
segir Sigurður. „Þótt
það verði allt vitlaust
á sviðinu þegar þess-
um hópum lýstur
saman þá eru allir
vinir baksviðs.“
„Það er líka allt opn-
ara núna,“ bætir Sveppi
við. „Í dag kippti maður
sér ekkert upp við það
þótt maður sæi arg-
asta pönkara leiða
diskófrík niður
Laugaveginn. Það er
allt leyfilegt í dag
en ekki svart/hvítt
eins og það var.“
gunnarh@frettabladid.is
Sveppi glæsilegur í diskógalla
Jessica Alba hyggst taka sér frí
frá störfum eftir að barn hennar
og Cash Warren kemur í heiminn í
júní. „Ég ætla bara að slaka á og
komast að því hvað þessi upplifun
að vera móðir snýst öll um, og
njóta þess,“ segir Jessica, sem á
von á fyrsta barni sínu.
Þegar að því kemur að hún snúi
aftur til starfa kveðst leikkonan
hins vegar hafa áhuga á að vinna
með kærastanum, sem framleiðir
kvikmyndir. „Ég hefði ekkert á
móti því að gera eitthvað með
Cash. Hann er ótrúlega gáfaður og
mjög snjall. Ég held að það að
hann sé hluti af einhverju verkefni
þýði að það verði framsækið og vel
heppnað,“ segir hún.
Tekur sér frí
frá störfum
JESSICA ALBA
Connor Cruise, þrettán ára
ættleiddur sonur Tom Cruise og
Nicole Kidman, kemur fram í
litlu hlutverki í nýjustu kvikmynd
Will Smith, Seven Pounds. Fjallar
hún um mann sem hefur mikil
áhrif á líf sjö ókunnugra manna.
Þetta er í fyrsta sinn sem Connor
kemur fram á hvíta tjaldinu.
Leikur hann Smith sem ungan
mann og talar hann ekkert í
myndinni.
Leikstjóri Seven Pounds er
Gabriele Muccino sem gerði
einnig The Pursuit of Happyness
með Smith í aðalhlutverki.
Sonur Cruise
í nýrri mynd
NÝR CRUISE Connor Cruise, ættleiddur
sonur Tom Cruise og Nicole Kidman,
hefur leikið í sinni fyrstu mynd.
Vinátta Katie Holmes og Victoriu Beckham ku fara
kólnandi, vegna nýrra vina kryddpíunnar.
Katie og Victoria voru nánast óaðskilj-
anlegar eftir flutninga Beckham-
hjónanna til Los Angeles í fyrra, en
eiginmenn þeirra, David Beckham
og Tom Cruise voru álíka góðir
vinir. Katie ku hins vegar vera
pirruð yfir því að Victoria kjósi nú
að verja mestum tíma sínum með
nýjum vinkonum, þeim Evu Long-
oria og Kate Beckinsale.
„Þangað til fyrir skömmu
voru Beckham-hjónin bestu
vinir Katie og eiginmanns
hennar, Toms Cruise. En nú
er greinilegt missætti þeirra
á milli, og Victoria hefur
gert það ljóst að Eva og Kate
eru nýjir bandamenn hennar
í Los Angeles,“ segir heim-
ildarmaður breska blaðsins
The Star. „Spennan hefur
farið vaxandi síðan að það fór að fara
í taugarnar á Katie að allir segðu
að vegna þess að hún skipti um
hárgreiðslu, léttist og fór að
klæða sig betur væri hún að
breytast í Posh. Svo hún dró sig
aðeins í hlé, og vinátta stelpnanna
er nú mun minni,“ segir hann.
Talsmaður Victoriu Beckham
þvertekur fyrir að slík
vandamál séu til staðar,
og bendir á að Tom,
Katie, David og Victoria
hafi öll farið saman út
að borða í síðustu viku
til að fagna afmæli
Victoriu. Með í för
voru einnig Eva Long-
oria, Kate Beckinsale,
Gwen Stefani og Gavin
Rossdale, og Will
Smith og Jada Pinkett-
Smith.
Slettist upp á vinskapinn
folk@frettabladid.is
OF HRESS TIL AÐ
VERA PÖNKARI
Sveppi leikur diskó-
fríkið Danna.
FÁIR VILDU HITTA MIG
Í DIMMU HÚSASUNDI
Sigurður Hrannar leikur
pönkarann Ragga Rúnk.
NÝJAR VINKONUR
Victoria Beckham
hefur fundið sér
nýjar vinkonur í
þeim Evu Longoria
og Kate Beckinsale.
PIRRUÐ ÚT Í POSH
Katie Holmes ku
vera ósátt við að
vera líkt við Vict-
oriu Beckham.
Eurobandið stígur á svið í London í
kvöld, þar sem blásið verður til upphit-
unarpartís fyrir Eurovision. Með í för
verður Páll Óskar, sem ætlar einnig að
skemmta gestum Scala-klúbbsins.
Eurobandið mun að sjálfsögðu flytja
Eurovision-lag ársins, This Is My Life,
en stefnir einnig á að koma gestum á
óvart með vel völdum Eurovision-
slögurum, enda þaulæfð í þeim eftir
spilamennsku síðustu ára. Páll Óskar
hyggst hins vegar bæði bjóða upp á Allt
fyrir ástina á ensku, en þar að auki dusta
rykið af laginu Minn hinsti dans, sem
hann flutti í keppninni árið 1997.
Auk Páls Óskars hafa tvær Eurovision-
kempur til viðbótar staðfest komu sína.
Það er annars vegar hópurinn Bucks
Fizz, sem vann Eurovision fyrir Bretland
árið 1981, og hins vegar Nanne Grönvall,
fulltrúi Svíþjóðar árið 1996. Eurobandið
mun hins vegar fá tækifæri til að
kynnast nokkrum keppinautum sínum í
ár, því fulltrúar Úkraínu, Póllands,
Möltu, Rúmeníu, Bosníu og Hersegóvínu,
Noregs, Armeníu og Hvíta-Rússlands
verða allir á svæðinu.
Gestir eru hvattir til að mæta upp-
dressaðir með flögg því stefnt er á að
halda besta Eurovision-partí fyrr og síðar í Englandi.
Eurobandið syngur í London í kvöld
KYNNAST KEPPINAUTUM Þeim Regínu Ósk og
Friðriki Ómari gefst kostur á að kynnast nokkr-
um af keppinautum sínum í London í kvöld.
28 DAGAR TIL STEFNU